Vera - 01.08.2001, Blaðsíða 69
Bríet mælir ITieð
Bríet mælir á móti
Fönkhljómsveitinni Jagúar fyrir
að vera yfirlýstir jafnréttissinnar.
Þeir gættu þess meðal annars að
hafa nákvæmlega jafnt kynskipt
töku-, leikara- og framleiðslulið við
gerð stuttmyndarinnar sem þeir
gerðu fyrir útgáfu nýju plötunnar
Get the Funk Out.
Stelpunum sem eru að moka
með strákunum niðri í Pósthússtræti.
Rappgeilum!!! Missy Elliott, Eve,
Erykah Badu og fleiri - þær
eru hrikaiega svalar og flottar, sum-
ar hverjar með kjaft á við hafna-
verkamann og þær eru í fötunum
sínum, enda hafa þær talsvert
meira fram að færa en kroppasýn-
ingu!
Óþolandi bókinni, eftir Önnu Jó-
hannesardóttur og Ernu Guðmunds-
dóttur. Kom út seinustu jól og er
gefin út af höfundum sjálfum. Telur
upp öll óþolandi atriði í hversdags-
leikanum, líka smáatriðin sem mað-
ur hugsar aldrei um, alger snilld.
Popptívi fyrir að sýna myndbandið við lagið Lapdance með
rapphljómsveitinni N.E.R.D. Myndbandið sýnir konur sem eru
allar á brókinni, skríðandi í einni hrúgu, sleikjandi brjóstin,
rassinn og klofið á hver annarri, karla sem hrinda þeim,
kreista á þeim brjóstin og fara með þær eins og drasl og í
viðlaginu er tönnlast á að „you can get that lapdance here for
free". Myndbandið er mjög niðurlægjandi og særandi en það
er sýnt þrátt fyrir að það sé líka til annað myndband við þetta
lag sem er ekki eins gróft.
Popptiví aftur fyrir að fá „Ijósku úr Hafnarfirðinum" til að
flytja veðurfréttirnar. Ef hitnar í veðri fækkar hún fötum og ef
verður verulega heitt fer hún úr að ofan og jafnvel úr öllu og
vonast þeir Popptívípiltar „til að það verði til að auka áhorfið".
Allt er nú hægt að selja með kvenlíkamanum, hvað verður það
næst? Og halda þeir kannski að það horfi engar stelpur á
Popptíví??
Plötuumslaginu á Svona er sumarið 2001, sem sýnir
stelpurass með buxurnar hálfar niðrum sig. Enn og aftur sala á
líkama kvenna plús einhverja voða skrýtna hugmynd um hvern-
ig sumarið sé. Kannski er þessu umslagi beint til erlendra
ferðamanna sem hluta af landkynningu?
Öllum þeim endalausu titlum sem stelpur geta öðlast í nafni
fegurðardýrkunar. Þetta sprettur upp eins og gorkúlur;
Ungfrú DietCoke, Ungfrú Maybelline, Sólarstúlkan, Sumarstúlk-
an, Séð og Heyrt stúlkan, Fordstúlkan, Ungfrú Island.is, Hawa-
aianTropic stúlkan og guð má vita hverju þeir finna upp á
næst.
Gott rúm ætti að flokkast undir mannréttindi
Rúm eru gegnumgangandi í evrópsku æviniýrunum sem
Grimms bræður söfnuðu snemma á 19. öld. Gullbrá prófaði
rúm bangsanna þriggja og prinsessunni á bauninni varð ekki
svefnsamt í rúminu þótt vel færi um úlfinn í rúmi ömmu Rauð-
hettu. Rúmið á auðvitað að vera griðastaður og þar eigum við
ekki að þurfa að hafa áhyggjur eða óttast árásir. Hinsvegar
er alveg leyfilegt að láta sig dreyma um draumaprinsinn eins
og Þyrnirós hlýtur að hafa gert.
Ég þekki konu sem var komin á fimm-
tugsaldur áður en hún eignaðist sitt
eigið rúm. Sem ungabarn svaf hún f
kommóðuskúffu, eftir það í rúmi með
systkinum sínum. Þá á bedda með
kærastanum og langt frameftir hjóna-
bandinu í svefnsófa í stofunni því börn-
in höfðu svefnherbergið. Það var ekki
fyrr en þau fóru að heiman sem hún
eignaðist almennilegt rúm í fyrsta sinn
á ævinni. Alveg þykir mér þetta stór-
merkileg saga í velmegunarþjóðfélaginu
sem ég er alin upp í. Mér hefur alltaf
fundist sjálfsagt og eðlilegt að eiga mitt
eigið rúm og eftir þvf sem aldur og
auraráð aukast hafa rúmin mín orðið
þægilegri. Nú sef ég í prinsessu rúmi
(en eingöngu vegna þess að ég hef ekki
pláss fyrir queen size rúm). Og finnst að
sjálfsögðu að ég eigi það skilið. Alltof
margar eru þó þeirrar skoðunnar að það
sé bruðl að kaupa vandað rúm. Ein-
hvern vegin flokka ég það á svipaðan
hátt og að segja að það sé í lagi að vera
á vondum vinnustað í leiðinlegu starfi
fyrir lélegt kaup. Málið er að við eyðum
yfirleitt átta tímum á sólarhring í vinn-
unni og átta tfmum í rúminu. Auðvitað
skiptir máli hvernig okkur líður þegar
við sofnum. Margar finna fyrst þegar
þær eignast gott rúm hversu illa gamla
rúmið fór með bakið. Gott rúm bætir þó
ekki slæmt bak, til þess þarf líkamsþjálf- ^
un og jafnvel aðstoð sjúkraþjálfara, en t
það styður við bakið og heldur því í -q
horfinu. Starfsfólk í verslunum sem selja >3
rúm er sérfrótt um hvaða rúm henta
hverjum og auðvitað eigum við að fara o’
að dæmi Gullbrár og prófa okkur áfram. S
VERA þóttist því gera lesendum sín- O
um greiða þegar hún þrýstiprófaði allar 'O
dýnurnar í Svefni og heilsu í Engjateign- 00
um og neitaði að fara fyrr en einhver út-
skýrði muninn á dýnu og dýnu. Starfs-
fólkið upplýsti að gæði dýnanna fer eftir
fjölda gormanna sem í þeim eru og þá
hvernig þeir eru festir saman. Þumal-
puttareglan við að velja dýnu er að taka
mið af ábyrgðinni sem verslunin, fyrir
hönd framleiðenda, býður: 20 ára á-
byrgð þýðir að um bestu fáanleg gæði
er að ræða, 15 ára ábyrgð mjög góða
dýnu og svo framvegis. Dýna með 3ja
ára ábyrgð telst því ekki sérlega góð.
Svefn og heilsa flytur m.a. inn
Chiropractic heilsudýnurnar sem munu
vera í hæsta gæðaflokki enda hægt að
fá þær með þúsund gormum sem á-
byrgst er að endist í 20 ár. Munið eftir
að stilla vekjaraklukkuna!
69