Vera


Vera - 01.02.2001, Blaðsíða 34

Vera - 01.02.2001, Blaðsíða 34
Silíkon ÞVÍ FYRR ÞVÍ BETRA... SAGÐILYTALÆNIR VIÐ 19 ÁRA STÚLKU OG VILDI BÆTA 260-280 GR. í HVORT BRJÓST Til þess að komast að því hvernig staðið er að upplýsingagjöf til ungra kvenna sem vilja fó brjósta- stækkun fór 19 óra gömul stúlka til lýtalæknis fyrir Veru. í viðtalinu fékk hún A4 blað með upplýs- ingum sem við birtum hér í opnunni. Lesendur geta metið hvort þeim finnist þær uppfylla kröfur landlæknis um að lýtalæknar sinni þeirri skyldu að gefa upplýsingar um kosti og galla aðgerðar, óhættu sem henni getur fylgt og grun um afleiðingar, hvort sem það þykir sannað eða ekki. Læknirinn: |æja, hvernig get ég reynt að hjálpa konunni? Stúlkan: Ég var að spá í silíkonpúða eða saltvatnspúða. Læknir: Við notum eiginlega bara silíkonpúða í dag. Við erum að mestu leyti hættir að nota saltvatnspúða. Ástæð- an fyrir því er tvennskonar, í fyrsta lagi þola þeir lítið hnjask og það sem verra er þá hefur heyrst gutla í vatninu. Auk þess eru saltvatnspúðarnir dálftið plat þvf þeir eru Ifka úr silíkoni nema fylltir með saltvatnslausn. Þessar silfkonaðgerðir eru hættulausar aðgerðir, að mfnu mati, af þvf að silíkonefnið sem slíkt er ekki hættulegt. |afn- vel þó að púðarnir myndu springa inn í þér ef þú lendir í árekstri eða einhverju slysi, þá dreifist silíkonið ekki um lík- amann eins og fólk virðist halda heldur er bara skipt um púða. Svo einfalt er það. Þannig að þetta á ekki að vera neitt hættulegt efni. Samt geta komið fyrir ákveðnar aukaverkanir, svona hliðarverkanir sem eru óæskilegar. í fyrsta lagi þá er þetta skurðaðgerð, það þarf að skera lítið gat til að koma púðun- um fyrir, við það myndast lítil ör en það kemur ekki til með að sjást. Sumar konur mynda ekki ör jafn vel og aðrar þannig að það getur verið dálítið áberandi en þau er oftast hægt að laga. Ofnæmi fyrir silíkoni er þekkt en það er þá ekki almennt ofnæmi heldur ofnæmisviðbrögð inni í brjóst- inu og brjóstið verður hart og aumt. Þetta er mjög sjaldgæft en ef þetta kemur fyrir þá nuddar konan brjóstið og þetta lagast af sjálfu sér og það þarf ekkert að gera meira. Hjá einni og einni konu lagast það ekki, þá þarf að opna skurð- inn og losa þessa samvexti sem púðarnir hafa myndað. Það er venjulega nóg til þess að þetta lagist. Stúlkan: Er sem sagt alit í lagi að hafa silíkonpúða þrátt fyrir að vera með ofnæmi? Læknir: Já, ofnæmisviðbrögðin ganga venjulega yfir á nokkrum mánuðum. Dofi í geirvörtum eða brjóstum er til- tölulega algengur kvilli í nokkra daga eða nokkrar vikur eftir aðgerð og stafar hreinlega bara af bólguviðbrögðum í brjóstum. En svo lagast það og tilfinningin kemur aftur. Það eru þó undantekningartilvik á þessu en talið er að 1-2 kon- ur af hverjum hundrað geti haft varanlegan dofa. Þannig að þetta þarf að athuga. Ég gef alltaf pensilín í nokkra daga eftir svona aðgerðir út af sýkingarhættu. Þú getur haft börn á brjósti og þú þarft að láta vita í krabbameinsleitarstöðinni að þú sért með silíkonpúða í brjóstunum. Þannig að þetta er eins og þú heyrir mig segja mjög áhættulítil aðgerð. Eftir að hafa skoðað stúlkuna úætlaði hann hvað hún þyrfti stóra púða og sagði að brjóstin myndu slækka um eina til Ivær skólaslærðir. Því næst fékk hún að sjó nokkrar myndir af konum fyrir og eftir brjóstastækkun. Stúlkan: Er það rétt að hægt sé að fá ókeypis brjósta- stækkun vegna tilvísana frá sálfræðingi eða geðlækni? Læknir: Nei, það er algjört bull. Ég held að ein kona hafi fengið það hérna á íslandi og hún liggur inni á geðdeild. Ég myndi segja, svona lítandi á þig, að þú þyrftir ca. 260 - 280 grömm í hvort brjóst, það myndi samsvara þér mjög vel. Stúlkan: Hvað kostar aðgerðin? Læknir: Hún kostar 170 þúsund með öllu inniföldu. Þannig að þú þarft bara að ákveða hvað þú vilt gera. Þvf fyrr þvf betra. Stúlkan: Hvenær er líklegt að ég komist að og hvernig er greiðslumátinn? Læknir: Þú kæmist lfklega að um miðjan mars. Ég hef leyft fólki að setja þetta á raðgreiðslur eða skipt þessu í þrjár til fjórar mánaðarlegar afborganir. Stúlkan: Hvað er þetta algeng aðgerð? Læknir: Algeng, ég geri hana á færibandi. Framkvæmdi sex aðgerðir í síðustu viku og þetta eru yfirleitt konur á aldrin- um 19, 20 til 30, 40 ára. Stúlkan: Eru einhver skilyrði sem þarf að uppfyila til að komast í svona aðgerð. Hefur þú hafnað aðgerð ef brjóstin eru meðalstór? Læknir: Ég geri ekki aðgerð á stelpum yngri en 18 ára. Ég tel að 18 ára ungar konur hafi ekki nægilegan þroska til að ákveða hvort þær vilji fara í svona aðgerð. Að mínu mati má alltaf bæta við brjóstin, þetta lyftir þeim upp og gerir þau stinnari. Stúlkan: Þarf að skipta reglulega um púða? Læknir: Kannski, ef þeir verða fyrir einhverju hnjaski, eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.