Vera - 01.04.2001, Blaðsíða 66
femínisti.is
//Við erum dálitlir femínistar", er haft eftirÁstu Kristjánsdóttur, öðrum eig-
anda Eskimó-módels, í netgrein í USA Today sem fjallaði um ferð 260 amerískra
karla á fegurðarsamkeppnina Ungfrú fsland.is. Og það er væntanlega af því þær eru
dálitlir femfnistar sem þær koma ekki fram í baðfötum. Dómarinn, Baldvin Jóns-
son, segir að íslenskar konur séu sjálfstæðari, betur menntaðar og séu í fleiri
valdastöðum en áður. Þær hafi verið aldar upp til að vera stoltar af sjálfum sér og
sagt að þær séu einhvers virði. „Þetta er fegurð með markmið," segir Baldvin.
Þegar ég fékk þessa grein senda frá Bandaríkjaskrif-
stofu Flugleiða, sem dæmi um hvað íslenskur túrismi
væri í góðum málum, þá var ég nýþúin að sjá kvik-
myndina M/ss Congeniality (Donald Petrei, 2000),
með leikkonunni Söndru Bullock í aðalhlutverki. Og
ég gat ekki annað en borið tóninn saman: í þeirri
mynd er stjórnandi keppninnar einmitt alltaf að
hamra á því að þetta sé ekki bara fegurðarsamkeppni,
þetta sé keppni um námsstyrki.
Söguþráður myndarinnar er á þá leið að alríkislög-
reglan hefur komist að því að það á að sprengja upp
fegurðarsamkeppnina, Ungfrú Bandaríkin. Til að
sporna gegn þessu er ákveðið að einn fulltrúinn
smygli sér inn í keppnina og komist þannig í innsta
hring, og í veg fyrir sprengjuna. Fyrir valinu verður
Gracie Hart (Sandra Bullock) en hún er alls ólíkleg til
verksins, groddaleg og karlmannleg á ýktan hátt, og
hefur gert allt til að falla í karlahópinn. Hún hefur
einnig verið nokkuð óheppin með þau mál sem hún
vinnur að og hefur klúðrað allavega svosem einu. Fé-
lagi hennar er íðilfagur kvennabósi, sem eltist
stöðugt við kiappstýrur og álíka kvenpening, og það
er greinilegt að Gracie er skotin í honum í laumi en
hann lítur ekki á hana sem konu...
Núnú, það þarf ekki að orðlengja það að þjálfara
fegurðarsamkeppninnar (Michael Caine) tekst á
nokkrum dögum að gera alvöru konu úr gripnum, en
Gracie kemst fljótlega í snertingu við sína innri konu
og uppgötvar að þetta er í raun allt alveg ágætt, þess-
ar stelpur eru raunuverulega klárar og skemmtilegar
og að hún getur ekki lengur verið á móti slíkum
skrokkasýningum. „Ég hugsaði einu sinni eins og
þessir femínistar," segir hún á einum stað „og var á
móti öllu svona."
Afturhaldssamar hugmyndir um lcvenleika
Myndin gefur sig í upphafi út fyrir að vera ádeila á
fegurðarsamkeppnir og vissulega er í henni að finna
nokkur föst skot. En fegurðarkúltúr Bandaríkjamanna
er greinilega of sterkur til að óhætt sé í svona
„mainstream" mynd að skjóta hann niður. Því kemur
einmitt í Ijós hvað þetta er allt ágætt, og má barasta
alveg, jájá, og konur þurfa jú að finna kvenleikann -
allavega ef þær eiga að ná f manninn sem þær vilja,
því auðvitað heillast kvennabósinn af félaga sínum
þegar hann sér hvað hún getur verið kvenleg.
Þannig getur Miss Congeniality tekið undir með
Ástu og sagst vera svona dálítill femínisti. Mér finnst
það dálítið merkilegt hvað kvennamyndir af þessu
tagi, sem hafa alla burði til að vera dálítið róttækar
(takið eftir þessu með dálítið, ég er ekki að biðja um
byltingul), klikka á því. Því þrátt fyrir nokkra góða
punkta þá er boðskapur Miss Congeniality yfirgnæf-
andi afturhaldssamur hvað varðar ímyndir kvenna og
hugmyndir um kvenleika. Sandra Bullock, sem er einn
af framleiðendum myndarinnar, er mjög góð grínleik-
kona og hefur upp á miklu meira að bjóða en stereó-
týpur af þessu tagi, eins og hún sýndi þegar hún tók
66
lUopsBoQ