Vera - 01.08.2001, Blaðsíða 74
OÐINSVE
hotel-restaufanl
Þórsgötu 1 v/ÓOinstorg, simi 511 6200
Smurbrauðs-dama
hótelstarf
Óskum eftir að ráða smurbrauðs-dömu
til starfa, þarf að vera vön.
í boði er vel launað starf á traustum
vinnustað, daglegur vinnutími eftir sam-
komulagi. Viðkomandi þyrfti að geta
hafið störf fljótlega.
Allar frekari upplýsingar veittar á staðn-
um eða í síma.
Hvað með karlmennina?
Að sögn Brynju eru þær einu
útlendingarnir í fyrirtækinu
núna. Eigandinn, Edward Barr-
era, hefur átt ísbílafyrirtæki í 27
ár og sækist hann helst eftir að
fá Evrópubúa í vinnu. Þeir séu
duglegri heldur en innfæddir,
sem flestir séu Mexíkanar.
Úr viðtali í Morgunblaðinu við íslenskar
sielpur sem vinna í Texas. Goti dæmi um
staðalmyndir sem móta kynþóttafordóma.
„Heilbrigður" áhugi
„Viðtöl við ungt fólk á uppleið, í víðlesnu mánaðarriti á
borð við Mannlíf, ættu að segja lesendum sínum sitt-
hvað um tíðarandann. Og hvað segja tvö stærstu viðtöl-
in í nýjasta heftinu? Karlar eiga að vera ríkir (en ekki
hommalegir) og hafa heilbrigðan áhuga á klámi. Konur
eiga að reyna að „krækja í" ríka karla og íhuga vandlega
hvort að þær vilji virkilega hafa brjóstin á sér eins og
þau eru."
-Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir í DV 23. júlí.
Upplýsingar um vændi
„í gegnum starf mitt hef ég upplýsingar um að á ein-
hverjum hinna svonefndu nektardansstaða í borginni sé
stundað vændi. Til mfn á læknastofuna hafa verið að
leita skjólstæðingar sem þarna hafa lent í ýmiss konar
hremmingum og þá er vímuefnanotkun mjög meðverk-
andi þáttur. ... Þau vandamál sem skjólstæðingar hafa
leitað til mín vegna heimsókna á nektarstaðina eru
bæði fjárhagslegs og heilsufarslegs eðlis."
-Ólafur F. Magnússon, heimilislæknir og horgarfulltrúi,
i DV 25. júní.
Aldrei hitt hamingjusama vændiskonu
„Ég lít ekki á vændi sem vinnu heldur leið til að afla
tekna. Við þurfum að breyta viðhorfi samfélagsins til
vændis. í Danmörku er til dæmis varla gerð athuga-
semd við það að konur noti líkama sinn til að afla
tekna. ... Ég hef hitt konur sem hafa lifað af vændi en
aldrei hitt hina hamingjusömu vændiskonu. Aldrei."
-Dorit Otzen, danskur yfirmaður alþjóðlegra samtaka
gegn vændi, í Morgunblaðinu 28. dgúst.
Búllurnar burt
„Ég vil tala um misskilið frelsi. Þetta er orðið tugga.
Frelsi til að hafa opið til sex á morgnana, frelsi til að
lögleiða hass, frelsi til að drekka sig fullan, frelsi til að
berja náungann, frelsi til að fara á súlustaði ... Ég get
ekki séð að það lífgi upp á miðbæinn að auka nektar-
staðina. ... Ég vona bara að miðbærinn verði bara
þurrkaður upp. Burtu með þessa nektarstaði. Fækkum
þessum búllum." -Bubbi Morthens, tónlistarmaður, í
Kastljósi Sjónvarpsins 20. júlí.
74