Vera - 01.02.2001, Blaðsíða 53
I Buffy þáttunum er búið að snúa kynjahlutverkunum við
og áherslan er á Angel sem kyntákn.
Bríet mælir með
Kvikmyndinni Crouching Tiger Hidden Dragon. Ógeðslega flott
mynd með flottum kvenhetjum sem geta rústað öllum með bardagatækninni,
skemmtilegur söguþráður líka.
R&B hljómsveitinni Destiny's Child. Klárar stelpur sem syngja ekki um
að þær hafi verið fæddar til að gera karlmanninn hamingjusaman (eins og
sumar Britneyjar Spearsar) heldur um sjálfstæðar konur eins og kemur fram í
nýjasta undrinu þeirra Independent Women sem er aðallagið í Charlies Angels.
Feðraorlofi þó að í ár sé það aðeins mánuður sem feður mega taka með
barninu sinu þá hefur það sýnt sig í rannsóknum að þegar pabbinn tekur
feðraorlof þá nær hann betra sambandi við barnið, lærir betur á heimilið og
þar af leiðandi verður meira jafnrétti í heiminum.
Hannyrðabúðinni Slétt og brugðið á Skólavörðustígnum. Þar fá viðvan-
ingar umburðarlyndi og góða hjálp í prjónaskap.
Kvikmyndinni Love and Basketball sem er nýkomin á myndband.
Myndin fjallar um það hvað stelpur eiga erfitt uppdráttar í iþróttum og fá litla
hvatningu. Leikstjóri myndarinnar er kona.
Buffy rís upp gegn feðraveldinu
Rubert Giles er leiðbeinandi Buffy, „the watcher".
Hann var sendur til Sunnydale af „The Watchers
Counscil" og vinnur sem bókasafnsvörður í skólanum.
Það er hans hlutverk að þjálfa hana líkamlega sem
andlega til þess að takast á hendur köllun sína. „The
Watchers Counscil" er sterk feðraveldisstofnun og
fólkið sem við sjáum koma frá þessari stofnun eru allt
íhaldssamir, hvftir karlmenn með breskan hreim. Ráð-
ið hefur tekið að sér-að stjórna lífi ungra stúlkna í
margar kynslóðir og því hefur tekist að stofngera
vampírubana náðargáfuna. Vampírueyðirinn á að
hlýða leiðbeinanda sínum skil-
yrðislaust en Buffy hinsvegar
neitar oft að fara eftir því sem
Giles leggur til. í upphafi serí-
unnar neitar hún að hún sé
vampírueyðirinn og neitar að
hlýðnast köllun sinni. Hún
leggur líf sitt í hættu vegna
þess að hún vill gera hlutina á
sinn hátt, hún gerir uppreisn
gegn feðraveldinu og fer ekki
eftir reglum þess nema það henti henni. Það versta
sem hún gerir er að verða ástfangin af vampíru, af ó-
vininum.
Kynjahlutverkunum snúið við
Angel er 240 ára gömul vampfra sem hefur endur-
heimt sálina sína og samvisku, hann er sem sagt
hættur að drepa fólk. Hann er stór, herðabreiður og
skuggalegur, með flóttalegt augnaráð. Það er nokkuð
augljóst frá byrjun að Buffy og hann laðast hvert að
öðru. Smám saman fara hlutirnir að gerast og úr
verður eldheitt ástarsamband sem á sér ekki farælan
endi. Femínistar hafa gagnrýnt það að í sjónvarpi séu
konur eingöngu sjónræn viðföng sem karlmenn fá að
glápa á. f Buffy þáttunum er búið að snúa kynjahlut-
verkunum við og áherslan er á Angel sem kyntákn.
Þegar Buffy kemur í heimsókn er hann oft ber að ofan
og þegar hann er að slást rifnar skyrtan svo að sést í
stæltan brjóstkassann.
Það er ekki bara hér sem kynjahlutverkunum er
víxlað í sambandi þeirra. í fjölmiðlum eru karlar oft-
ast virkir og drottnandi en konur auðmjúkar og laga
sig að vilja karlanna sem eru þeim við hlið. Það hefur
líka lengi verið umtalað að kvenhetjum er alltaf bjarg-
að af draumaprinsunum á síðustu stundu en það
virðist ekki einusinni koma til greina í þessari þátta-
röð. Angel kemur alltaf aðeins of seint, Buffy er nýbú-
in að leysa sig sjálf út úr ó-
göngunum þegar hann birtist
og þegar Buffy biður hann um
hjálp þá berjast þau hlið við
hlið sem jafningjar. Femínism-
inn í þáttunum kemur aðal-
lega fram í persónu Buffy og
köllun hennar sem vampíreyð-
is. Buffy er sterk, sjálfsörugg,
sjálfstæð, óhlýðin og brýtur
upp hefðbundin kynjahlutverk.
Hún er góð fyrirmynd fyrir unglingsstelpur vegna þess
að hún sýnir að það er allt í lagi að vera soldið villt
og gera ekki alltaf eins og ætlast er til. Þó að sögu-
svið þáttanna eigi sér ekki stoð f raunveruleikanum
gæti Buffy verið venjuleg stelpa því hún glímir við
raunveruleg vandamál sem eru ekki klisjugerð eða
kaffærð af skilaboðum um hina eða þessa hegðunina.
Unglingsstelpa sem gerir uppreisn gegn feðraveldinu
getur ekki verið annað en femínísk hetja og tækifærið
sem áhorfendur fá til þess að glápa á Angel er einnig
skemmtileg tilbreyting. Því meira sem ég hugsa um
Buffy og vini hennar í Sunnydale verð ég öruggari á
því að það hafi verið ætluninn að skapa femíníska
hetju fyrir ungar stelpur.
Femínisminn í þóttunum kemur aðallega
fram í persónu Buffy og köllun hennar
sem vampíreyðis. Buffy er sterk,
sjólfsörugg, sjólfstæð, óhlýðin og brýtur
upp hefðbundin kynjahlutverk.
o
53