Vera - 01.08.2001, Síða 43
Almenningur heldur kannski að ég hafi
ekki viljað að hann tjáði sig um málið en
svo er alls ekki. En hann misnotaði þá að-
stöðu sem hann hafði sem verjandi, þ.e.
aðgang að öllum gögnum málsins.
það sem tengist konum sérstaklega, svo ekki sé talað um
femínisma. Það er engu líkara en þær séu hræddar við
að það komi niður á þeim. Sif tekur undir það. „Þær við-
urkenna að skilgreiningarvaldið sé hjá karlmönnunum.
Það eru þeir sem setja reglurnar og þær trúa ekki að
hægt sé að breyta því." Sif telur ungar stúlkur skorta
hvatningu og fyrirmyndir. Hvað lögmennskuna varðar
bendir hún á að það sé næstum sjálfgefið að ungir karl-
menn opni eigin stofur en það þurfi að hvetja konur til
dáða. „Svo er það þetta klassíska með konur í atvinnu-
rekstri. Þær hvorki þora né vilja taka áhættu með pen-
inga.”
Talandi um fyrirmyndir. Nú eru komnar tvær konur í
embætti hæstaréttardómara. Rætt hefur verið um að
konur hafi aðrar áherslur en karlar og túlki lög á annan
hátt. Gera þær það?
„Já. Það gladdi mig þess vegna mjög mikið þegar Ingi-
björg Benediktsdóttir hæstaréttardómari lét hafa það eft-
ir sér að þannig væri það og að það gæti skipt máli. Það
er mjög ánægjulegt að kona í þessari stöðu skuli segja
þetta." Sif nefnir tvö dæmi frá síðasta vetri þar sem mis-
munandi túlkun karla og kvenna kom skýrt fram í dóms-
niðurstöðum. „Dómstólarnir eiga auðvitað að endur-
spegla samfélagið," segir Sif og það gefur okkur tilefni til
þess að ræða um hlut kvenna í fjölmiðlum - hvaða raun-
veruleika þeir endurspegli. „Fjölmiðlarnir skipta auðvitað
mjög miklu máli og hverjir það eru sem eru beðnir um
að tjá sig þar. Við konur erum kannski aðeins minna
gefnar fyrir það að láta Ijós okkar skína opinberlega, vilj-
um hafa allt pottþéttara. Ég fagnaði þess vegna mjög
þegar eini kvenprófessorinn í lagadeild tjáði sig opinber-
lega um sakamál nýlega." Ég samsinni því og reyni í hug-
anum að rifja upp hvaða kvenlögmenn ég sjái oftast tjá
sig um lögfræðileg efni í fjölmiðlum. Ég man bara eftir
körlum.
Hvílist á fjöllum
En nú er kominn tími til að Ijúka viðtalinu. Sif er fjöl-
skyldukona, á dóttur sem er nýorðin fjögurra ára og eig-
inmann sem á þessum sólríka júlídegi var á rannsóknar-
skipi að telja hvali einhvers staðar á hafi úti. Ég spyr að
lokum hvað hún geri til að hvíla sig á lögmannsstörfun-
um. „Ég hef óskaplega gaman af því að ferðast og geri
mikið af því. Ég hef farið víða innanlands og lít á það
sem algjört grundvallaratriði til þess að vinda ofan af
mér að fara í gönguferð á öræfum í eina viku á hverju
sumri. Það geri ég alltaf í sama hópnum. Núna er ég að
fara að ganga á Snæfellsnesi, milli Búða og Amarstapa,
í Dritvík og í Berserkjahrauni. Þetta er nú svona frekar
létt láglendisganga en hún verður bara erfiðari næsta
sumar!"
Með þessum orðum kveðjumst við og Sif heldur af
stað á slóðir Axlar-Bjarnar, berserkja og löngu liðinna
Tvíbreiðar dúnsængur og
"5<A,
sængurverasett úr
silkidamanski.
2 x 2.20
Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs S: 551 4050