Vera - 01.08.2001, Blaðsíða 39
„Ég er fædd á Selfossi árið 1960. Pabbi var héraðs-
læknir víða um land fyrstu æviár mín en fluttist að
Laugarási í Biskupstungum þegar ég var sex ára og þar
bjó ég til 12 ára aldurs."
Sif lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1980 en fór ekki í lögfræðina fyrr en þremur
árum síðar. Þá hafði hún, auk vinnu, prófað almenna
bókmenntafræði og íslensku í Háskólanum og verið
einn vetur f lýðháskóla í Þýskalandi. En fivers vegna lög-
fræði?
„Ég tel mig alltaf hafa haft sterka réttlætiskennd,"
segir Sif. „Það var samt ekkert í umhverfi mínu sem bjó
til áhuga á að fara í lögfræði. Ég þekkti engan í faginu
og enginn í ættinni hafði farið í lögfræði. Þetta var því
alveg út úr kú og mæltist misjafnlega fyrir f fjölskyld-
unni þar sem önnur fög voru meira í hávegum höfð.
En ég fann út að þetta hentaði mér og frá því að ég
þyrjaði að stúdera þetta fag finnst mér það sífellt
meira heillandi." Strax að lokinni útskrift hóf Sif störf á
lögmannsstofu og vann þar sem fulltrúi þar til hún
stofnaði sína eigin stofu árið 1995.
Við snúum okkur að málaflokki sem talsvert hefur
verið á könnu Sifjar síðustu ár, nauðgunum og mis-
notkun barna. Þótt flest þessara mála komi núorðið til
kasta lögreglu og dómstóla tiltölulega skömmu eftir
að þau eiga sér stað gerist það einnig að gömul mál
eru dregin fram í dagsljósið. Stundum heyrir maður
fólk segja að betra sé að láta þau eiga sig í stað þess
að ýfa upp gömul sár og sundra fjölskyldum. Hverer
reynsla Sifjar- má satl stundum kyrrt liggja?
„Nei. Ég tel svo ekki vera. Það er ekki mín reynsla af
þessum málum. Þegar einhver í fjölskyldunni fremur
kynferðisbrot gegn barni er algengt að það geti ekki
sagt frá. Barnið hefur ekki forsendur til að segja frá því
fyrr en það hefur náð tilteknum þroska og fjarlægð frá
þessu. Það er svo einstaklingurinn sem tekur ákvörðun
um að segja frá, hvort sem um er að ræða kynferðis-
brot gegn barni eða nauðgun, og ég hef ekki litið á það
sem mitt hlutverk að draga úr fólki sem hefur stigið
þetta skref.”
Hvað með þá sem brotið fiafa af sér, er ekki hætta á fleiri af-
brotum?
„Iú, það hefur verið vísindalega sýnt fram á að
barnaníðingar eru líklegir til að halda iðju sinni áfram.
Sif í dómssal Hæstaréttar. Skikkjan hennar er síðasta skikkjan sem Dýrleif heitin Árman
kjólameistari saumaSi, 85 óra gömr
39