Vera


Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 28

Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 28
Kynlífsvæðing ? Nýjustu konurnar » Nýjustu karlarnir Catballou 27ára kvk, Suöurland Hæ, ef þú ert hress ogskemmtílegMr, sjálfstæöur einstakllngur ogvantar einhver... °> Knusinn 32ára kk, Hofuöborgarsvæöiö Skemmtilegur maður með góða menntun ogí góðri stöðu sem leiöur er orðinn á djam... greinilega vinninginn. Piltarnir fjórir sem hönnuðu vefinn kunna vel til verka. Allri óþarfa grafík er sleppt og síðurnar því fljótar að hlaðast inn. Auk þess er vefurinn ákaflega einfaldur í notkun og að- gengilegur í flesta staði. Það tekur aðeins örfáar mfnútur að skrá inn auglýsingu og ef vel tekst til má búast við nokkrum svörum áður en dagurinn er úti. Nafnleynd er einnig í hávegum höfð, ekki þarf að gefa upp persónulegar upplýs- ingar, aðeins netfang sem viðkom- andi hefur aðgang að. Á einkamal.is má nálgast flest það sem hugurinn gæti girnst. Hvort sem hugmyndin er að skreppa á stefnumót, eignast vin, taka þátt í hópmökum, versla sér stúlku/pilt fyrir helgina eða bara finna sér einhvern/einhverja til að kúra hjá, þá er einkamal.is kjörinn vettvang- ur. Engu að síður hefur vefurinn aldrei skilað hagnaði, að sögn markaðsstjórans. Það gæti þó breyst innan skamms því til stend- ur að hefja kynningarstarf í því skyni að bæta ímynd einkamal.is, fjölga notendum og auka auglýs- ingatekjur. Þar sem vefurinn hefur aldrei verið auglýstur áður er ekki ólíklegt að heimsóknir taki nokkurn kipp ef vel tekst til með markaðssetningu. Auk þess sem allt „góða" fólkið sér sér þá leik á Dæmi um auglýsingar ó einkamal.is borði, þá er hætt við að framtaks- samt fólk hefji sitt eigið markaðs- starf á vefnum. Miður væri ef einkamai.is, sem áreiðanlega hefur gagnast mörgu fólki sem hefur átt erfitt með að fóta sig á hinum hefðbundnari „veiðistöðum", yrði að markaðstorgi vændis og „eró- tískrar" framleiðslu. Nokkuð er far- ið að bera á slfkri þróun, bæði á einkamal.is og víðar á netinu. Að halda í ímynd vefsins sem stefnu- mótaþjónustu og koma í veg fyrir að hann verði að sölubás hins ört vaxandi kynlífsiðnaðar á íslandi er verðugt framtíðarverkefni stjórn- enda vefjarins og eigi öfundsvert. Erótík og klóm fyrir konur 9 0 ? <8 o © / m Woman-Centered Superior Chemistry Lesbijn Unconventionjl Sjfer Sex Independently Exœllent Cast with Á næstu opnu kemur fram að kon- ur hér á landi kaupa ekki klám á myndböndum enda er nánast ekk- ert til hér á landi af efni sem höfð- ar til kvenna. Þá kemur sér vel að hafa aðgang að netinu en þar geta femínistar af öllum kynjum fundið heilmikið af erótík, allt eftir smekk og kynhneigð. Hlutafélagið Cood Vibrations starfar í San Francisco og var stofnað á áttunda áratugnum af kynlífsráðgjafanum Joani Blank. Á vefsvæði þess, www.goodvibes.com, eru sýnd kynlífsleikföng og bækur, einnig myndbönd sem eru sögð vera mótvægi við þá meðal- mennsku og skilningsleysi á þörf- um kvenna sem einkennir markað- inn. Til að auðvelda leitina eru myndirnar flokkaðar, t.d. Erotic Drama, Sex & Comedy eða Porn Noir Fjallað er um hverja mynd og þær merktar, t.d. „góð myndataka", „óhefðþundið kynlíf" og „kvenna- tengt efni". Á tenglasafni síðunnar er áhugaverður listi yfir vefsvæði sem fjalla jákvætt um kynlíf. Má þar nefna veftímaritið Clean sfieets og heimasíður kvenna eins og klám- stjörnunnar og listakonunnar Annie Sprinkle eða Betty Dodson sem sérhæfir sig í kennslu í eró- tísku kynlífi. Mikill fjöldi kynlífsverslana er á netinu, t.d. www.grandopening.com sem raðar myndböndum eftir málaflokkum og vinsældum leik- stjóranna sem oft eru konur. Þar má t.d. nefna Candidu Royalle og Ninu Hartley sem leika einnig í klámmyndum. Áslóðinni comeasyouare.com er kynlífs- verslun í eigu kvenna í Toronto þar sem boðið er upp á myndbönd og gefin góð ráð um val á klámi og erótík, og www.babeland.com er vefsvæði verslunarinnar Toys in Babeland í New York. Það kom mér á óvart að finna einnig síður sem ætlaðar eru konum en minntu mjög á síður sem ætiaðar eru körlum, t.d. queenerotica.com. Alls staðar voru skjámyndir að áreita eða aug- lýsingaborðar að reyna að lokka inn á önnur vefsvæði. En víst er að efni um kynlíf á netinu er fjölbreyt- tara en það sem fæst í verslunum á íslandi. O 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.