Vera - 01.02.2001, Side 28
Þögla
hættan
Silíkon
Diana Zukerman, Ph.D., framkvæmdastjóri
National Center for Policy Research for Women
and Families í Washington sendi eftirfarandi
fréttatilkynningu í maí 2000. Tilkynningin
barst m.a. landlæknisembættinu d íslandi.
Hjó 80% kvenna höfðu brjóstapúðar
sprungið eftir tíu ór
ý könnun FDA (Matvæla- og lyfjaeftirlits
Bandaríkjanna) leiðir í Ijós hrollvekjandi nið-
urstöðu um brjóstastækkanir með silíkonhlaupi. Tíu
órum eftir aðgerð kemur í Ijós að silíkon brjóstapúð-
ar hafa sprungið hjó 80% kvenna, ón þess að þær
viti af því.
CPR (The National Center for Policy Recearch for
Women and Families), ásamt National Women's
Health Network, hefur farið fram á það við FDA að
það stöðvi nú þegar sölu á silíkoni til brjósta-
ígræðslu. Stofnanirnar brugðust skjótt við þeirri frétt
að í rannsókn sem gerð var af vísindamönnum FDA
kom f Ijós að hjá rúmlega tveimur af hverjum þremur
konum sem fengið höfðu silfkonígræðslu höfðu
brjóstapúðarnir sprungið og silíkonið borist til ann-
arra líkamshluta.
Fréttin olli mikilli skelfingu meðal kvenna sem
fengið höfðu silíkon í brjóst þar sem lýtalæknar höfðu
fullvissað margar þeirra um að slíkar ígræðslur væru
hættulausar og sjaldgæft að brjóstapúðarnir tækju að
leka. Rannsóknin er afar mikilvæg vegna þess að í
henni kemur í fyrsta sinn fram þessi „þögla hætta",
þ.e. silíkonleki hjá konum sem ekki hafa fundið fyrir
neinum einkennum og því ekki farið fram á að láta
fjarlægja púðana. Við rannsóknina var notuð segul-
mæling á konum sem höfðu verið með silíkon-
ígræðslur í brjóstum í að minnsta kosti sex ár. Einn
þriðji þeirra kvenna sem upphaflega var haft sam-
band við hafði þegar látið fjarlægja brjóstapúða
vegna leka, sársauka eða annarra óþæginda og voru
þær ekki með í rannsókninni.
„Það merkir að heildarfjöldinn er enn meiri en
fram kemur í rannsókninni," segir dr. Patricia
Lieberman hjá CPR. Niðurstöðurnar, sem kynntar
voru á heimsþingi lífefnafræðinga, afhjúpa staðreynd-
ir sem eru einstaklega uggvænlegar þeim er fengið
hafa silíkonígræðslur.
# Hjá 79% þeirra er fengið hafa fleiri en eina ígræðslu hefur að
minnsta kosti ein þeirra sprungið innan 11 til 15 ára og hjá 48%
hafði að minnsta kosti ein sprungið innan 6 tillO ára.
# Hjá rúmlega einni af hverjum fimm konum hafði silíkonhlaupið
borist út fyrir örvefinn umhverfis ígræðsluna og gæti þar af leiðandi
borist til mikilvægra líffæra. Nær ómögulegt er oð fjarlægja silíkon
sem er laust í líkamanum með skurðaðgerð og sé það reynt getur
það endað með aðgerð sem líkja má við að fjarlægja þurfi brjóstið.
# ígræðslur sem gerðor voru á 7. áratug síðustu aldar og í byrjum
þess 8. virtust endast lengur, enda voru brjóstapúðarnirnir þá mun
þykkari. Samt sem áður kom í Ijós að hjá tveimur þriðju þeirra
kvenna er gengið höfðu með fleiri en eina slíka ígræðslu í 26 ár eða
lengur, var að finna leka í að minnsta kosti einni þeirra.
# Margar kvennanna höfðu enga hugmynd um að þær gengju
með lekan silíkonbelg í brjóstunum.