Vera - 01.02.2001, Síða 33
Silíkon
„Margar eru veikar en hafa ekki fengið staðfest hjá lækni hvað amar að, aðrar hafa fengið þá
greiningu að veikindin geti tengst lekandi sílikoni sem á læknamáli er nefnt að sílikon tárist."
var með henni í fjóra daga. Mér leist mjög vel á hana
og hún hefur nú tekið mál okkar að sér."
Sigrún er hér að tala um konur sem hafa verið
greindar með sjúkdóma sem taldir eru geta stafað af
silíkoni í brjóstum og segir að þær geti átt von á fleiri
milljónum í skaðabætur. En til þess þarf læknir sem
er viðurkenndur af bandarískum dómstóium að stað-
festa sjúkdómsgreininguna og jafnvel að hafa gert
einhverjar rannsóknir, annað er ómarktækt að áliti
dómstóla sem fjalla um Dow Corning málið. Hin
Norðurlöndin hafa þegar skipað lækna hjá sér til að
sinna þessum málum og landlæknir hefur lofað kon-
unum að það verði líka gert hér á landi.
Veikt ónæmiskerfi og bilað stoðkerfi
„Margar eru veikar en hafa ekki fengið staðfest hjá
lækni hvað amar að, aðrar hafa fengið þá greiningu
að veikindin geti tengst lekandi silíkoni sem á lækna-
máli er nefnt að silíkon tárist. Sjúkdómseinkennin
eiga m.a. rætur í veiku ónæmiskerfi og biluðu stoð-
kerfi. Konur hafa greinst með Sjögren sjúkdóminn,
sem lýsir sér m.a. í þurrki í augum og munni, og scel-
eroderma, en það er sjúkdómur sem leggst á líffærin,
auk fjölda annarra sjúkdóma sem geta tengst lekandi
silíkoni. Fyrir utan mig hafa tvær verið dæmdar ör-
yrkjar af þessum sökum og við þrjár erum kjarninn í
Von, hittumst reglulega og reynum að þoka málum á-
fram þrátt fyrir sáran peningaskort. Við höfum einu
sinni fengið fjárstyrk frá heilbrigðisráðuneytinu og
erum nú með umsókn um styrk hjá Reykjavíkurborg,
Krabbameinsfélagi íslands og Paul Newman sjóðnum
en höfum ekki fengið svör. Við lifum í voninni um að
fá styrk svo við getum haldið áfram að vinna, því við
finnum mikla þörf hjá fólki. Það hefur nokkrum sinn-
um komið fyrir að ég hef ekki getað borgað netáskrift-
ina og þá er henni lokað. Einu sinni hafði tengingin
legið niðri í mánuð og þá biðu mín 1500 bréf þegar
opnað var aftur. Ég vil þó taka fram að Síminn hefur
fellt niður skuld og Gunnar Dungal í Pennanum
styrkti okkur með pappír og bleki í prentarann. Það
var mikilvægur stuðningur. Hins vegar er tölvan orðin
svo gömul að harði diskurinn nær ekki að geyma allar
þær upplýsingar sem okkur berast. Það er auðvitað
draumurinn að eignast stærri og hraðvirkari tölvu."
Sigrún segir málið vera svo viðkæmt fyrir margar
konur að þær komi ekki á fundi og þó hún hafi talað
margsinnis við konur myndi hún ekki þekkja þær á
götu. „Við fáum mikið af fyrirspurnum í tölvupósti en
getum stundum ekki svarað, því við vitum ekki hvað-
an bréfin koma. Ég vil þvf brýna fyrir konum að láta
netföngin fylgja. Hins vegar fáum við alls kyns spurn-
ingar sem aðeins lýtalæknar geta svarað. Þeir þurfa
að fara að vinna heimavinnuna sína og veita almenni-
legar uppiýsingar. Landlæknisembættið þarf líka að
taka sig á og sinna þessum málum betur. Við höfum
oft fundað með landlækni og hann veit vel hver staða
mála er. Við sendum kvennanefnd Evrópuþingsins í
Brussel bréf, eftir beiðni læknis sem þar starfar, þar
sem við lýstum stöðu mála hér á landi. Málið hefur
mikið verið rætt á þeim vettvangi og í mars verða
væntanlega settar reglur um aldurstakmark o.fl.
Kannski taka íslendingar við sér þegar reglurnar koma
að utan," segir Sigrún að lokum. O
„Þegar fótunum er kippt
undan fólki af þessum
sökum er mikið aukaó-
lag að fó það ó tilfinn-
inguna að vera smónar-
blettur ó þjóðfélaginu en
þannig er framkoma
margra í garð öryrkja
bara orðin í dag, því
miður."