Vera


Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 48

Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 48
Konur og atvinnulíf Jóna Fanney Friðriksdóttir Mynd: Þórdís Ágústsdóttir Af frumkvöðlum relía Eydís Guðmundsdóttir, vinnumark- aðsfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík, hélt á dögunum athyglisvert og Iíflegt erindi á morgunverðarfundi Fé- lags kvenna í atvinnurekstri (FKA). í erindi sínu fjall- aði Árelía Eydís m.a. um frumkvöðla í atvinnurekstri og mismunandi stjórnunarstfl kvenna og karla. Atvinnulífið mótað af karlmönnum „Góð stýring er nauðsynleg hvort sem um er að ræða lítið, millistórt eða stórfyrirtæki. Spurningin er bara hvaða stjórnunarstíll á best við okkur. Atvinnulífið er mótað af karlmönnum og við konur eigum ekki að ganga inn í þann heim með karllæg gildi að viðmiði. Þvf formfastara og hefbundnara sem fyrirtæki er virð- ist það síður henta konum. Við eigum að vera við sjálfar og nýta okkur það sem við erum sterkastar í. Aðeins þannig náum við hámarksárangri og njótum okkar." segirÁrelía Eydís. Frumkvöðlakonur þora Því er stundum varpað fram að konur séu áhættu- fælnar. Ef við lítum hins vegar á það sem einkennir góðan frumkvöðul þá er óhætt að fullyrða að konur sem sett hafa á stofn eigin fyrirtæki séu vart áhættu- fælnar. Spennuffklar væri nærtækari lýsing. Því það fylgir því alltaf áhætta og aukin ábyrgð að gerast sjálf- stæður atvinnurekandi. „Umfram allt er það þó þrjóska, þrautseigja og úthald sem einkennir góða frumkvöðla," segir Árelía „og það að þora að gera mistök og læra af þeim. Thomas A. Edison fann upp Ijósaperuna eftir hátt í 600 tilraunir. Hefði hann gefist upp á tilraun númer 583 - hvað þá?" , flóm og fílum Konur eiga að keppa úífró eigin gildum Árelía segir að frumkvöðlar helgi sig yfirleitt mál- staðnum af lífi og sál. Þau líta á viðfangsefnið sem spennandi áskorun þrátt fyrir að öryggið um mánað- arlegt launaumslag bíði ekki á skrifborðinu um hver mánaðamót. Frumkvöðlar keppa út frá eigin stöðlum en ekki þjóðfélagslegum gildum. Oftar en ekki hafa þau hærri metnað en margir í kringum þau. Úthald, keppnisskap og langtímahugsun er mikilvæg fyrir þau sem vilja koma eigin hugmyndum í framkvæmd. Fló eða fíll? Mikil hreyfing hefur verið á íslenskum vinnumarkaði undanfarin misseri þrátt fyrir að fræðingar telji að framboð atvinnu fari minnkandi með viku hverri. Eft- irspurn eftir vinnuafli hefur leitt til þess að fólk staldrar oft stutt við á vinnustað. Um leið og betri kjör bjóðast er starfsfólkið oft flogið. Launin skipta vissulega máli og spyrja má hvort gamla góða starfs- mannatryggðin (gullúr eftir 25-30 ár!) sé á undan- haldi. „Starfsfólk er að sjálfsögðu mismunandi að upplagi," segirÁrelfa. „Ég líki starfsfólki stundum við flær og fíla. Fílarnir eru þunglamalegir og illhreyfan- legir. Flærnar hoppa án vandkvæða einn og hálfan metra til að fá útrás. Hvað nýsköpun varðar er það einmitt stökkkraftur flónnar sem stjórnandinn vill halda í. Sköpunin og áræðið. Flónni líður ekki vel sé hún sett í lokaða krukku, því sé hún kúguð eða bæld fá stökkhæfileikar hennar ekki notið sín. Lítið þýðir að ýta við fílnum, hann vinnur á seiglunni. Bæði flærnar og fílarnir hafa sína kosti og sína galla. Hins vegar er alveg Ijóst að flóin og fíllinn kalla á mismun- andi „kjörskilyrði" og myndu því varla njóta sín í sama starfsumhverfi," segirÁrelía að lokum. Nánari upplýsingar um starfsemi Félags kvenna í at- vinnurekstri er hægt að fá á heimasíðu þess www.fka.is o Reiöubúin aö taka hæfilega óhættu Hæf til að fást viö mistök Taka tillit til ábendinga Hafa frumkvæði ReiÖubúin aö axla ábyrgð Keppa út frá eigin metnaði og gildum Uthald og langtímahugsun Raunsæi Þrjóska og þolinmæði Setja sjálfum sér skilgreind markmið Geta starfað við óvissu Sjálfstraust 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.