Vera - 01.08.2001, Side 36
Konur & lýðræöi r e y k
j a v í k
V i l n i u s
lengingu fæðingarorlofs fyrir starfsmenn okkar um allt að
38% umfram það sem almennt gerist en sú stefnubreyting
var kynnt starfsmönnum í júlímánuði sl. Þá höfum við
styrkt fjárhagslega verkefni tengd jafnréttisumræðunni
sem horfa til heilla í samfélaginu. Það sem mér fannst
vanta í ráðstefnuna var umræða um hvað fyrirtæki geta
gert til að hafa áhrif á þróun þessara mála. Vettvangur
sem þessi ertilvaiinn til að skiptast á hugmyndum um að-
gerðir þannig að þróun yrði hraðari en ef fyrirtæki væru öll
að feta sig varfærnislega áfram í þessum málum. Ég sakn-
aði því fleiri fulltrúa úr atvinnulffinu til að ég gæti kynnst
því hvað þeir væru að gera í þessum málum og til skoð-
anaskipta við þá. Þrátt fyrir góðan félagsskap kvenþátttak-
endanna þá tel ég að íslenskir karlmenn eigi að taka meiri
þátt í þessari umræðu þar sem jafnréttisumræðan á ekki
að vera einkamál kvenna.
Alda Sigurðardóttir,
fræðslustjóri VR
Ráðstefnan nýttist mér einstaklega vel þar
sem VR er að vinna að samvinnuverkefni sem fer af stað f
haust við verkalýðshreyfinguna í Litháen og Lettlandi, ASÍ
og sáttasemjaraembætti f Bandarfkjunum (FMSC). Þarna
skapaðist tækifæri til að læra betur um aðstæður á vinnu-
markaði í þessum ríkjum. Vinnustofan sem ég sat hét:
Economic and Labor Policy from gender perspective. Þar
kom m.a. fram að verkalýðshreyfingin er mjög veik í
Eystrasaltsríkjunum og atvinnuleysi allt upp f 30%.
Starfsmenn eru oft á tíðum látnir vinna mun lengur en
þeir fá greitt fyrir og gera það einungis til að halda vinn-
unni. í þessum ríkjum snýst baráttan fyrst og fremst um
almenn kjör og réttindi meðan baráttan á vesturlöndum
snýst um jafnrétti, m.a. um launamun kynjanna og hvernig
hægt sé að minnka hann. Samvinnuverkefnið sem VR tek-
ur þátt í miðar að þvf að styrkja og efla verkalýðshreyfing-
una í Litháen og Lettlandi og mun VR miðla af reynslu
sinni af rekstri frjálsra félagasamtaka. Á ráðstefnunni í Lit-
háen var tíminn vel nýttur og fundað með fulltrúum frá
FMSC og verkalýðshreyfingunni í Litháen og Lettlandi. Á
fundinum var farið yfir stöðu mála og rætt um þá aðstoð
sem ríkin þurfa einna helst á að halda.
£J
Þorbjörg H. Vigfúsdóttir, verkefnisstjóri Auðar í krafti kvenna
Ráðstefnan í Vilnius var gott tækifæri til að
kynna AUÐAR verkefnið fyrir öðrum löndum. AUÐUR hefur
á sfðasta 1 1/2 ári sannað að mikil þörf er á verkefni sem
þessu og gífurleg ásókn er í helstu verkefni AUÐAR (þ.m.t.
FrumkvöðlaAUÐUR, FjármálaAUÐUR og Dæturnar með í
vinnuna). Því fannst okkur mikilvægt að aðrir lærðu af okk-
ar reynslu. í vinnuhópnum Konur og frumkvöðlar kynnti ég
AUÐI fyrir viðstöddum og verkefnið fékk mikla eftirtekt. Ég
gat deilt út öllum þeim gögnum sem ég hafði með mér og
enn fleiri fengu upplýsingar um vefinn okkar. Því miður
fannst mér yfirskrift vinnuhópsins ekki samræmast þeim
umræðum og verkefnum sem fóru fram. Áhersian var á
læriverkefni (mentoring) á milli einstaklinga á Balkanskag-
anum og í Bandaríkjunum. Þetta voru hins vegar áhuga-
verð verkefni og sum tengisin tókust vel og önnur ekki. Þar
sem ver gekk virtist tungumálavandinn vera erfiður. Það
væri líklega árangursríkara að vinna svona læriverkefni
innanlands þar sem, auk þess að útiloka tungumálaerfið-
ieika, væri hægt að leita tíðar til lærimóður. Það sem mér
fannst áhugaverðast í Vilnius var að sjá öll verkefnin sem
höfðu orðið að veruleika eftir Reykjavíkurráðstefnuna og
að auki myndað bylgju ýmissa annara verkefna. Konurnar
á ráðstefnunni voru kraftmiklar og einbeittar í þvf að bæta
kjör sín og virðast vinna vel saman til að ná þessu sameig-
inlega markmiði.
Margrét Óskarsdóttir,
Landsvirkjun
Ég fór á þessa ráðstefnu sem fulltrúi
Landsvirkjunar, vegna þátttöku fyrirtækis-
ins í verkefninu Konur til forystu og jafnara námsval kynj-
anna. Landsvirkjun hefur hug á að bjóða stúlkum frá
Eystrasaltslöndunum upp á starfsnám og var markmið
mitt með þátttökunni að komast í samband við aðila í
Litháen sem gætu aðstoðað mig í þessu sambandi og
tókst það. Þátttakendum var skipt í 12 vinnuhópa. Ég fór í
hóp þar sem verið var að fjalla um ungt fólk. Stjórnandi
þess hóps var ung stúlka frá Litháen og var hún mjög
frambærileg og skemmtileg enda voru líflegar umræður í
hópnum. Gaman var að finna hlýhug þátttakenda til ís-
lands og að verða þess vör að ráðstefnan á íslandi mark-
aði upphaf að framtíðarverkefnum sem vonandi verða öll-
um að gagni í framtíðinni. Þetta starf verður að halda á-
fram. Það eru næg verkefni framundan. Ég fann ekki betur
en að allir hafi verið ánægðir með ferðina, a.m.k. gerðu
flestar konurnar góð kaup í „línbúðinni". Svo megum við
ekki gleyma Árna og Margréti, ræðismannshjónunum.
Þau gerðu þessa ferð ógleymanlega.