Vera - 01.08.2001, Side 46
Kroppadýrkun í poppi Rósa Æ ,LW
VI 1
brýst þetta einnig út í átröskunarsjúkdómum og það
hjá strákum alveg niður í ellefu eða tólf ára. Auk þess
er að koma upp nýr sjúkdómur sem hlotið hefur heitið
bigorexía en sá sjúkdómur herjar aðallega á karla sem
eru að lyfta lóðum. Þeir lyfta og lyfta en sjá sig þrátt fyr-
ir það alltaf sem mjög horaða. Strákarnir eru þannig að
reyna að gera sig vöðvastæltari en stelpurnar að reyna
að verða æ grennri.
Hversu ungir krakkar eru að horfa á tónlislarmyndbönd?
Hildlur: Sex ára og jafnvel yngri.
Teljið þið að tónlistarmyndböndin hafi einhver áhrif á
svo unga krakka?
að ræða samskipti fólks innan Bandaríkjanna eða sam-
skipti Bandaríkjanna við heimsbyggðina. Þar er það
harkan sem blífur. Hérna heima myndi maður kannski
leysa málið með öðrum hætti.
Rósa: í myndbandi Kelis er konan greinilega mjög
reið og er með því verið að reyna að höfða til reiðra
kvenna. Þegar ég heyrði þetta lag kom hins vegar upp
sú hugsun að ég nennti ekki að vera reið. Allir eiga sína
fortíð og eru endalaust að eiga við hana en einhvern
tíma kemur að þeim tímapunkti að maður nennir ekki
lengur að vera reiður.
Ása: Myndböndin ýta auðvitað undir ákveðna hegðun
eins og annað í samfélaginu. Litla frænka mín var til
dæmis mikill Spice Girls aðdáandi þegar hún var fimm
til sex ára. Hún gekk alltaf um í háhæluðum skóm og
þegar hún kom heim til ömmu þurfti hún að fá lánaða
skó til að geta farið út að ieika. Það má þó ekki gleyma
því að samfélagið tekur allt þátt í skapa þessa hegðun.
Það býr til þessa litlu háhæluðu skó og Spice Girls fyrir
þessar ungu stelpur.
Júlíus: Þarna er auðvitað verið að stíla inn á nýjan
markhóp.
Hildur: Dóttir mín er tíu ára og dáir þessar konur sem
koma fram í PoppTíví. Yfirleitt er henni nokkuð sama um
útlit sitt en stundum stendur hún fyrir framan spegilinn
oghermir eftir tóniistarmyndþöndunum. Þaðeinasem
ég get get gert til að sporna við því að þessar ímyndir
hafi áhrif á hana er að styrkja hana sem einstakling.
Ása: Þetta er aðeins of mikil reiði fyrir mig... Eiginlega
fannst mér umrætt myndþand bara þrælfyndið þegar ég
sá það. Það breytir því þó ekki að mér finnst að svona
myndbönd megi vera til í bland við hin sykursætu.
Hljómsveitin TLC mótmælir lýtaaðgerðum í einu laga
sinna en sjálfar eru þær svo óaðfinnanlegar í útliti að
það mætti ætla að einn eða fleiri slcurðhnífar hafi
komist í kroppana á þeim. Og nú hefur kryddpían
Geri Halliwall viðurkennt að eiga við átröskun að
stríða en er samt að stæra sig af þvengmjóum líkama
eftir stranga megrun. Það má heldur ekki gleyma fyrr-
verandi vinkonum hennar Victoriu og Mel C sem eru
líka grunaðar um að eiga við átraskanir að stríða. Er
það ekki kaldhæðnislegt í Ijósi þess að aðalkjörorð
Spice Girls var „Girl Power"? Og eru þessar söngkon-
ur ekki með þessu að koma með tvöföld skilaboð?
Nokkrar tónlistarkonur hafa í lögum sínum fjallað um
stöðu kvenna í heiminum mörgum til sárrar gremju. Til
dæmis sagði Liam Gallhager, söngvari Oasis, eitt sinn
að Tori Amos, P.J. Harvey og Björk væru bara óþekk-
ar stelpur sem ætti að flengja. I dag þykja tónlistar-
konur sem syngja eða semja lög sem fjalla um jafn-
rétti hafa gengið nokkuð langt í að koma boðskap sín-
um á framfæri. Til að mynda rústar söngkonan Pink
íbúð kærasta síns í einu myndbandi og Kelis syngur:
„I really hate you so much right now" um ótrúan
kærasta og í meðfylgjandi myndbandi fer hópur
kvenna með mótmælaskilti sem úthrópa karlmenn.
Haldið þið að þetta sé rétta leiðin til að koma á fram-
færi boðskap um jafnrétti? Hvaða áhrif haldið þið að
þetta hafi á konur og unglingsstúlkur?
Hildur: Þessi myndbönd sýna að mínu mati nokkuð
einfalda mynd af uppreisn. Auk þess er sú uppreisn
sem þar kemur fram dæmigerð fyrir Bandaríkin. Þar í
landi virðist allt leyst með hnefanum; hvort sem um er
Rósa: Mikilvægt atriði í þessu er að ungar óöruggar
stúlkur, sem eru til dæmis með anorexíu og búlemíu,
geta samsamað sig þessum söngkonum, Geri Halliwall,
Mel C. og fleirum. Það er nefnilega svo mikilvægt fyrir
fóik, til dæmis anorexíusjúklinga, að sjá að það eru aðr-
ir að ganga í gegnum það sama... Allar þessar stjörnur
eru jafn mannlegar og við sem sitjum hérna og eru
jafnvel í þúsund sinnum meiri tilvistarkreppu.
Híief1. já maður fær stöðugt fréttir af átröskun fræga
fólksins. Þessar konur eru undir miklu álagi og ég býst
við að átröskun sé ein afleiðing þess. Hún leiðir síðan
til annarra öfga. Nýjasta dæmið sem ég hef heyrt er að
fólk sprautar sig með vítamíni. Geri Halliwall segist
gera það... Þá sýnist mér Christina Aquilera vera orðin
alveg eins og títuprjónn greyið.
Rósa: Þetta er atvinnusjúkdómur.
Hildur: Já, ég er sammála því.
Ása: |á, þetta er kannski atvinnusjúkdómur hjá þess-
46