Vera


Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 72

Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 72
Lilja Hjartardóttir Konur í öðrum löndum Fró Sameinuðu þjóðunum Friðarverðlaun handa konum Ný og ágæt heimasíða um alþjóðleg baráttu- mál kvenna, starf Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna auk gagnasafna er www.un.org/ womenwatcfi/ . Þar er að finna upplýsingar og marg- víslegar skýrslur um fjölmörg málefni, Hinn 8. mars s.l. var alþjóðlegur baráttudagur kvenna haldinn í 90. skipti og reyndar var allur marsmánuður tileinkaður konum. Saga þessa merkisdags er skráð á www.un.org /ecosocdev/geninfo/women/womday97.fitm Mary Robinson mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna (UN Human Rigfits Commissioner) og fyrrver- andi forseti írlands hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram í embættið. Hún telur sig geta áorkað meiru með því að standa fyrir utan samtökin en sjálf- stæði hennar í embætti fer fyrir brjóstið á mörgum ríkisstjórnum. Víst er að mörg mannréttindasamtök munu sækjast eftir starfskröftum hennar. Alþjóðleg ráðstefna gegn kynþáttahatri, kynþátta- misrétti, útlendingaandúð og öðru umburðarleysi verður haldin í Durban í Suður-Afríku 31. ágúst - 7. september á þessu ári. Allar upplýsingar eru á síð- unni www.un.org/VJC/kW Ruta Pacifica de las Mujeres, eru öflug regn- hlífarsamtök kvennahreyfinga sem vinna að frið- samlegri lausn deilna í Kólumbíu þar sem of- beldið lamar möguleika kvenna til mannsæm- andi lífs og samfélagið er í brotum eftir áralöng átök. Samtökin eru í dag sterkasta röddin í hinu borgaralega samfélagi í Kólumbfu. Þau skipu- leggja ráðstefnur, afla gagna og upplýsinga um mannréttindabrot gegn konum og dreifa til fjöl- miðla og yfirvalda. Veneranda Nzambazamariya frá Rúanda lést á s.l. ári, rúmlega fertug að aldri. Hún var leiðtogi kvenna í Rúanda, brautryðjandi og öflug f starfi fyrir afrískar konur. Hún var ein þeirra sem tóku af alefli þátt í að endurreisa sundrað og skelfingu lostið samfélag eftir þjóðarmorðin árið 1994. Veneranda Nzambazamariya var ein af stofnend- um Reseau des Femmes og Pro-Femmes Twese Hamwe sem eru þekktustu kvennasamtök í Rú- anda. Hún kom á fót friðarhreyfingunni Campagne Action pour la Paix sem hafa hlotið alþjóðleg verðlaun. Flora Brovina Friðarverðlaun þúsaldar handa konum voru veitt í fyrsta skipti á alþjóðleg- um baráttudegi kvenna 8. mars s.l. UNIFEM, Þróunarsjóður kvenna hjá Sameinuðu þjóðun- um, (www.unifem.undp.org) og International Alert, sem eru mannréttindasamtök í London, ákváðu að verðlauna framlag og störf kvenna fyrir friði í stað þeirrar viðteknu venju að líta ein- göngu á konur sem fórnarlömb stríðsátaka. Framlag þeirra er sjaldnast metið en konur hafa í gegnum tíð- ina unnið að því að brúa bilið milli stríðandi afla og oft tekst þeim að koma í veg fyrir algjöra upplausn samfélagsins. Víst er að það eru konur sem hjálpa konum. Verðlaunahafarnir voru þær Flora Brovina, stofnandi Bandalags albanskra kvenna í Kosovo, bar- áttukona, barnalæknir og ljóðskáld í Kosovo. Hún hefur lagt mikla áherslu á samvinnu þjóðarbrotanna og samvinnu kvenna frá lýðveldum fyrrum lúgóslavíu og var fangelsuð í Serbíu fyrir skoðanir sínar. Hún hefur fengið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga. Syst- urnar Asma Jahangir og Hina Jilani í Pakistan fyrir áratuga baráttu sfna fyrir réttindum kvenna í heima- landi sínu. Leitana Nehan Papua Nýju Gíneu. Auk þess samtökin Konur í svörtu, sem stofnuð voru árið 1988 (wib.matriz.net) en þau standa fyrir þöglum mótmælum svartklæddra kvenna víða um heim. Sam- tökin eru sérstaklega virk í ísrael og á Balkanskagan- um. Friðarverðlaun Nóbels voru veitt alla síðustu öld eða frá 1901. Tíu konum hlotnaðist heiðurinn, þær eru: Jodi Williams árið 1997 fyrir baráttu gegn jarð- sprengjum, Rigoberta Mencu Tum árið 1992, frá Gvatemala, m.a. fyrir baráttu hennar fyrir réttindum frumbyggja, Aung San Suu Kyi árið 1991, leiðtogi lýðræðisafla í Burma, Alva Myrdal 1982, frá Svíþjóð, tók m.a. virkan þátt í baráttunni fyrir afvopnun, Móðir Theresa árið 1979, frá Albaníu, fyrir starf með- al fátækra á Indlandi, Betty Williams og Mairead Corrigan árið 1976, þær stofnuðu Friðarhreyfingu Norður írlands, Emily Greene Balch árið 1946, pró- fessor í sögu og félagsfræði, heiðursforseti WILPF (Women's lnternational League for Peace and Freedom), Jane Addams árið 1931, félagsfræðingur og forseti WILPF, og Bertha Sophie Felicita von Suttner árið 1905, rithöfundur frá Austurríki. O SKIPHOLTS APÓTEK 72
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.