Vera


Vera - 01.02.2001, Qupperneq 32

Vera - 01.02.2001, Qupperneq 32
„Ég var undirlögð af verkjum og læknirinn minn leit ekki framhjá því að veikindin gætu jafnvel stafað af sílikoninu þegar ég bar undir hann þær upplýsingar sem mér bárust utan ár heimi." það kom illa niður á yngstu dótt- ur minni," segir hún. „Hún var þá í 10. bekk en var ekki gert kleift að klára grunnskólann og ber þess aldrei bætur. Ég fékk síðan þriggja herbergja íbúð í Reykjavfk á leigu og hef búið hér sfðan." Lét fjarlægja silíkonið Ekki er öll sjúkdómssaga Sigrún- ar sögð. Árið 1997 veiktist hún alvarlega og sýndi ýmis einkenni sem talin eru geta stafað af því að silíkon hafi lekið út í líkamann. Hún veiktist af bronkitis og þurfti að fara í sterameðferð en léttist þá skyndilega um 15 kíló á skömmum tíma. Hún var lögð á sjúkrahús og greind- ist með berkla og fór í berklameðferð í níu mánuði. Talið var að berklarnir hefðu blossað upp við sterkakúrinn en hún gengið með smit í langan tíma. Svo fannst æxli á nýrnahettunum sem var fjarlægt 1998, sama ár og Sigrún las greinina í Cosmopolitian um sjúkdómseinkenni af völdum silíkons. Um svipað leyti eignaðist hún tölvu og nettengingu sem opnaði henni samband við konur f öðrum löndum. „Ég var undirlögð af verkjum og læknirinn minn leit ekki framhjá því að þeir gætu jafnvel stafað af silíkoninu þegar ég bar undir hann þær upplýsingar sem mér bárust utan úr heimi. Við vorum sammála um að ég hefði engu að tapa og því væri best að fjarlægja silíkonpúðana úr brjóstunum í von um að þá myndi heilsa mfn batna. Það var gert árið 1999 en því miður er eins og skaðinn hafi verið skeður. Enn þarf ég að vera undir læknishendi og fer oft á sjúkrahús." Læknar standa ráðþrota frammi fyrir því sem hrjá- ir Sigrúnu og tvisvar hefur verið reynt að koma á teymi fagfólks til að finna lausn á vanda hennar. Þyngdartapið sem kemur skyndilega kallar á að hún drekki orkudrykki en drykkirnir sem hún þolir kosta 36.000 krónur á mánuði og henni er synjað um styrk til að kaupa þá. Ofan á veikindin þarf hún stöðugt að berjast í kerfinu til að fá sjálfsagða hluti eins og hjálpartæki. Iðjuþjálfi á Landspítalanum ráðlagði henni t.d. að fá sér rúm sem er hannað fyrir gigtar- sjúklinga en Tryggingastofnun samþykkti það ekki sem hjálpartæki. Þá varð Sigrúnu að orði við trygg- ingayfirlækni: „Samkvæmt fslenskum lögum virðist mér alls ekki mega lfða betur." „Það þarf að hafa fulla heilsu til að vera sjúklingur á íslandi," segir Sigrún og tekur þar undir reynslu margra annarra. Hún bjó í Svíþjóð í sjö ár og hefur stundum velt fyrir sér að flytja þangað aftur til að losna við þá niðurlægingu sem fylgir því að vera ör- yrki á íslandi. Hún tekur þó skýrt fram að hún yrði aldrei sátt við sjálfa sig ef hún flytti bara til að hafa það betra í öðru landi. „Andlega líður fólki aldrei bet- ur en í eigin heimalandi en þá verður að gera því kleift að lifa og standa við skuldbindingar sínar. Ég veit að margir hafa flutt út eftir að hafa misst heils- una, bara til að reyna að lifa af. Það ætti að vera hverri rfkisstjórn metnaðarmál að búa þannig um hnúta að þessi husgun komi ekki upp hjá fólki. f við- skiptum mfnum við heiibrigðisyfirvöld finnst mér því miður alltaf látið að því liggja að fólk sé að reyna að ná einhverju út úr kerfinu sem það á ekki rétt á. Það leikur sér enginn að þvf að missa heilsuna, það ætti þó að vera á hreinu. Þegar fótunum er kippt undan fólki af þessum sökum er mikið aukaálag að fá það á tilfinninguna að vera smánarblettur á þjóðfélaginu en þannig er framkoma margra í garð öryrkja bara orðin í dag, þvf miður." Skaðabótasjóður silíkonframleiðenda Sigrún segir að samskiptin við konur í öðrum löndum gefi sér kraft og vissu um að hún sé að gera rétt. Hún fær reglulega fréttir af því sem skrifað er um silíkon og brjóstaaðgerðir erlendis og kemur þeim upplýsing- um á framfæri á heimasíðu Vonar, von.is. Sfðan var sett upp með styrk frá kanadískum hjónum sem fréttu hvað illa væri staðið að miðlun upplýsinga til kvenna á íslandi. Umræðan er mun meiri í öðrum löndum, t.d. var nýlega fróðlegur Fokus þáttur í norska sjón- varpinu og þar var einnig sýnd bandaríska kvikmyndin Two Small Voices og umræður á eftir. Sú mynd er sannsöguleg og fjallar um tvær konur sem veiktust eftir silíkonaðgerð og styðja hver aðra í því að þerjast fyrir rétti sfnum. „Mikið vildi ég að íslenska sjónvarp- ið sýndi þessa mynd. Hún myndi örugglega opna augu fleiri fyrir alvöru málsins," segir Sigrún. Eitt af því fyrsta sem Von tók sér fyrir hendur eftir að hópurinn var stofnaður var að fá skráningarblöð í Dow Corning sjóðinn en það er skaðabótasjóður sem stofnaður var af framleiðendum silíkonpúða og hefur það hlutverk að tryggja konur 15 ár fram í tímann fyrir skaða af völdum púða sem framleiddir voru fyrir 1994. Sjóðurinn greiðir konum einnig 3.500 dollara (um 280.000 ísl.kr.) ef þær hafa þurft að láta fjarlægja silíkonpúðana. „Fjörutíu fslenskar konur hafa sent inn umsóknir í sjóðinn fyrir okkar tilstilli. En bandaríska kerfið er svo flókið, ekki þarf nema að skrifa eitt vit- laust orð til að eyðileggja málið, því var nauðsynlegt fyrir okkur að fá lögfræðing. Við leituðum hér á landi en fundum enga sem höfðu þekkingu á málinu en var bent á iögfræðing í Þýskalandi, konu sem hefur sér- hæft sig í þessu og vinnur fyrir konur í mörgum lönd- um Evrópu. Mér fannst nauðsynlegt að kynnast henni fyrst og fór til Þýskalands á mínum örorkubótum og 32
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.