Vera - 01.12.2001, Síða 3
Að vera jafnt
með pabba og með mömmu
Sameiginleg fjölskylduábyrgð - jafnvægi milli fjölskyldulffs og
atvinnu. Þetta eru hugtök sem heyrast æ oftar í opinberri um-
ræðu og býða að karlmenn þurfi (ætii og vilji) að taka meiri
þátt í þeirri vinnu sem fylgir því að ala upp börn og sjá um
heimili. Lengst af hefur fjarvera þeirra frá heimilunum verið
réttlætt með fyrirvinnunni, „skaffarahlutverkinu", en eftir því
sem menntun kvenna hefur aukist og þátttaka þeirra í ábyrgð-
armeiri störfum, er eðlilegt að ábyrgðinni á heimilinu sé deilt
sem jafnast, Að báðir foreldrar þurfi að fá skilning á því frá
atvinnurekendum að heimilið og börnin skipti máli. Stundum
er því meira að segja haldið fram að launamunur kynjanna
geti minnkað ef feður á vinnumarkaði verða oftar heima hjá
veikum börnum og fari f fæðingarorlof. Það sé sem sagt vegna
þess hve konur á barneignaaldri þurfi oft að vera frá vinnu sem
launamunurinn er eins mikill og raun ber vitni.
Allt um það - eitt er víst að á þessu ári var stigið mikilvægt
skref í átt til jafnréttis þegar feður fengu sjálfstæðan rétt til
fæðingarorlofs og mun sá réttur aukast um helming um ára-
mótin þegar sjálfstæður réttur þeira fer úr einum mánuði í tvo.
Þar að auki geta foreldrar skipt með sér þremur mánuðum í
fæðingarorlofi og þvf gætu feður verið í fæðingarorlofi í fimm
mánuði eftir áramót ef þeir einir tækju þessa sameiginlegu
mánuði. í þema þessa blaðs fjöllum við einmitt um fæðingar-
orlofið, með sérstakri áherslu á feðurna.
Það er fróðlegt að fá að vita hvað fer f gegnum hug þeirra
þegar þeir þurfa að axla ábyrgðina á börnum og búi og bregð-
ast við því sem getur komið upp á. Ekki er síður athyglisvert
hver viðbrögð umhverfisins geta orðið þegar fréttist að þeir
ætli að vera „bara heima". Tilfinningin að vera ekki lengur hluti
af samfélaginu í þeim aðstæðum er flestum mæðrum kunn og
því hollt fyrir feður að upplifa hana líka. Síðan á eftir að sjá
hvernig málin þróast, hvort konur eru til í að skipta fæðingar-
orlofinu jafnt, en þvf má dreifa á fyrstu 18 mánuðina í lífi
barnsins. í því efni er brjóstagjöf vandamál sem þarf að leysa
og sú skoðun að fyrstu mánuðina sé mikilvægara fyrir börn að
vera með móður sinni heldur en föður. Ef það er látið ráða
getur reynst erfitt að ná þvf jafnræði sem að er stefnt. Það er
vandi að stíga ný skref í átt til jafnræðis, upp úr hjólfarinu, og
þar reynir á bæði kynin.
PLUS
Fall Talibanastjórnarinnar í Afganistan
myndun nýrrar ríkisstjórnar þar í landi þar
sem greina mó viðleitini til að viðurkenna að kon-
ur séu líka til, en a.m.k. ein kona mun vera meðal
róðherra og ó að sjó um mólefni kvenna, meðal
annars.
og þau
Hildur Fjóla og Gunnhildur
au sem
styrktu þær til að framkvæma fyrstu ítarlegu rann-
sóknina hér ó landi ó viðhorfi til klóms, en sam-
kvæmt íslenskum lögum er bannað að dreifa eða
selja klóm. Niðurstöðurnar eru komnar út í skýrslu
sem m.a. er hægt að kaupa ó Rannsóknastofu í
kvennafræðum.
Lykillinn að velgengni ó vinnumarkaði
klingur sem gefinn er út af Jafnréttisótaki HÍ,
Jafnréttisstofu, VR o.fl. Nauðsynleg lesning fyrir
ungar konur sem eru að feta sig út ó atvinnubraut-
ina og þurfa að læra að meta sjólfar sig og verð-
ieggja vinnu sína jafn hótt og strókarnir.
MINUS
■
Sjólfstæðisflokkurinn
landsfum
fyrir að samþykkja á
haust að breyta skuli lögum um fæð-
ingarorlof þannig að það sé allt millifæranlegt ó
milli foreldra. Ef það yrði gert er kominn þrýstingur
ó mæður um að taka allt orlofið ó meðan feðurnir
eru „úti að skaffa" þar sem þeir hafa oftar hærri
laun en mæðurnar.
Félag íslenskra bókaútgefenda
^rir leiknar
auglýsingar í útvarpi og sjónvarpi um Bókatíðindi.
Gott dæmi um kynlífsvæðinguna að bendla þurfi
kynlíf við þó athöfn að fletta þessu ógæta riti til að
fræðast um bækurnar sem gefnar hafa verið út ó
uglýsingu um pakka sem inniheldur
m.a. Nokia síma. Þar situr gamall karl og ung, fó-
klædd stúlka dillar sér í kringum hann, af því að
þau ætla að vera heima um jólin og „tala í síma".
Annað dæmi um kynlífsvæðingu.