Vera - 01.08.2001, Qupperneq 6
Af hverju heldur þú að launamisrétti
á milli kynja sé til staðar á íslandi?
Sigrún Siggeirsdóttir
Er það ekki bara vegna þess að
hinir ríku verða alltaf ríkari?
Július Snorrason
Líklega vegna þess að þær hafa
verið skemur á vinnumarkaðinum.
Gróa Eiðsdóttir
Af því að við konur erum ekki
nógu harðar að berjast.
Þórarinn Þórarinsson
Lífið er ósanngjarnt.
Guðrún Meyvantsdóttir
Þetta er bara einhver gömul hefð
sem hefur enn ekki breyst.
Adam Örn Jóhannsson
Vegna þess að vinnuveitendurnir
komast upp með það.
Sjöfn Kjartansdóttir
Af því að það er meiri hefð fyrir
því að karlar vinni úti í launuðum
störfum.
Ágúst Bogason
Þetta má rekja til kristinnar trúar
og gamalla fordóma tengdum
henni. Konur mættu líka vera
kröfuharðari við að ganga á eftir
rétti sínum.
KONUR VIÐ VÖLD í ASÍU
Chandrika Kumaratunge er forseti Sri Lanka,
HMH móðir hennar, Sirimavo Bandaranaike, var
I fyrsta konan í sögunni til að gegna embætti
j , ® forsætisráðherra.
Chokila lyer er
utanríkisráðherra
indlands.
Gloria Macapagal
Arroyo er forseti
Filippseyja.
Madior Moye er forsætisráðherra Senegal.
| INDÓNESÍA Nýlega tók við embætti forseta
Indónesfu Megawati Sukarnoputri, dóttir Sukarno
I fyrrverandi forseta sem var bolað frá völdum 1967
af Suharto, sem síðan réð lögum og lofum í land-
inu í rúm þrjátfu ár. Megawati hefur heitið því að
koma á lögum og reglu og hefur beðist afsökunar á mannrétt-
indabrotum sem framin voru í tíð fyrirrennara hennar. Hún er
demókrati en varaforseti hennar er Hamzah Haz, leiðtogi sam-
einaða þróunarflokksins, sem er múslimskur stjórmálaflokkur.
Ekki horfir þyrlega fyrir samstarfi þeirra en Haz hefur sagt að
kona væri ekki hæf til að stjórna fjölmennustu og fremstu
múslimaþjóð í heimi.
Lesendabréf
Kæru Verur:)
Mamma mfn hefur verið áskrifandi að Veru frá upphafi. Allir í
fjölskyldunni lesa blaðið og stundum skapast miklar umræður
um einstök efni. Þegar við systir mín vorum litlar og skildum ekki
allt sem við lásum voru umræðurnar yfirleitt tengdar spuming-
um okkar og útskýringum pabba og mömmu en núna snúast þær
meira um hvaða afstöðu hver tekur til einstakra mála og rök fyrir
afstöðunni. Það má margt læra af Veru. f viðtölum kemur margt
athyglisvert fyrir og oftast segir viðmælandinn eitthvað sem fær
mann til að hugsa eða taka sértil eftirbreytni. Þannig fáum við
fyrirmyndir í Veru. (Mér finnst oft koma fram í blaðinu það við-
horf að stelpur vanti fyrirmyndir. Mín skoðun er hins vegar sú að
okkur vanti ekki fyrirmyndir heldur þurfi bara að gera allan þann
aragrúa af fyrirmyndum sem eru í kringum okkur sýnilegar. Það
tekst til dæmis með góðum viðtölum.) Vera tekur líka á málum
líðandi stundar bæði hér heima og erlendis. Það er alltof auðvelt
að útiloka sig frá öllu því hræðilega sem er að gerast í dag. Um-
ræðan ykkar „vekur" okkur og er undanfari aðgerða til að bæta úr
því sem betur má fara. Þegar ég fór að hugsa um þá hluti sem ég
hef lært af Veru fékk ég hugmynd: Hvernig væri að gefa áhuga-
sömum kennurum nokkrar Verur til að leggja út frá í umræðum
við nemendur? Frumskilyrði er auðvitað að þessir kennarar hafi
áhuga og vilji nota Veru við kennslu. Blöðin mætti t.d. nota til
að skapa umræður í lífsleikni eða samfélagsfræðitfmum. Þetta
þyrftu ekki endilega að vera nýjustu blöðin, bara að kennaranum
finnist þema blaðsins áhugavert og telji að nemendum sínum
komi til með að finnast það líka. Það eru nefnilega ekki svo
margir krakkar, einhverra hluta vegna, sem vita að Vera er til og
mér finnst að til þess að vekja athygli á Veru meðal þeirra sé
þetta betri kostur en að dreifa dýrum auglýsingum. í síðustu
Veru hófst liður í blaðinu sem mér líst mjög vel á um að segja
sína skoðun og skora á einhvern annan að gera hið sama. Einnig
finnst mér skyndimyndin alltaf skemmtileg og þættirnir um tón-
list, bókmenntir, kvikmyndir, leikhús, framandi menningu og
fleira ómissandi. Mig langar að óska ykkur alls hins besta í
framtíðinni með Veru og endilega haldið áfram að hafa efnið
svona fjölbreytilegt eins lengi og þið getið.
Kær kveðja,
Bjarnheiður Kristinsdóttir
6