Vera


Vera - 01.12.2001, Page 41

Vera - 01.12.2001, Page 41
Aðalheiður Þorsteinsdóttir * tímunum saman. Ég var að hugsa um að fara í Háskólann, í bókasafnsfræði eða sagnfræði, en vildi fyrst sjá hvort ég fyndi leið innan tónlistarinnar og fór í tónfræðideild Tónlistarskólans f Reykja- vík, sem er nám á háskólastigi. Ég sé ekkert eftir því, lærði nytsamleg vinnu- brögð, t.d. í hljómfræði hjá Guðmundi Hafsteinssyni. En það bjargaði mér al- veg fyrsta árið að ég fór í Háskólakórinn þar sem ég kynntist frábæru fólki og þar söng ég í nokkur ár. Prófi í tónfræði- deildinni lýkur annað hvort með því að nemendur semja tónverk eða skrifa rit- gerð. Ég ákvað að reyna að semja tón- verk og valdi ljóð eftir rússneska ljóð- skáldið Önnu Akmatovu, mjög drama- tískt. En ég komst ekkert áfram með þetta. Það er svo mikil tónlist í höfðinu á mér að ég var alltaf hrædd um að ég væri að stela frá öðrum, svo ekki varð ég tónskáld. Ég fór svo að vinna á íslenskri tónverkamiðstöð 1992 og ákvað síðan að hætta við tónverkið og skrifa ritgerð um dr. Victor Urbancic. Henni lauk ég veturinn 1997 til 1998. Á Tónverkamið- stöðinni lærði ég margt um útgáfumál, umfang verka íslenskra tónlistarmanna og um gagnagrunns- og upplýsingamál. Mér datt meira að segja í hug að fara að læra um útgáfu- og upplýsingamál í tónlist. Ég var sem sé að velta ýmsu fyrir mér áður en ég ákvað loks að prófa sjálfstæða tónlistarvinnu.” Kannski var ástæðan fyrir því að Aðalheiði tókst ekki að semja tónverkið sú að hún fékk næga útrás fyrir sköpunarþörfina annars stað- ar. Hún var alltaf að spila og í því er mikil sköpun. Fljótlega eftir að hún kom til Reykjavíkur rauf hún eitt karlavígið enn með þvf að taka að sér að spila dinnertónlist á veitingahúsum og í veislum, spilaði m.a. á veitingahúsinu Arnarhóli. „Svona spilamennska er mikill karla- heimur en ég vildi sýna öðrum stelpum að þetta væri hægt," segir hún um þennan hluta tónlistarferilsins og bætir við að hún hafi lært djasshljómfræði á Akureyri og djasspíanóleik í tónlistar- skóla FÍH. Að spila djass byggist mikið á því að þora að impróvísera og þar eru strákar oft frakkari en stelpur, þær eru harðari við að ritskoða sjálfar sig. Það skiptir líka máli að leyfa sér að gera mistök og aðalatriðið er að njóta þess sem maður er að gera. Á þessum árum kynntist Aðalheiður Margréti Pálmadóttur, stofnanda Kvennakórs Reykjavíkur, og þar með hófst þátttaka hennar í tónlistarstarfi kvenna, en eins og kunnugt er varð mik- il sprenging í þátttöku kvenna í kóra- starfi með brautryðjendastarfi Margrét- ar. Kvennnakór Reykjavíkur var stofnað- ur 1993, sama ár og Kvennakirkjan sem hefur einnig verið starfsvettvangur Aðal- heiðar um árabil. „Það má segja að Magga hafi hent mér út í 'djúpu laugina', bæði sem und- irleikara og við að útsetja lög fyrir kór- ana. Ég á henni mjög margt að þakka. Aðsóknin var svo mikil að Kvennakór Reykjavíkur að fljótlega voru stofnaðir fleiri kórar, m.a. Léttsveitin undir stjórn Jóhönnu Þórhallsdóttur. Þar hef ég verið undirleikari frá byrjun og átt mjög gott samstarf við [óhönnu. í kórnum eru 120 konur og ég hef útsett mikið af lögum fyrir hann. Einu sinni héldum við t.d. tónleika með íslenskum dægurlögum en þar sem ekki voru til kórútsetningar bjó ég þær til og hef alltaf gert þegar Léttsveitina hefur vantað lög. Árið 1997 gaf lóhanna út sólóplötuna Flauels- mjúkar hendur og fékk mig til liðs við sig, ásamt fyrrum félögum sínum í Diabolus in musica. Þar kynntist ég Tómasi R. Einarssyni bassaleikara sem ég hef unnið mikið með síðan og þarna urðu fyrstu kynni mín af stúdíóvinnu, sem mér finnst mjög skemmtileg. Þessi hópur stofnaði svo hljómsveitina Six Pack Latino sem lék á dansleikjum og gaf út geisladiskinn Björt mey og mambó árið 1999. Við spiluðum aðal- lega kúbanska tónlist þar sem takturinn er aðalatriðið en hann er ekki innbyggð- ur í hausinn á mér. Ég þurfti því virki- lega að leggja á mig vinnu og æfa mig til að ná þessu," segir Aðalheiður og hlær prakkaralega um leið og hún viður- kennir að hafa ekkert alltaf þurft að gera svo mikið af því. „Ég syng bakraddir og spila á píanóið og þurfti að hella mér út í að spila sóló, svona eins og González gerir í Bueno Vista Social Club. Það tók á en var gaman þegar út í það var kom- ið. Áhugi fyrir tónlist af þessu tagi er mjög mikill hér á landi og nú erum við Að spila djass byggist mikið á því að þora að impróvísera og þar eru strákar oft frakkari en stelpur, þær eru harðari við að ritskoða sjálfar sig. Það skiptir líka máli að leyfa sér að gera mistök og aðalatriðið er að njóta þess sem maður er að gera. þrjú saman f Trio Latino, ég, lóhanna og Tómas R. Við hittumst hér á Ægisíðunni á morgnana og æfum kúbönsk stef. Að fá að vinna með Tómasi R. er á við mörg ár í skóla. Trio Latino kemur fram í veislum og alls kyns skemmtunum og stundum hitum við Tómas upp áður en dívan mætirá sviðið." Eins og fram hefur komið hreifst Aðalheiður af töfrum leikhússins og segir að í starfi sínu sem tón- listarkona sé leikhúsið henni ofarlega f huga. Hún nýtur þess að búa til stemn- ingu með Ijósum og hljóðum og fylla með töfrum tónlistarinnar. Enn er óget- ið eins liðar í starfi hennar sem er að vera píanóleikari og kórstjóri Kvenna- kirkjunnar. Þar nýtur hún þess að búa til stemningu og hefur tekist einstaklega vel, enda má segja að hver messa sé eins og lítil leiksýning. Létt djassaður píanóleikur hennar og sú vinna sem hún hefur lagt af mörkum við að finna ný lög fyrir Kvennakirkjuna, hefur haft áhrif en nú bjóða sífellt fleiri kirkjur upp á kvöldmessur með léttu sniði einu sinni í mánuði.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.