Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 63
Athafnakonur
Siðfræði matvælaframleiðslu
er því miður ekki merkilegri
en svo að fólk veit sjaldan
með vissu hvað, það er að
lóta ofan í sig. I Pottaaöldr-
um leggjum við óherslu ó
ókveðnar siðferðisskyldur
gagnvart neytendum.
„Ég er farin að láta meira eftir mér að vera hugsuðurinn
og reyni að venja mig af að gera allt sjálf enda er ég komin
með frábærar starfskonur í lið með mér. Það kostar ein-
beittan huga og vilja að reka svona fyrirtæki og ég viður-
kenni fúslega að ég er stundum alveg að sligast undan allri
vinnunni í kringum peningahliðina. Markaðssetningin er
rosalega dýr og stækkun á lager kostar líka sitt og það er
mikið puð að láta reikningsdæmið ganga upp. Ég hef lagt
gríðarlega mikla vinnu f fyrirtækið en það framlag er ósýni-
legt á efnahags- og rekstrarreikningum. Endurskoðandinn
minn hafði enga trú á þessu fyrstu árin, enda las hann
bara tölur. En í dag er fyrirtækið orðið stabílt og rekur sig.
Þetta er merkjavara sem er komin til að vera."
Kokkur, dýrahjúkka og
dulspekingur
Sigfríð segist hafa haft mikinn áhuga á matargerð alveg frá
því hún var lítil stelpa. Hún fæddist með þessa hæfileika
og lærði því aldrei kokkinn. Hún vílaði ekki fyrir sér að reka
veitingastaðinn Krákuna á Laugavegi 22 í þrjú ár á níunda
aratugnum.
„Þetta var veitingastaður með öðruvfsi mat og ég fékk
mikla útrás fyrir sköpunargáfuna þar. Þetta var fyrsta „-
fusion" eldhúsið á fslandi sem fólst í því að ég var með
matargerð frá öllum heimsálfum. Viðskiptavinir gátu m.a
fengið mat frá lapan, Indlandi, Grikklandi eða Indónesíu.
En á þessum tíma var hér eingöngu boðið upp á pizzur og
kínverskan mat, fyrir utan þann íslenska, ef fólk fór út að
borða. Þegar ég var að elda á Krákunni þá setti ég mig í á-
kveðnar stellingar. Ef ég var t.d að elda mexíkanskan mat
þá ímyndaði ég mér að ég væri lítil mexíkönsk kerling með
hatt og svo spilaði ég viðeigandi tónlist með. Þannig
komst ég í réttu stemninguna og þá varð maturinn góður.
Mér fannst líka svo gaman að þjónusta. Ég átti sérstakar
víðar buxur og bleika svuntu sem ég var alltaf í við elda-
mennskuna og í þessum fötum bar ég matinn sjálf fram,
en það þótti mjög óvenjulegt á þessum tíma."
Sigfrfð hefur komið víða við um dagana enda er hún
rösk kona, svo vitnað sé í hana sjálfa. Upphafsmenntun
hennar var dýrahjúkrun og við það vann hún í átta ár á átt-
unda áratugnum. Hún hefur verið dulspekinemi í 10 ár og
ekki sér fyrir endann á því þar sem um er að ræða margra
h'fa nám. Hún er einnig í heilunarskóla og helst vill hún
frelsa heiminn.
„Það er í mér svokallað Hróa-Hattar sindróm. Þetta
korn strax fram í bernsku þegar ég geystist um á kústsköft-
um og var þá iðulega f hlutverki bjargvættarins. Ég vil enn
Þann dag í dag láta eitthvað gott af mér leiða og að hluta
bl fæ ég útrás fyrir það í Pottagöldrum. En svo er ég alltaf
að fá einhverjar nýjar hugmyndir sem tengjast ekki endi-
lega fyrirtækinu mínu og það er aldrei að vita hverjar
beirra ég framkvæmi."
o
ROUTIN SYROP Unnið úr náttúrulegum
efnum, án rotvarnar- og gervilitarefna.
Frábært í kaffi, te, mjólkurdrykki,
desertkökur, kokkteila og útá pönnu-
kökur og ís. Úrval bragðtegunda.
Tbflkaffi
KitchenAid
Draumavél
heimilanna!
5 gerðir
Margir litir
Fæst um land allt.
60 ára frábær reynsla.
\ MSMff Bnar
Kt Farestvett&Co.hf.
Borgartúnl 28 * 662 2901 og 582 2900
63