Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 37
Hinir óbifanlegu
ofbeldismenn
Alþjóðleg róðstefna ó Hótel Loftleiðum
25.- 27. ógúst
Norrænar konur gegn ofbeldi munu halda sína áttundu
ráðstefnu á fslandi í sumar. Þetta eru regnhlífarsamtök
kvennaathvarfa á Norðurlöndunum og það eru Stíga-
mót sem undirbúa hana í samvinnu við Kvennaathvarf-
ið, Bríeti - félag ungra femínista og Veru.
Um er að ræða tímamótafund í tvennum skilningi.
Annars vegar er nýjum femínískum hópum boðið undir
regnhlffina í tengslum við ráðstefnuna og um leið er
þeim gefinn kostur á að mynda eigin tengslanet. Þessir
hópar eru fræðslumiðstöðvarnar um sifjaspell og
nauðganir, en þær eru á milli 30 og 40. Ungir feminist-
ar á Norðurlöndunum hafa fundið sér ýmis óhefðbund-
in vinnuform, en eiga fullt erindi á þessa ráðstefnu þar
sem þeir hafa barist gegn klámi, vændi og verslun með
konur, auk þess að hafa opnað eigin stelpnaathvörf f
Svíþjóð. Kvennapólitísku tímaritin munu bæði skrifa
um ráðstefnuna og halda eigin fund. Allir þessir hópar
eiga það sameiginlegt að hafa ekki tengst á norrænum
vettvangi og vonandi tekst þeim að stilla saman
strengi.
Það sem e.t.v. er enn merkara er að eftir 20 ára um-
tal um kynferðisofbeldi og þær konur og börn sem fyrir
þvf verða ætlum við að þessu sinni að beina kastljós-
inu að þeim sem ábyrgðina bera - ofbeldismönnunum.
Það eru hinir ósýnilegu, óumtalanlegu, óhreyfanlegu
og ódæmanlegu ofbeldismenn sem eru vinnuveitendur
bæði kvennaathvarfanna og fræðslumiðstöðvanna.
Ráðstefnan verður þrískipt. Haldnir verða fyrirlestr-
ar, tengslafundir einstakra hópa og vinnuhópar um
ýmis þemu. Fyrirlesarar eru allar heimsþekktir
femínistar og fræðikonur. Þær eru dr. Janice Raymond
frá Alþjóðasamtökum gegn verslun með konur, pró-
fessor Liz Kelly frá Englandi sem nýlokið hefur evr-
ópskri úttekt á kærum og dómatíðni í nauðgunarmál-
um m.a. í samvinnu við Stígamót, dr. Rosa Logar frá
Austurríki sem mun segja frá austurrísku lögunum sem
heimila að fjarlægja ofbeldismenn frá heimilum sínum
og prófessor Maud Eduards frá Stokkhólmi sem mun
ræða um karla sem hóp í tengslum við óþægileg mál-
efni eins og kynferðisofbeldi.
Ráðstefna þessi mun vonandi verða mikilsvert inn-
legg í íslenska umræðu um kynferðisofbeldi í sinni víð-
ustu mynd. Rúna }ónsdóttir
O
VERULEGUR SPARNAÐUR