Vera - 01.08.2001, Side 3
Blað fyrir hugsandi fólk
Hjúkrunarfræðingurinn og pönkarinn Sigurður
Harðarson heldur úti heimasíðu og á henni
mátti nýlega lesa eftirfarandi texta: „Á bóka-
búðagramsinu sé ég tímaritaflóruna sem frekar sorg-
lega. ... Eina tímaritið sem hefur eitthvað að segja er
Kvennablaðið VERA. í VERU eru stutt viðtöl við fólk
sem saman mynda þverskurð af samfélaginu í staðinn
fyrir yfirstéttardýrkun hins draslsins. Þarer umfjöllun
um fordóma á íslandi frá sjónarhóli þeirra sem verða
fyrir fordómunum í staðinn fyrir yfirborðslega umfjöll-
un um ástandið í samfélaginu með dæmum uppúr
kennslubók í félagsfræði. VERA bendir á hin
félagslegu krabbamein eins og afleiðingar kapital-
ismans í launamisrétti og afleiðingar þjóðrembunnar
í fordómum. VERA er ekki bara blað fyrir konur heldur
og fyrir karlmenn sem vilja og þurfa að skilja betur
gang samfélags okkar."
Flott, Sigurður! Kærar þakkir fyrir þessi fallegu
ummæli, segjum við hér á Veru. Við gleðjumst yfir því
að sú áhersla sem við höfum lagt í umfjöllun okkar
undanfarið hefur skilað sér út í samfélagið, m.a. það
að VERA er ekki eingöngu blað fyrir konur, heldur
hugsandi fólk af báðum kynjum. Við erum enn þá
sannfærðar um að mikil þörf sé fyrir rödd VERU í sam-
félagsumræðunni og hvetjum allt stuðningsfólk til að
styrkja hag hennar með fleiri áskrifendum og/ eða
hluthöfum. Fyrsti aðalfundur hins nýja hlutafélags um
VERU verður í september og þá gefst tækifæri til að
ræða hvernig við getum styrkt undirstöðurnar og
haldið áfram að gefa út gott blað.
í þessu tölublaði er fjallað um ýmis mikilvæg sam-
félagsmál, svo sem alkóhólisma kvenna, einelti á vin-
nustöðum og nýafstaðna ráðstefnu í Vilnius þar sem
áhersla var lögð á mansal og vændi. Aðalviðtalið er
við kvenhetjuna og hæstaréttarlögmanninn Sif
Konráðsdóttur sem hefur berist ótrauð fyrir réttlætinu
í umdeildu kynferðisbrotamáli. Málinu er ekki lokið,
það býður niðurstöðu mannréttindadómstólsins í
Strassbourg og í júlí úrskurðaði héraðsdómur að í
málinu hafi |ón Steinar Gunnlaugsson brotið mikil-
væg ákvæði laga um meðferð opinberra mála. Enn er
svo rekið stjórnsýslumál fyrir landlækni vegna ófagle-
gra vinnubragða geðlæknis sem að málinu kom. Það
má því með sanni segja að Sif Konráðsdóttir berjist
við dreka á ýmsum vígstöðvum.
+ PLÚS
Þórey Edda Elísdóttir
fyrir frábæran árang-
ur á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum.
Þórey Edda varð sjötta í stangarstökki og þarf
að fara tíu ár aftur í tímann til að finna sam-
bærilegan árangur íslendings á heimsmeistara-
móti í frjálsum íþróttum.
fyrir að halda alþjóðlega ráðstefnu,
ásamt fleirum, fyrir hönd samtakanna Norrænar
konur gegn ofbeldi. Yfirskrift ráðstefnunnar var:
Hinir óbifanlegu - ofbeldismenn, og hana sóttu
um 200 konur frá Evrópu og Bandaríkjunum.
Nánar verður sagt frá ráðstefnunni í næstu
VERU.
fyrir að vera vakandi gagnvart
málefnum innflytjenda og fjalla um þau með því
að tala við fólk af öðru þjóðerni sem vill búa
hér á landi.
Fréttablaðið
MINUS
1
fyrir klámsíð-
una og klámmenguð skrif sem þeim virðist
finnast alveg sjálfsögð. Það er einmitt fjölmiðill
af þessu tagi sem mótar það viðhorf hjá ungu
fólki að líkami kvenna sé bara kyntákn sem
sjálfsagt sé að tala niðurlægjandi um.
og þá einkum barnaklám sem allt of
auðvelt er að nálgast. Hvaða áhrif hefur það
þegar það verður daglegt brauð í vefskoðun að
rekast á gróft klám eða fá það sent í tölvupósti?
yrir að auglýsa Bleikt og
Blátt áður en byrjað er að sýna barnamyndir
klukkan tvö á daginn.