Vera - 01.08.2001, Page 61
íMarkaðsstjórar
í mörgum fyrirtækjum eru konur ráðnar í störf
markaðsstjóra. Hvaða konur skyldu þetta
vera? Vera náði tali af fjórum markaðsstjórum
og ræddi við þær um starfið og þær sjálfar.
Sem markaðsstjóri hjá Línu.Neti hefur Ingibjörg Valdi-
marsdóttir það hlutverk að kynna þjónustu fyrirtækisins
sem er að þróa nýjungar við gagnaflutning í fjar-
skiptaþjónustu m.a. með því að nýta rafmagnslínur.
Lína.Net er m.a. fremst í heiminum í þróun þessarar
aðferðar ásamt þýska fyrirtækinu RWE. Kynningar-
starfið er því sérlega skemmtilegt að mati Ingibjargar
þar sem viðskipti við Línu.Net opnar fólki marga nýja
möguleika á sviði gagnaflutninga.
Ingibjörg er 28 ára. Hún varð stúdent af viðskipta- og
hagfræðibraut Fjölbrautaskóla Vesturlands 1992 og lauk
BS prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla íslands 1997.
Eftir það vann hún f tvö ár við ráðgjöf og verðbréfa-
miðlun hjá Landsbréfum en gerðist svo markaðsstjóri
innanlandssviðs Eimskipa og vann þar þangað til hún
tók við starfi markaðsstjóra hjá Línu.Neti í mars sl.
Framsækið gagnaflutningsfyrirtæki
„Markaðsmál, kynningarstarf, auglýsingar og verðskrár-
mál eru á minni könnu," segir lngibjörg. „Lína.Net er
ungt og framsækið fyrirtæki, stofnað 1999. Hér vinna 26
manns, mikið af góðu tæknifólki sem er að þróa spenn-
andi hluti með IP tækni, bæði í gegnum ljósleiðara, raf-
línur, loftlínur og símalínur. Það tekur auðvitað tíma að
útskýra flóknar tækninýjungar fyrir fólki, sérstaklega þar
sem þróunarstarfinu er ekki lokið og íslendingar eiga
erfitt með að bíða. Skólanetið, sem tengir alla grunn-
skóla borgarinnar með þessari tækni, hefur þegar
sannað gildi sitt og á sama hátt mun allur gagnaflutn-
ingur á milli Háskóla fslands og Háskólans á Akureyri
fara fram í gegnum Rannsókna- og háskólanetið sem er
byggt upp á ljósleiðarakerfi Línu.Nets. Eitt af stærstu
verkefnum okkar núna er að innleiða 1P tækni í síma-
og tölvukerfi Landspítalans. Það sem fyrirtækjum og al-
menningi mun standa til boða er að tengjast lP-Borgar-
netinu sem er í stöðugri þróun. Fólk á höfuðborgar-
svæðinu mun geta keypt alla gagnaflutningsþjónustu
þar í gegn, þ.e. síma, internet, stafrænt gagnvirkt sjón-
varp, fjarkennslu, myndfundi og margt fleira. Við bjóð-
um þegar millilanda símaþjónustu yfir IP og á næstu
mánuðum mun fyrirtækjum verða boðin samskonar
símaþjónusta innanlands. Þannig kemur þetta skref fyr-
ir skref eftir því sem tæknin þróast," segir Ingibjörg.
Að vera í góðu líkamlegu formi
Ingibjörg er í sambúð með Eggert Herbertssyni, sölu-
og markaðsmanni hjá Nýherja, og þau eiga eins og
hálfs árs gamlan son. „Mér finnst mikilvægt að geta
ferðast. Ég bjó í Frakklandi í eitt ár að loknu stúdents-
prófi og vil gjarnan kynnast öðrum þjóðum. Ég var mik-
ið í íþróttum á yngri árum og finn að orkan dvín ef ég
held mér ekki í góðu líkamlegu formi. Mín aðferð til
þess að hreyfa mig er að fara í líkamsrækt, stundum
skrepp ég í hádeginu og stundum á kvöldin. Frítíminn
fer að öðru leyti mest í að hugsa um soninn og svo býr
fjölskylda mín á Akranesi og ég held góðu sambandi
þangað," segir Ingibjörg.
Ingibjörg Val