Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 67
Videodómar
Drop Dead
Gorgeous
Michael Patrick Jann, 1999
Þarna er á ferðinni verulega hressi-
leg ádeila á fegurðarsamkeppnir,
sett upp sem gerfi-heimildamynd.
Myndin er öll ýkt - og kemst þess-
vegna upp með gagnrýnina - og
segir frá því að í smábæ í Banda-
ríkjunum er verið að setja upp ár-
iega fegurðarsamkeppni sem er
styrkt af einhverju snyrtivörufyrir-
tæki. Mæður og dætur bókstaflega
berjast, eitra hver fyrir annarri og
leggja allskonar gildrur fyrir keppi-
nauta sfna. Þrátt fyrir að grínið
beinist að stelpunum þá er áhersl-
an á hysteríuna og fáránleikann í
kringum fegurðariðnaðinn. Bráð-
fyndin mynd sem kom skemmti-
lega á óvart, og endirinn, hann er
gull! Þetta eralvöru Úngfrú
femfnismi.is.
Clueless
Amy Heckerling, 1996
Heathers
Michael Lehman, 1989
Líkt og 10 Things I Hate About You
er Clueless nútfmaaðlögun, á skál-
dögunni Emmu eftir )ane Austen.
Og líkt og í Miss Congeniality fjall-
ar Clueless að hluta til um það
hvernig tvær vinsælustu og sæt-
ustu stelpur skólans, Cher og
Dionne, taka lúðuna Tai og breyta
henni í glæsipfu. Leikstjórinn og
handritshöfundurinn Amy
Heckerling nær alveg ótrúlegum
blæbrigðum út úr þessu lánaða
plotti sínu; írónían er leiftrandi,
bæði á samfélagið - sem er hið
glæsta Beverly Hills - og aðalper-
sónurnar, án þess þó að dissa þær
á nokkurn hátt því samúðin er all-
an tímann með hinni glórulausu
Cher, sem er náttúrulega, eftir allt,
allsekki svo glórulaus. Takið eftir
hvað margir af statistum í bak-
grunni myndarinnar eru með
plástur yfir nefinu!
Heathers er ein af þessum gömlu,
klassfsku skólamyndum sem verð-
ur barasta að minna á annað slag-
ið. Ein af fyrstu myndum Wynonu
Ryder sem sýnir þarna strax hvers
hún er megnug, en hún er kannski
róttækasta unga leikkonan sem
Hollywood býður upp á í dag. He-
athers er klúbbur hinna útvöldu
ofurbeiba skólans, klappstýra og
aðalpíanna. Þær ráða öllu og eiga
séns í alla sætu strákana. Veronica
(Wynona) fær inngöngu í félags-
skapinn en er ekki nægilega sann-
færð; hún hittir Jason (Christian
Slater) sem er líka mjög gagnrýn-
inn á Heathers stöllurnar og því
sem þær standa fyrir. Nema hann
ákveður að gera eitthvað í málinu!
Ein af þessum myndum sem skipt-
ir um kvikmyndagrein í miðri
mynd. Ómissandi.
O
við stýrinu í Speed En af því hún er falleg og
leggjalöng þá má hún ekki leika gegn róman-
tísku kómedíu ímyndinni og verður að vera
virkilega hugguleg alltaf og sæt.
A undanförnum árum hefur komiö út
sægur af svona stelpuhópamyndum. Vikuna
eftir að Miss Congeniality var frumsýnd kom
fnyndin Sugar and Spice (Francine McDoug-
all, 2001) í bíó en það er klappstýrumynd líkt
og Bring lt On (Peyton Reed, 2000), sem var
hér f kvikmyndahúsum fyr á árinu. Söguþráð-
ur Sugar and Spice minnir pínulítið á sögu-
þráði nn í svartri stelpuhópamynd Set lt Off
(F. Gary Gray, 1996) sem vakti þónokkra at-
hygli á sínum tíma.
Onnur mynd sem minnir á Miss Congeni-
ality er 10 Tfiings 1 Hate About You (Gil )un-
ger, 1999), en þar er um að ræða nútímaað-
'ögun á leikriti Shakespeare The Taming of
the Shrew, eða Skassið tamið. Sú mynd segir,
líkt og Miss Congeniality, frá því að það þarf
að hemja einhvern snefil af kvenleika inn í
skólastúlku svo systir hennar komist á
stefnumót. Það sem gerði þá mynd mun eft-
'tminnilegri og áhugaverðari en Miss Con-
geniality var að þar voru á ferðinni mun
snarpari umræður um kynhlutverk í banda-
r,sku samfélagi. Ég skemmti mér yfir þeirri
mynd! En það er nú bara af því ég er dálítill
femínisti. O
Opið: 9 - 18, laugard. 10-14
Garðatorgi 3 • S: 565 6680