Vera - 01.08.2001, Qupperneq 30
Jóhanna Vilhjálmsdóttir (56)
starfar á skrifstofu Málmtækni h/f
„Si'ðastliðin 13 ár hef ég stundað líkamsrækt í (azz-
ballettskóla Báru. Mér finnst mikill kostur að hér eru
eingöngu konur, það skapar alveg sérstakt andrúms-
loft og hún Bára hugsar svo vel um okkur. Ég mæti
fjórum til fimm sinnum í viku og er alltaf á sama
tíma á morgnana. Þetta er almenn leikfimi til að
styrkja og liðka skrokkinn. Við gerum teygjur, notum
lóð, palla og annað. Við erum um 20 konur á milii
fimmtugs og sextugs sem höfum kynnst vel af því að
vera saman í þessum tímum. Við höldum alltaf hóp-
inn og sumar okkar eru búnar að mæta hér í 30 ár!
Við hefðum sennilega aldrei kynnst nema af því við
mætum hér og við gerum líka ýmislegt saman fyrir
utan leikfimitímana. Við göntumst stundum með
það að við hittum hver aðra oftar en fjölskyldurnar
okkar. Við förum í óvissuferðir út fyrir bæinn, árlegt
jólahlaðborð og þegar stórafmæli er í hópnum þá
troðum við upp, syngjum og sprellum. Á meðal okk-
ar er hirðskáld og hún semur Ijóð til heiðurs afmæl-
isbarninu. Stundum förum við í göngutúra innan-
bæjar og tökum þá mennina okkar með. Þeir eru
farnir að þekkjast ágætlega og eru margir orðnir góð-
ir kunningjar. Við eigum líka vísan stuðning hver í
annarri ef erfiðleikar steðja að og það er miklis virði.
Þannig er félagslegi þátturinn þó nokkur hluti af því
að við mætum saman f leikfimi."
Theodóra Sigurðardóttir (33)
eigandi hárgreiðslustofunnar Salon Paris, Skúlagötu 40
„Ég átti þriðja barnið mitt í mars á síðasta ári og við það
bætti ég á mig nokkrum aukakílóum sem ég vildi gjarnan
losa mig við. Foreldrar mfnir gáfu mér f afmælisgjöf
þriggja mánaða gjafakort í Planet Pump í Frostaskjóli og
ég dreif mig loksins af stað í júní síðastliðnum, degi
áður en það var orðið of seint! Ég mæti þrisvar í viku í
æfingar hjá einkaþjálfaranum mínum honum Hannesi
Jónssyni sem setur upp æfingaprógramm fyrir mig, ráð-
leggur mér í mataræði og fylgist með þyngdinni. Svo
reyni ég að mæta tvisvar í viku þar fyrir utan. Ég hef ekki
farið í markvissa líkamsrækt í meira en áratug og mér
finnst þetta alveg frábært, bæði fyrir líkama og sál. Ég
finn mikinn árangur, ég er búin að styrkjast mikið og
missa tæp fimm kfló á einum og hálfum mánuði. Mér
líður betur með sjálfa mig, finnst ég vera heilbrigðari og
er þrælánægð með að þurfa að kaupa ný föt því þau
gömlu eru öll að verða of stór!" ______
■ + | Konur í ■
ikamsrækt
A haustin heita margar konur því að gera
átak í líkamsrækt. Hér segja þrjár konur
sína líkamsræktarsögu.
Kristín Heiða Kristinsdóttur