Vera - 01.08.2001, Blaðsíða 21
árum eftir meðferð. Þessarárang-
urskannanir eru póstkannanir og fátítt
er að það sé minnst á hvert svarhlutfall
er. Einnig er vert að undirstrika að póst-
kannanir eru óáreiðanlegar, fólk er lík-
legt til þess að svara undir þóknunar-
áhrifum og þar með að segja ekki satt
frá. Hér á landi og erlendis eru endur-
komur í meðferð of algengar til þess að
hægt sé að tala um stórkostlegan ár-
angur. Þegar stór hópur fólks fer ár eftir
ár í afeitrun og í langtímameðferð, hlýt-
ur eitthvað mikið að vera að þeirri að-
ferð sem beitt er í meðferð. Það stenst
engan veginn að áiykta sem svo að
alkóhólistar séu bara svona lítt mót-
tækilegir og að sjúkdómurinn sé bara
svona. Það er talinn alvarlegur galli á
meðferð þar sem allir aldurshópar og
bæði kynin eru undir sama þaki og fá
nákvæmlega sömu meðferðina, þótt
einhver smávægilegur áherslumunur sé
þar á.
Konur ná ekki góðum árangri eða
bata af alkóhólisma fyrr en þær fara að
bera sjálfar ábyrgð á meðferðinni og
byggja hana upp á forsendum kvenna.
Slfk meðferð verður að vera framkvæmd
af konum fyrir konur.
Áfengi hefur
mun skaðlegri
áhrif á líkama
kvenna en
karla.
AA-samtÖkín í Reykjavík funda í gula húsinu, Tjarnar-
götu 20, alla daga og má lesa sér til um þau á www.aa.is.
Alanó er sjálfstætt starfandi líknarfélag, óháð öllu öðru,
þar með talið AA. Alanó fundar á Hverfisgötu 76 í Reykja-
vík og má finna allt um það með því að fikra sig eftir
www.alanoclubs.org
Konur í bata. Allar upplýsingar gefur Sölvína
Konráðsdóttir ábyrgðarmaður samtakanna.
Lesefni:
AA bókin. Sagan af því hvernig Bob og Bill stofnuðu AA
samtökin, ásamt reynslusögum.
Tólf reynsluspor og tólf erfðavenjur, gefið út af AA samtök-
unum. Dæmisögur og útskýringar á grundvallaratriðum AA.
24 stunda bókin. Bók sem margir AA félagar lesa daglega.
Hugleiðing hvers dags, íhugun og bæn.
Engill afkimans, eftir Pál J. Einarsson. Kynning á rannsókn-
um á alkóhólisma og tólfsporakerfi AA-samtakanna, ásamt
öðru skyldu efni.
Heimkoma/ Homecoming, endurheimtu og stattu með barn-
inu sem býr í þér, eftir John Bradshaw.
Healing the Shame That Binds You, eftir John Bradshaw. Við
erum full af skömm sem hamlar okkur og er grunnatriði í
allri fíkn. Við þurfum að horfast í augu við skömmina og
losa okkur við hana.
Leiðin til andlegs þroska/ The Road Less Traveled, eftir M.
Scott Peck. Að horfast í augu við og leysa vandamál - og
þola breytingarnar.
Transforming Your Dragons eftir José Stevens. Drekarnir eru
myndbirtingar ótta. Hroki, óþolinmæði, píslarvætti,
sjálfseyðing, græðgi, þrjóska og sjálfsfyrirlitning eru drek-
arnir sem þarf að berjast við til að ná tökum á óttanum.
Drykkja - ástarsaga, eftir Caroline Knapp. Sjálfsævisaga.
Gift, eftir Tove Ditlevsen. Sjálfsævisaga dönsku skáldkon-
unnar sem var gift lækni sem gaf henni eiturlyf.
Þessar bækur fást flestar í bókabúðum eða hjá
AA samtökunum.