Vera - 01.08.2001, Page 41
Konur eru helmingur þeirra sem útskrif-
ast hafa úr lagadeild síðustu tíu ár en
þó eru aðeins 10% sjálfstætt starfandi
lögmanna konur.
Um síðustu áramót, þegar komið var að
því að skipa að nýju í nefndina, sá for-
sætisráðherra sig knúinn til þess að taka
mig eina út úr nefndinni á þeim forsend-
um að tími væri kominn til að skipa nýja í
nefndina - og sendi mér bréf þar sem
hann þakkar farsæl störf!
andi, þ.e. aðgang að öllum gögnum málsins.
Dómur féll í málinu í júlí og þar segir skýrt
og skorinort að í sjö tilvikum hafi hann brot-
ið mikilvæg ákvæði laga um meðferð opin-
berra mála, sem eru þagnarskylda verjanda
og bann við því að skýra frá því sem fram fer
í lokuðu þinghaldi. Það er fortakslaust bann
nema dómari leyfi. En verjandinn hafði skýrt
frá atriðum sem aldrei höfðu komið fyrir al-
menningssjónir heldur aðeins komið fram í
lokuðum þinghöldum. Hann braut því frið-
helgi hennar. í dómnum er líka talið að verj-
andinn hafi í ummælum verið meiðandi og
að hann hafi þannig gert á hlut stúlkunnar."
Sif telur að frá upphafi hafi ýmsu verið
ábótavant við meðferð máls skjólstæðings
hennar og í apríl 2000 sendi hún kæru vegna
málsins til mannréttindadómstólsins í
Strassbourg. Kæran byggir á þvf að brotið
hafi verið á þeirri grein mannréttindasáttmál-
ans sem tryggir réttláta málsmeðferð og
einnig því ákvæði sem tryggir friðhelgi einka-
lífs. Málarekstur fyrir mannréttindadómstóln-
um tekur hins vegar óratfma og Sif býst ekki
við niðurstöðu um það hvort dómurinn telji
málið tækt til efnismeðferðar fyrr en eftir
nokkur ár. En fleira er í gangi.
„Það er enn rekið stjórnsýslumál fyrir
landlækni um það sem ég tel ófagleg vinnu-
brögð geðlæknisins í álitsgerðinni sem unnin
var fyrir verjandann. Það var farið með það
fyrir siðanefnd Læknafélagsins sem taldi
þetta ekkert athugavert en vísaði til þess að
faglega gagnrýnin á störf geðlæknisins væri
þess eðlis að eðlilegt væri að hún færi til
Læknaráðs. Einstaklingur getur hins vegar
ekki vísað máli til Læknaráðs heldurverða
það að vera heilbrigðisyfirvöld, landlæknir
eða dómstólar. Ég fékk því stjórn Læknafé-
lagsins til þess að vísa þessu áfram til land-
læknis og þar er það búið að vera í eitt og
hálft ár."
Er verið að reyna að stinga því ofan \ skúffu?
„Stjórnsýslan getur ekki haft mál óaf-
greidd. Fyrr eða síðar þarf að afgreiða málið."
En þetta er óeðlilega langur tími.
„Já, hann er óeðlilega langur."
Eftirmálin hafa líka snert Sif persónulega
þvf hún hefur fengið að finna fyrir því að
framganga hennar hefur ekki verið öllum
þóknanleg. „Ég var skipuð af forsætisráðherra
árið 1996 í úrskurðarnefnd um upplýsinga-
mál. Ég var varamaður og skipuð á grundvelli
hæfni en ekki pólitíkur. Um síðustu áramót,
þegar komið var að því að skipa að nýju f
nefndina, sá forsætisráðherra sig knúinn til
þess að taka mig eina út úr nefndinni á þeim
forsendum að tfmi væri kominn til að skipa
nýja í nefndina - og sendi mér bréf þar sem
hann þakkar farsæl störf! Þetta tengist engu
öðru en því að ég leyfði mér að setja fram
sjónarmið skjólstæðings míns og kröfur í