Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 30
Kynlífsvæðing
Fæst í næstu búð:
Gullfallegar stúlkur
L. « að kafna ó göndlum,
• — £ a= 'O *o -O -o E § riðið með hnefa,
:0 2 'f < c O =5 :0 sleikjandi rassgöt og
O) •O S _£5 2 drekkandi piss
•2 O)-- O X
Kynlífsefni
skoðað
Tvær Bríetur ákváðu að skreppa í bæinn og tékka
á þeim erótísku verslunum sem finnast í Reykja-
vík. Við komumst að því að fimm erótískar versi-
anir skreyta höfuðborgarsvæðið og svo er víst ein á
Akureyri. Þær fjórar verslanir á Reykjavíkursvæðinu
sem við sóttum heim eiga það sameiginlegt að selja
videospólur og ýmis konar kynlífshjálpartæki. Fyrir
utan hin hefðbundnu hjáipartæki eins og egg, fiðrildi,
höfrunga og aðrar dýrategundir, fundum við m.a. tippi
sem fest er við hökuna með teyju, gfnuhandleggi
(ýmist með krepptum hnefa eða ekki), snípsskraut,
sænskan tippatogara, uppblásinn gúmmígrís með
gati og ýmis konar vörur sem enn voru á jólatilboði.
Við létum okkur hjálpartæki ástarlífsins f léttu rúmi
liggja, hinsvegar voru það myndböndin sem vöktu at-
hygli okkar.
Gróf, óformleq flokkun ó erótík/klóm mark-
aðnum ó Islandi
Þær verslanir sem við heimsóttum eiga það sameig-
inlegt að flestar myndirnar eru keyptar frá Bandaríkj-
unum, sumar verslanirnar höfðu þó keypt efni frá Evr-
ópu. Ein hliðin á bandaríska markaðnum er svokallað
„Hollywood efni" sem talið er snyrtilegra, fínna, meira
glansefni en annað bandarískt og evrópskt efni. Þá
erum við að tala um meiri peninga, metnað, þekktari
leikkonur og leikara og ákveðna almenna viðurkenn-
ingu. Sumir hafa séð myndina Cirl Next Door, sem er
eins konar heimildarmynd um klámmyndaleikonuna
Stacy Valentine. Stacy er með sítt, Ijóst hár og búin
að fara í brjóstastækkanir, fitusog og varafyllingu.
Staðlað glansútlit hennar lýsir ágætlega ímynd „-
Hollywood" myndanna. „Hollywood" klámmyndirnar
eru yfirleitt með söguþræði, leikmynd og húsgögnum.
Sá markaður sem er ósýnilegri, og mun stærri, er
hinn almenni klámmarkaður þar sem aðrar reglur
gilda. Óþekktir, óreyndir leikarar, minni peningar,
söguþráðurinn yfirleitt mjög slappur eða ekki til stað-
ar og ekki mikið lagt í gerð myndarinnar yfir höfuð. í
þessum geira finnum við ýmsa undirflokka eins og
„ready to drop" (mjög óléttar konur), „barely legal"
(ungar stúlkur sem gætu verið undir aldri), mjög feitt
fólk, gamalt fólk, tásublæti (foot fetish), „gang bang"
(einni konu riðið af mörgum körlum), BDSM (bind-
ingar og sadómasó) o.fl.
Hvað er þetta með analinn?
Þó er það eitt sem prýðir allan markaðinn og það eru
rassaríðingarnar (anal sex) sem virðist vera tískan í
dag. Flestar klámmyndirnar á íslenska markaðnum
eru með að minnsta kosti eina senu sem inniheldur
gagnkynhneigða rassaríðingu. Okkur fannst þetta
mjög athyglisvert því nú eru það karlmennirnir sem
hafa kynörvandi svæði f rassinum en ekki konur (við
vitum að sumar konur upplifa kynferðislega örvun við
rassaríðingar en það virðist frekar vera undantekning
en regla). Hvers vegna eru rassaríðingar svona al-
gengar í gagnkynhneigðu klámi? Eru gagnkynhneigðir
karlmenn að yfirfæra homoerótík yfir á konur? Hugsa
þeir að allt sem þeim finnst gott hljóti konum að
þykja gott? Ef einhver er með svarið við þessu má
senda það á briet@briet.is!
Kvennaklóm hvað er nú það?
Eftir miklar fyrirspurnir og erfiði komumst við að því
að lítið sem ekkert efni er í boði fyrir konur, þá skiptir
engu máli hvort þær eru samkynhneigðar eður ei.
Starfsmenn búðanna ráku upp stór augu og urðu að
einu spurningarmerki þegar við spurðum þá um klám
fyrir konur, þar sem konurnar eru gerendur í kyn-
lífsiðkuninni. Sumir þeirra ruku upp til handa og fóta
til að leita að efninu en allt kom fyrir ekki, myndirnar
sem þeir drógu fram voru með leikkonum með risa-
stórt ljóst hár, gervibrjóst og langar, rauðar neglur.
Við gerum okkur grein fyrir því að lesbíur geta haft
mjög gaman af þessari kvenímynd en þó er senni-
legra að efnið sé hugsað fyrir gagnkynhneigða karla
sem finnst gaman að horfa á tvær stelpur saman.
Starfsmennirnir sögðu einnig að konur keyptu ein-
faldlega ekki klám og væri þess vegna ekki hugsað til
þeirra við innkaup á myndefni. Konurnar væru meira í
hjálpartækjunum, þ.e.a.s ýmis konar titrurum af ýms-
um stærðum og gerðum. Við bentum þeim þó á að
fyrirtækið hans Lars Von Triers í Danmörku framleiðir
30