Vera - 01.08.2001, Page 37
Afar gagnleg ráðstefna
Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra
Ég tel að ráðstefnan í Vilnius hafi verið afar gagnleg og nauðsynleg
til þess að fylgja eftir Reykjavíkurfundinum um konur og lýðræði
haustið 1999. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá að mörg
þeirra verkefna sem var ýtt úr vör í Reykjavík hafa orðið að veru-
leika, bæði þannig að samstarf hafi tekist á milli landa um sam-
vinnuverkefni og sjálfstæð verkefni hafa byrjað í hverju landi fyrir
sig. Einnig var ánægjulegt að sjá þann kraft og áhuga sem ein-
kennir margar konur frá Eystrasaltsríkjunum og öðrum ríkjum Austur-
Evrópu um aðgerðir til þess að bæta stöðu kvenna í þessum ríkjum.
Á sama tíma er dapurlegt að átta sig á því hversu erfiðar aðstæður
konur búa við í mörgum þessara ríkja, ekki síst bágar efnahagsleg-
ar aðstæður. Líkt og á fundinum í Reykjavík vakti sérstaka athygli
mína ávarp Vaira Vike - Freiberga, forseta Lettlands, þar sem hún
lýsti á opinskáan hátt þeim margháttuðu vandamálum sem blasa við
konum í Eystrasaltsríkjunum.
Það er margs að minnast að öðru
leyti af ráðstefnunni í Vilnius. Þessi
tími var mjög annasamur fyrir mig
bar sem ég hafði ýmis hlutverk. í fyrsta
iagi var ég formaður eins af tólf vinnu-
hópum á ráðstefnunni og fjallaði minn
hópur um leiðir til að efla leiðtogahæfni
kvenna (Developing Leadership Skills). f
vinnuhópnum voru um 40 þátttakendur,
flestir frá Austur-Evrópuríkjum, en einnig
frá Bandaríkjunum og Norðurlöndunum.
Mjög áhugaverðar umræður fóru fram í
hópnum og nokkrir þátttakendur fluttu er-
indi sem síðan voru rædd í hópnum.
Meðal annars gerðu íslenskir þátttakend-
ur grein fyrir nokkrum íslenskum verkefn-
um sem rekja má til Reykjavíkurráðstefn-
unnar. Vil ég sérstaklega nefna Stefaníu
Óskarsdóttur sem flutti almennt yfirlit um
verkefni sem rekja má til Reykjavíkurráð-
stefnunnar, Hansínu Einarsdóttur sem
fjallaði um leiðtoganámskeið fyrir konur
sem ráðgjafarfyrirtækið Skref fyrir Skref
hefur skipulagt og Rósu Erlingsdóttur
sem lýsti jafnréttisátaki á vegum Háskóla
íslands. Margir aðrir þátttakendur tóku til
máls, ég minnist t.d. sérstaklega þing-
manns frá New Hampshire í Bandaríkjun-
um, lackie Wetherspoon, sem fjallaði um
leiðir til að yfirvinna helstu hindrun þess
að konur byðu sig fram til kosninga, sem
væri fjárhagslegar ástæður.
Annað megin hlutverk mitt á ráðstefn-
unni var ekki sfður mikilvægt en það var
þátttaka í pallborðsumræðum um verslun
tneð konur. í umræðunum tóku þátt jafn-
réttisráðherrar allra þátttökurfkja, þeir
lýstu viðhorfi sínu til þessa vandamáls og
úrræðum til að takast á við það. Augu
heimsins hafa á síðustu árum opnast fyrir
þvf að hér er um að ræða óhugnanlega
umfangsmikið alþjóðlegt vandamál.
Skipuleg glæpastarfsemi þar sem konur
eru fluttar á milli landa eða jafnvel
heimsálfa, þar sem þeim er lofað atvinnu
og betri lífsskilyrðum, veltir nú milljörð-
um dollara árlega. Því miður sjáum við á-
kveðið mynstur hér á landi sem líkist að-
stöðunni í nágrannalöndum okkar, þótt f
minna mæli sé. Hér hafa sprottið upp
nektardansstaðir þar sem stærstur hluti
dansmeyja er erlendis frá, langflestar frá
Eystrasaltsríkjunum. Ég hef áhyggjur af
þessari þróun og í erindi mínu f pallborð-
inu lagði ég áherslu á aðgerðir til þess að
bregðast við henni. í tengslum við þátt-
töku mína í pallborðsumræðunum um
þetta málefni sat ég fund jafnréttisráð-
herra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkja,
sem var haldinn fyrri ráðstefnudaginn. Þar
var m.a. samþykkt tillaga sænska jafnrétt-
isráðherrans um að Norðurlönd og
Eystrasaltsríkin tækju sig saman um sam-
eiginlegt átak eða kynningarherferð í
þessum ríkjum til að vekja athygli á vand-
anum. Það hefur það tvíþætta markmið
að vara ungar stúlkur í Eystrasaltsrfkjun-
um sem þiggja atvinnutilboð á
Vesturlöndum alvarlega við þvf
hvað getur beðið þeirra í reynd en
einnig að breyta afstöðu almenn-
ings til vændis og þeirra sem
kaupa vændisþjónustu. í tillög-
unni er m.a. gert ráð fyrir stofnun
vinnuhóps á vegum jafnréttisráð-
herra og dómsmálaráðherra ríkj-
anna til þess að undirbúa slfka kynningar-
herferð. Eftir er að ræða nánar á vettvangi
Norrænu ráðherranefndarinnar hvaða
fjármagni verður veitt til þessa átaks. Á
fundi dómsmálaráðherra Norðurlanda
sem haldinn verður í ágústmánuði verður
eitt meginumræðuefnanna verslun með
konur. Þar verður meðal annars lögð fram
skýrsla um ástand þessara mála í hverju
Norðurlandanna, rædd nánar tillagan um
fyrrgreindan vinnuhóp og kannað hvað
aðgerða á að grípa til m.a. með breytingu
á refsilöggjöf og alþjóðlegri lögreglusam-
vinnu á þessu sviði.
Ég vil síðast en ekki síst taka fram að
mér fannst sérstaklega ánægjulegt að
vera í þeim stóra hópi fslenskra kvenna
sem tóku þátt í ráðstefnunni, en við send-
um álíka stóran hóp og hvert hinna Norð-
urlandanna eða 30-40 þátttakendur. Ekki
má gleyma að þrír fslenskir karlmenn voru
innanborðs. Ekki má heldurgleyma því
að við létum Kvennahlaupið 16. júní ekki
fram hjá okkur fara, skelltum okkur í
rauða boli og vöktum töluverða athygli á
götum Vilnius. Ég var stolt af því að vera f
þessum hópi, sem hélt vel saman og átti
margar skemmtilegar stundir í þessari fal-
legu borg.
íslensku konumar hlupu Kvennahlaup í Vilnius 16. júní