Vera


Vera - 01.12.2001, Síða 32

Vera - 01.12.2001, Síða 32
Kristín Á. Guömundsdóttir „Okkur tókst að laga hlut okkar verulega. Ég er tiltölulega sátt en við eigum enn eftir að fá niðurstöð- ur úr kjararannsóknanefnd opin- berra starfsmanna sem leggur reglu- lega mat á kjör okkar. Nýja launa- kerfið byggist á vinnustaðasamning- um og við lögðum áherslu á að skrifa ekki undir miðlæga kjara- samninginn við fjármálaráðuneytið fyrr en vinnustaðasamningarnir væru í höfn. Við vissum að það gæti tekið marga mánuði að ná samning- um við alla vinnustaðina ef við skrifuðum undir. Þannig nýttum við okkur þann þrýsting sem búið var að skapa með verkfallsaðgerðunum. Það var því gripið til þess ráðs að fá forstjóra allra sjúkrahúsa og heil- brigðisstofnana að samningaborð- inu hér í Reykjavík f stað þess að ég þyrfti að eltast við þá út um allt land. Við lukum því margra mánaða vinnu á fjórum sólarhringum með því að semja við all flestar stofnanir. Það var mjög ánægjulegt. Kjara- samningur okkar nær til 19 sjúkra- húsa og heilsugæslustöðva og 17 sjálfseignarstofnana sem reka elli- og hjúkrunarheimili." Kristín segir að meðallaunin komi til með að hækka veru- lega en erfitt sé að nefna pró- Það hlýtur að vera í verkahring heilbrigðis- og menntamálaróðuneyt- anna að vinna að því að stéttin leggist ekki niður. Við eigum ekki að þurfa að eyða orku okkar í það, ofan á það að verja eigin kjör. Staðreyndin er sú að kjarninn í sjúkraliðastéttinni eru eldri konur og margar þeirra eru orðnar öryrkjar af of miklu vinnuálagi sentutölu því launahækkanirnar komi misjafnt út. Ljóst er þó að það tókst að hækka byrjunarlaunin úr um 89.000 kr. í 119.000 kr., eða um 30.000 krónur. „Með þessum samn- ingi voru lagðar niður allar gömlu skilgreiningarnar á launaflokkum og tekið upp kerfi sem byggir á starfs- lýsingum en eftir er að raða sjúkra- liðum inn í það. Þar verður fram- gangskerfi þar sem hver sjúkraliði er metinn fyrir sig og teknir inn þættir eins og námskeið, starfsaldur, sér- hæfing o.fl. Því er erfitt að segja á þessu stigi hver launahækkunin verður hjá hverri og einni." Sjúkraliðar sem hafa sótt nám- skeið sem boðið er upp á, t.d. í Ár- múlaskóla, hafa bætt við sig mennt- un sem þeim finnst oft að ekki sé metin sem skyldi í starfi þeirra inni á sjúkrahúsum. Kristín segir að þeg- ar eins mikill skortur sé á sjúkralið- um og hjúkrunarfræðingum og raun ber vitni verði stjórnendur stofnan- anna að hugsa málin upp á nýtt og svara þvf hvernig nýta eigi starfs- krafta þessara stétta. „Ég tel að endurhugsa þurfi vinnufyrirkomu- lagið inni á sjúkrahúsunum og finna leiðir til að nýta fólk sem best. Það gæti t.d. verið of dýrt að nota hjúkr- unarfræðing með fjögurra ára há- skólanám í ýmis störf sem sjúkra- liðar geta unnið og hafa menntun til. Nú mun fara af stað vinna inni á sjúkrahúsunum þar sem ýmis mál verða endurskoðuð og þar munum við sjúkraliðar fá að hafa áhrif, ef staðið verður við það sem okkur hefur verið lofað." Að lokum ræðum við um framtíð sjúkraliðastéttarinnar en þar eru mörg hættumerki á lofti. Allt of lítil nýliðun hefur átt sér stað en Kristín bendir réttilega á að það sé ekki vandamál sem sjúkraliðar eigi að semja um í kjarasamningum. „Það hlýtur að vera í verkahring heil- brigðis- og menntamálaráðuneyt- anna að vinna að því að stéttin leggist ekki niður. Við eigum ekki að þurfa að eyða orku okkar í það, ofan á það að verja eigin kjör. Staðreynd- in er sú að kjarninn í sjúkraliða- stéttinni eru eldri konur og margar þeirra eru orðnar öryrkjar af of miklu vinnuálagi. Afföllin eru mikil þegar þær komast yfir ákveðinn ald- ur. Annað, sem er líka alvarlegt um- hugsunarefni, er að ungt fólk sem hefur lært til sjúkraliða skilar sér illa út á vinnumarkaðinn. Launin hafa verið svo lág að það fer í önnur störf að loknu námi. Öll þessi mál hlýtur að þurfa að skoða af mikilli alvöru ef við ætlum að geta mannað sjúkrahúsin í framtíðinni," sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir að lokum. 32

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.