Vera


Vera - 01.02.2001, Blaðsíða 49

Vera - 01.02.2001, Blaðsíða 49
Samkvæmt íslenskri orðabók er leg skilgreint sem „líffæri kvendýrs eða konu þar sem frjóv- gað egg vex og verður fullburða fóstur." getur með tíð og tíma orsakað krabbameinið. Fleiri þættir virðast þó geta haft áhrif, svo sem aðrar sýkingar í kynfær- um. Þannig hafa niðurstöður finnskrar rannsóknar sem birt- ist nýlega bent til þess að klamýdíusýkingar tengist leg- hálskrabbameini. Kynlíf og orsakir leghólskrabbameins Það hefur lengi verið vitað að leghálskrabbamein tengist á einhvern hátt kynlffi. Þennan sjúkdóm er frekar að finna meðal kvenna sem hafa haft marga rekkjunauta eða eru með karlmönnum sem hafa slíka sögu. Ýmislegt bendir til þess að hér geti verið um veirusmit að ræða, þar sem veir- an berst milli kynja við samfarir. Áhættan eykst eftir því sem konan er yngri þegar hún byrjar að stunda kynlíf. Fleiri þættir virðast þó jafnframt geta haft áhrif, svo sem aðrar sýkingar í kynfærum, reykingar, notkun getnaðarvarnarpill- unnar o.fl. Miili 1960 og 1970 var leghálskrabbamein eitt al- gengasta krabbamein íslenskra kvenna en í kjölfar skipulegs leitarstarfs hefur mikið dregið úrtíðni sjúkdómsins. Að meðaltali greinist krabbamein í leghálsi hjá 15 íslenskum konum ár hvert. Leghálskrabbamein á, eins og nafnið bend- ir til, upptök sfn f þeim hluta legsins sem kallast legháls en hann er þar sem leggöng tengjast neðsta hluta legbolsins. Flöguþekja þekur leggöng en kirtilþekja sjálfan legbolinn. Langflest leghálskrabbamein (um 90%) eiga upptök si'n þar sem kirtilþekja mætir flöguþekju við ytra leghálsop og nefn- ist þetta svæði skiptireitur. Orsök leghálskrabbameins má rekja til röskunar á jafnvægi í nýmyndun og eyðingu fruma í slfmhúð leghálsins en þessi frumumyndun er örust við áð- urnefndan skiptireit. Ekki er vitað hvað veldur þeirri röskun en ljóst er að um 90% þeirra kvenna sem fá sjúkdóminn stunda reglulega kynlíf. Veldur veira sjúkdómnum? Á síðari árum hefur orðið vart við fjölgun kynsjúkdómavarta (condylom) meðal karla og kvenna. Þessar vörtur orsakast af veirutegund sem nefnist Human Papilloma virus (HPV). Eftirtektarvert erað henni fer fjölgandi í aldurshópnum 15- 18 ára. Human Papilloma veiran hefur marga stofna og undirtegundir eru yfir 80 talsins. Llm 15 þeirra eru tengdar leghálskrabbameini og aðrar valda góðkynja vörtum. Hjá konum myndast þessar vörtur við kynfærin og endaþarms- op. Einnig geta þær myndast í leggöngum eða í leghálsin- um. Þetta eru húðlitar vörtur, yfirborð þeirra er oftast flipótt og þær vaxa í klösum sem geta orðið nokkuð stórir. Stund- um myndast einungis húðlitar hrufur eða bólgur. Vörturnar birtast yfirleitt 1-3 mánuðum eftir smit, þó að í sumum til- fellum geti liðið allt að 12 mánuðir. Hjá körlum geta vört- urnar myndast á eða undir forhúðinni á getnaðarlimnum eða kringum endaþarmsopið. Veiran hefur fundist hjá yfir- gnæfandi meirihluta kvenna með forstigsbreytingar leg- hálskrabbameins og einnig hjá körlum með krabbamein f getnaðarlim. f þeim tilvikum þar sem hún nær fótfestu tengist hún við gen fruma f kynfærum kvenna og karla sem Leitarstöð Krabbameinsfélagsins fyrirbyggjandi heilsuvernd Athygli vekur að í vissum tilvikum getur byrjun leg- hálskrabbameins (hulinstig) þróast þrem árum eftir eðlilegt frumustrok og þess vegna veldur það áhyggjum að ungar konur mæta síður í kraþbameinsieit en eldri kynsystur þeirra. Hér á landi hefur leghálskrabbameinum fækkað mjög mikið eða um allt að 65-70% frá byrjun leitar. Má þakka það öflugri krabbameinsleit. íslenskar konur á aldrin- um 20-69 ára eru boðaðar til krabbameinsskoðunar hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins á tveggja ára fresti. Það er fyrst og fremst til að stuðla að fyrirbyggjandi heilsuvernd, þ.e.a.s. að finna frumubreytingar í leghálsi áður en krabba- mein hefur náð að þróast. Þess vegna hvetjum við allar konur til þess að mæta reglulega í skoðun hjá Krabba- meinsfélaginu! # Notaðu verjur við skyndimök. # Reyktu ekki og forðastu að anda að þér tóbaksreyk. # Stundaðu líkamsrækt, vandaðu fæðuval og neyttu ófengis einungis í hófi. # Verndaðu sjólfa þig og fjölskyldu þína, einkum börn, fyrir sólbruna. Þú getur orðið brún ón þess að brenna, ef þú gefur þér tima til þess. # Skoðaðu húðina reglulega og lóttu lækni líta ó allar breytingar. # Komdu reglulega í leghólskrabbameinsleit eftir tvítugt og brjóstamyndatöku eftir fertugt. # Mundu eftir að skoða sjólf brjóstin þín mónaðarlega. # Vertu vakandi fyrir breytingum ó heilsufari þínu. # Borðaðu mikið af grænmeti, óvöxtum og trefjaríku fæði. Arndís Guðmundsdóttir og Alda Asgeirsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.