Vera - 01.08.2001, Page 18
Faldi sjúkdómurinn
Gódar stelpur
drekka el
Mynd: Þórdís
Alkóhólismi kvenna er feimnismól, þrótt fyrir nokkuð opin-
skóa umræðu síðustu óra um þennan sjúkdóm. Astæðuna mó
ón nokkurs vafa rekja til viðhorfs samfélagsins til kvenna og
til viðhorfs kvenna gagnvart sjólfum sér. Þrótt fyrir langa og
stranga kvenfrelsis- og jafnréttisbaróttu, þó er staðreyndin sú
að konur eru enn aldar upp til þess að verða mæður og eig-
inkonur og ætlast er til þess af þeim að þær sinni umönnun
ýmist í launuðum störfum eða ólaunuðum. Konur sem brjóta
gegn viðurkenndum gildum eru enn þann í dag „ókonur" og
tæplega tækar í samfélag góðra kvenna og hvað þó karla.
Þetta ó að mörgu leyti við um konur sem veikst hafa af alkó-
hólisma. Fordómafull viðhorf til sjúkdómsins þegar konur
eiga í hlut koma í veg fyrir að konur leiti sér hjólpar í sama
mæli og karlar og hefur ennfremur þau óhrif að konurnar
einangra sig og eru að berjast einar við sjúkdóminn, sektar-
kenndina og skömmina. Sú barótta er dæmd til að mistakast.
Konur sem þjást af alkóhólisma eru
þverskurður af konum hvers samfélags.
Þær eiga aðeins það sameiginlegt að
vera að berjast við sjúkdóm sem samfé-
lagið hefur lítinn skilning á. Konur
drekka yfirleitt í felum, einar og yfirgefn-
ar. Fordómafullt viðhorf til alkóhólisma
kvenna veldur því að þær fá afar nei-
kvætt sjálfsmat og tilfinningalff þeirra er
markað sektarkennd og skömm. Þetta er
jafnhættulegt og sjúkdómurinn sjálfur.
Konur eru því mun líklegri til þess að
refsa sér fyrir sjúkdóminn en karlar og
síður líklegar til að fara í meðferð.
Konur sem þjást af alkóhólisma eru
líklegri en karlar til að vera beittar
þvingunum og ofbeldi af nánum að-
standendum. í Bandaríkjunum er það
hlutfallslega algengara að konur séu
þvingaðar f meðferð og sviptar sjálfræði
en karlar, þær hafa einnig oftar misst
fjölskyldu sfna þegar þær koma í með-
ferð. Á áttunda áratugnum var birt rann-
sókn í Bandaríkjunum sem sýndi að 90%
kvenna sem kom í áfengismeðferð hafði
misst tengsl við fjölskyldur sfnar en að-
eins 10% karla.
Það er engin furða þótt konur drekki
á bak við gluggatjöldin og geri sér upp
sjúkdóma til þess að fela sannleikann.
Þær forðast meðferð vegna þess að
sannleikurinn er of sár og þeim hefur
verið sagt að von um bata sé hverfandi.
18