Vera - 01.12.2001, Page 10
Leirinn
koUar
Litid inn ó
leiriistaverkstœdid
Okkur
Brautarholti 16
Gudrún
„Þad eru margir kostir vid þad ad vera
saman med verkstœdi/' segja leirlista-
konurnar fimm sem starfa saman á
Okkur. „Vid berum okkur saman og lœr-
um hver af annarri. Einnig kemur vel út
ad samnýta tœki, t.d. leirbrennsluofninn,
og ad sameinast um hráefniskaup en vid
getum líka fengid lánað hver hjá annarri
efsvoberundir."
Þær segjast vera önnur kynslóð leirlistakvenna hér á
landi, útskrifuðust úr MHÍ á áttunda áratugnum og
byrjun þess níunda, nema Ragnheiður sem lærði list-
ina í Frakklandi. Áslaug Höskuldsdóttir og Ingunn
Erna Stefánsdóttir voru áður saman með vinnustofu
og einnig hinar þrjár, Guðrún lndriðadóttir, Sigrún
Nikulásdóttir og Ragnheiður i. Ágústsdóttir, en svo
var ákveðið að slá stofunum saman og það er enn þá
meira fjör.
„Leirinn kallar," segja þær, „hann er svo lifandi
efni." Sköpunargleðin leynir sér ekki þar sem þær
renna leirinn og mála á hann og í söluhillunum má
sjá þessi fallegu listaverk. Þær segja að á milli sín ríki
heilbrigð og góð samkeppni og það víkki sjóndeildar-
hringinn að verða fyrir áhrifum hver af annarri. Eins
og algengt er með listafólk vinna þær annað með; Ás-
laug kennir jóga, ingunn er skólastjóri Myndlistaskóla
Kópavogs, Guðrún er lyfjafræðingur á Landspítalan-
um, Sigrún er ieiðsögumaður og Ragnheiður grafískur
hönnuður. En alltaf þegar þær geta eru þær mættar á
verkstæðið f Brautarholtinu til að fara höndum um
leirinn. Nú vinna þær af kappi við að undirbúa sýn-
ingu sem haldin verður í Gerðarsafni í janúar í tilefni
af 20 ára afmæii Leirlistafélagsins. Áslaug er formaður
félagsins en Guðrún og Ingunn fyrrverandi formenn.
í Gallerí List í Skipholti og Gallerí Fold á Rauðarár-
stíg, Kringlunni og Smáralind, er hægt að nálgast
listaverkin þeirra. Áslaug og Guðrún selja auk þess í
Listfléttunni á Akureyri og Ragnheiður í Smíðar og
Skart á Skólavörðustíg.
10