Vera


Vera - 01.12.2001, Qupperneq 53

Vera - 01.12.2001, Qupperneq 53
systrum sínum fyrir vikið. Eitt nýlegt dæmi er hinn margfrægi öryrkjadómur þar sem hagsmunir og áherslur flokks voru sett ofar en hið kvenlega um- hyggjusjónarmið. Annað athyglisvert er að konur fá bara völd fyrir kosningar - þá eru þær merkilegar og hafnar upp ti! skýjanna. Síðan gleymast þær. Þær verða hluti af kerfinu og jafnvel samdauna, því þær vantar baklandið - sterkt bakland kvenna sem styður þær og hvetur þær til að standa fyrir sínu. Það sem fælir konur líka frá þátttöku í stjórnmálum er hve þau eru tímafrek og langar fundasetur. í Gegnum glerþakið er orsök þess talin vera sú að stjórnmál- unum hefur verið stjórnað af miðaldra körlum sem hafa engar aðrar félagslegar skyldur - eru stikkfríir á heimilunum og ráða tfma sínum sjálfir. Kynjafræðilega meðvitaðir þingmenn Að lítt athuguðu máli geta kynjakvótar virst vera sú töfralausn sem ein getur aukið hlut kvenna í stjórnmálum og fært þeim völd. En við nánari athugun stenst sú skoðun tæpast. Viljum við ekki manneskjur, konur og menn, sem taka fullt tillit til beggja kynja og viljum við ekki pólitík þar sem reynslan sem konur hafa öðlast nýtist í starfi og sú mann- Ein kona í karlanefnd getur lítið afrekað en konur kosnar inn sem hópur geta breytt ein- hverju. Það hlýtur líka að vera lykilatriði að virkja fleiri konur til starfa til þess að þær gefist ekki upp vegna einangrunar. þekking sem þær hafa umfram karla, al- mennt, nýtist til góðs fyrir okkur öll? Þorgerður Einarsdóttir sagði í viðtali við Morgunblaðið: „Hins vegar held ég að við séum að nálgast ansi áleitna spurningu um hvort að ekki skipti máli hvort þingkonurnar séu kynjafræðilega meðvitaðar. Enginn vandi er að nefna hvernig þingmál hafa verið afgreidd frá þingi eins og þar sætu eintómir karlar. Með fjölgun þingmanna með kynja- fræðilega meðvitund ætti breytinga að fara að verða vart." Niðurstaðan hlýtur að vera sú að það þarf að byrja á grunninum og lfta á félagsmótun kynjanna og gera þau „kynjafræðilega meðvituð". Tímabundn- ar lausnir eins og kynjakvótar leysa ekki vandamál sem eru þjóðfélagsleg og eiga upptök í viðhorfum fólksins í landinu. Kynjakvótar geta tryggt jafnan hlut kynj- anna en þeir tryggja ekki raunverulegt jafnrétti kynjanna. f raun eru kynjakvótar í andstöðu við grunnhugmyndir kven- réttindabaráttunnar og ósigur fyrir kon- ur. Konur hljóta að krefjast þess að verða metnar að verðleikum sínum en ekki á grundvelli kynsins. Þeirra sjónar- mið hljóta að verða talin það mikilvæg að þau þurfi að koma fram og hafa jafn- vægi á öllum sviðum mannlífsins. Tak- markið hjá stjórnmálamönnum og kon- um getur ekki einungis verið það að ná völdum - það hlýtur að vera takmarkið að skapa mann- og kvenvænlegt samfé- lag. Markmið allrar kvennabaráttu hlýtur að vera aukið frelsi kvenna til að hafa áhrif á það samfélag sem við lifum f. En það þarf bæði mjög sterkar konur og mjög réttsýna, jafnréttissinnaða karla til að fá meira en bresti í gterþakið því að jafnrétti er mannanna verk rétt eins og misrétti kynjanna er mannanna verk. Höfundur er nemi í nútímafrœðum við Háskólann á Akureyri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.