Vera


Vera - 01.12.2001, Qupperneq 22

Vera - 01.12.2001, Qupperneq 22
Fœdingarorlof feðra held [sað sé hárrrétt hjá honum og tel að þessi lög séu á undan fólkinu í landinu. Hversvegna? Ég ætla að reyna að útskýra það með reynslusögu okkar hjóna. Að vera óskertir foreldrar Frá þvf að þarnið var 0-6 mánaða vann ég ekkert. Pabþinn vann stutt verkefni og var því meira að heiman en ég sem tók sængurleguna mjög hátíðlega og varði hún í fimm vikur. Að þeim liðnum fór ég að klæða mig daglega. Áður en ég varð léttari var ég þó búin að skipuleggja eitt og annað til að gera á meðan barnið væri svo lítið að það svæfi allan daginn. Ég sá fram á mikinn tíma sem ég yrði að drepa. Það var misskiln- ingur, eins og allir foreldrar vita. En vegna fyrri ráðstafana mætti ég til dæmis alltaf í Háskólann tvo morgna í viku. Þá fékk Óskar tækifæri til að vera einn með dóttur okkar og bjarga sér. Einhvernveginn varð það nefnilega þannig að væri ég nærstödd, þóttist ég alltaf vita betur en hann. Af þeim sökum var öllum í fjölskyldunni nauðsynlegt að upplifa stundir þar sem móðirin var ekki heima. Ekki langaði mig alltaf út í kaldan morguninn þegar hvítvoðungurinn lá sem helg vera í rúminu. En ég held að innst inni hafi ég vitað að þetta voru gagnlegar stundir. Ég komst í snertingu við annað fólk og sá að samfélagið hélt áfram að virka, þó minn heimur hefði umhverfst, og Óskar og Matthildur fengu frið fyrir hinni fyrirferðarmiklu móður. Eftir að sex mánaða fæðingarorlofi lauk tók við tímabil sem einkenndist af því að við reyndum að skiptast á að taka að okkur verkefni. Það var ansi mikið púsl og stundum finnst mér eins og dagurinn hafi hreinlega farið í að skipuleggja hver ætlaði að passa hvenær og hver mundi svo sækja hvern hvar. Á þessum tíma lærðum við þó mikilvæga lexíu, en við lærðum að segja nei við atvinnutilboðum, en eins og allir vita gengur það í þverbága við allt sem manni hafði áður verið kennt og hugmyndir manns um vinnuna sem hina einu sönnu íslensku dyggð. Ef tveir einstaklingar með óskerta starfsorku ætla sér jafnframt að vera óskertir foreldrar barns, þarf eitthvað undan að láta. Vinnan var skorin við nögl en barnauppeldi sett í for- grunn. Fjárhagslega gekk þetta upp því lífsstíllinn hafði breyst töluvert eftir að Matthildur fæddist; við fórum til dæmis minna á veitingahús og bari og svo notuðum við bílinn minna, en gengum meira um með barnið í
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.