Vera - 01.08.2001, Blaðsíða 53
Guðrúnlögga
lUafn: Guðrún ]ack
Aldur: 41 árs
Menntun: Menntaskóli og Lög-
regluskóli ríkisins.
Starf: Lögreglumaður.
Vinnustadur: Lögreglustjóra-
embættið í Reykjavík.
Starfsaldur: 19 ár
Laun: Grunnlaun eru 141.729, ofan
á þau bætast vaktaálag, hjólaálag
og aukavinna. Útborgað um 170
þúsund, miðað við 50 tíma auka-
vinnu. Aukavinnan er nauðsynleg til
að fá eitthvað í launaumslagið.
Fjölskylduhagir: Á eina stóra
og eina litla prinsessu.
Vinnutími: 6 morgunvaktir, 3
dagar frí, 6 kvöldvaktir. Aukavinna er
óregluleg og oftast í framhaldi af
vakt. Stundum aukavaktir um helgar
eða í miðri viku.
Ertu ánægð með launin? Nei, auð-
vitað ekki.
Hvað finnst þér að þú ættir að fá í
laun? 220 - 250.000 og ríflega jóla-
uppbót.
Hvar sérðu þig fyrir þér í framtíð-
inni á vinnumarkaði? Ég vona að
ég geti unnið áfram sem lögreglu-
maður, með fjölskylduvænni vinnu-
tíma og fá fyrir það þokkaleg laun.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Plötusnúður íTónaþæ
og rallýkappi.
Starfsábyrgð og skyldur: Gæta ör-
yggis borgara, veita þeim þjónustu
í hvívetna og koma f veg fyrir af-
brot. Því er mikilvægt að lögreglu-
menn séu vandaðir og valinkunnir,
kunni kurteisi og þekki sín tak-
mörk. Starfinu fylgir mjög mikil á-
byrgð og þarf lögreglumaður að
þekkja sjálfan sig og viðbrögð sín
við ýmsum aðstæðum.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
starfið? Fjölbreytileikinn er mjög
mikill og samhliða því er starfið af-
skaplega krefjandi. Ég hitti mikið af
fólki og þarf að takast á við erfið
verkefni.
Hvað finnst þér leiðinlegast? Mér
dettur helst í hug ölvað fólk. Síðan
ytri aðstæður: fjárskortur, mannekla
skilningsleysi stjórnvalda og al-
mennings gagnvart löggæslunni f
landinu. Og þá streita og álag sem
fylgir starfinu.
Réttindi og fríðindi sem fylgja
starfinu: Landsamband lögreglu-
manna á sumarbústaði og ég á rétt
á þeim. Niðurgreiddur matur. Ég
þarf ekki að hafa áhyggjur af hverju
ég ætla að klæðast í vinnunni, því
mér ber skylda til að vera í búning
og er það mjög þægilegt.