Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 8
Mynd: Gréta
Hún hefurséð um umfjöllun um samfélagsmál í Oki, þætti
fyrir ungt fólk í Ríkissjónvarpinu, og efnistökin hafa vakið
athygli. Meðal þess sem Birta og samstarfskona hennar,
Ragnhildur Gestsdóttir, hafa tekið fyrir eru lýtaaðgerðir á
ungu fólki, m.a. brjóstastækkanir, málefni nýbúa, neysla
ungs fólks, grúpp-pfur og ungir glæpamenn. „Við höfðum
það að markmiði að fjalla um fólk sem er frekar talað um
heldur en við. Við fengum frjálsar hendur og komumst að ýmsum athyglis-
verðum staðreyndum. Ég var t.d. hissa á því hvað margt ungt fólk hefur
neikvæða afstöðu til nýbúa og taldi að þeir kæmu allir frá Asíu. Svo er alls
ekki. Nýbúar eru tæplega 9.000 og séu þeir flokkaðir eftir löndum eru Tæ-
lendingar í 5. sæti, tæplega 400. Fólk sem líkist okkur í útliti er langfjöl-
mennast, t.d. Pólverjar, Bandarfkjamenn og fólk frá öðrum Evrópulöndum."
Birta varð stúdent frá MS og lærði íslensku við HÍ í eitt ár, síðan skipti
hún yfir í sagnfræði og er mjög ánægð með það. „Mér finnst sagnfræðin
mjög spennandi, hef gaman af að lesa um sögu íslands og er að hugsa um
að taka þjóðfræði sem aukafag. Ég hef ekki ákveðið hvort ég vel hana eða
mannfræði."
Auk starfa fyrir Ok vinnur Birta á vefriti Morgunblaðsins, mbl.is, og
skrifar í vefinn Fólk. Hún hefur unnið á Morgunblaðinu undanfarin sumur,
við prófarkalestur og sem ritari fréttastjóra. Hún segist ákveðin í að starfa
við blaða- eða fréttamennsku í framtíðinni og nýtur þar góðs af reynslunni
í Oki. „Þegar við fjölluðum um neyslu ungs fólks könnuðum við hvað við
gætum fengið mikið að láni án þess að leggja fram krónu. Fyrir hádegi
tókst okkur að fá 1.2 milljónir í yfirdráttarlán o.þ.h. og eftir hádegi keypt-
um við húsgögn, bíl, föt o.fl. fyrir 3.8 milljónir með þvf að sækja um
greiðslukort og fá raðgreiðslur, bílalán o.fl. Segir þetta ekki mikla sögu um
neysluna og þensluna í þjóðfélaginu?" spyr Birta að lokum.
8