Vera - 01.12.2001, Qupperneq 71
Tricia Kreitwan
Stelpa
é
Bók fyrir stelpur
sem vilja láta
að sér kveða
0T.5,
Þörf bók og holl lesning
%
i
Stelpa, stattu á þínu! Tricia Kreitman
þýðing: Ragna Sigurðardóttir Salka, 2001
Stelpa, stattu á þínu! er bók fyrir stelpur
sem vilja láta að sér kveða, segir á bókar-
kápu. Höfundur bókarinnar, Tricia
Kreitman, segir f upphafsorðum: „Þessi bók
fjallar um raunverulegt fólk sem fæst við
raunveruleg vandamál. Það á eitt sameigin-
legt: Að vera fast í aðstæðum sem virðast
hvorki réttar, þægilegar né öruggar - og
engin lausn er í sjónmáli."
Bókin spannar vítt svið og segja má að
hún eigi erindi til allra kvenna en ekki
aðeins unglingsstúlkna og foreldra þeirra,
eins og gefið er til kynna á bókarkápu. Hér
er komið víða við, fjallað er um samskipti
milli unglinga, vinahópinn, þrýsting frá
vinum, m.a. varðandi áfengi og kynferðis-
mál, muninn á ást og losta, ótímabæra
þungun, tilfinningalega kúgun, misnotkun
og ofbeldi og í lokin eru tekin saman hag-
nýt ráð sem gott er að hafa í huga þegar
bregðast þarf við erfiðleikum og taka þarf
afdrifaríkar ákvarðanir. Auk þess er aftast í
bókinni listi yfir aðila á íslandi sem hægt er
að leita til varðandi vandamál sem koma
upp. Bókin er byggð upp á raunverulegum
reynslusögum sem höfundur bað lesendur
nokkurra unglingatímarita að senda sér.
Þær eiga það sammerkt að fjalla um van-
damál sem eru í eðli sínu öll mjög erfið
fyrir þann sem takast þarf á við þau.
Höfundurinn fjallar síðan um sögurnar
hverja fyrir sig og veltir fyrir sér hvað viðko-
mandi söguhetja gerði rangt eða rétt og
hversvegna hún brást svona við og leiðir til
að bjarga málunum.
Kosturinn við byggingu bókarinnar er
að lesandinn sér aðstæður frá mismunandi
sjónarhornum. Þetta gerir það einnig að
verkum að sögurnar eru lifandi og spenn-
andi og því auðvelt að halda sér við efnið
við lestur bókarinnar. Á það jafnt við unga
lesendur og eldri. Lesandi hefur ekki á til-
finningunni að verið sé að predika einhliða,
heldur er hann sjálfur látinn um að álykta
hvaða viðbrögð séu rétt eða röng, hann
verður sjálfur þátttakandi með sjálfstæðri
hugsun sinni. Stelpa, stattu á þínu! er þörf
bók og öllum holl lesning.
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar óskar landsmönnum
öllum friðsœllar aðventu og gleðilegrar jólahátíðar
um leið og hann kynnir námskeið skólans sem haldin
verða í Háskóla íslands á vorönn 2002.
Fullorðinsfræðsla kirkjunnar:
Viltu læra
um lífið?
Fjölbreytni
Engin heimavinna
Engin próf
1 Námskeið um það sem skiptir máli
Vald og réttlæti: Námskeið um konur fyrir konur
Feminisk guðfræði og siðfræði hefur lengi beint augum að kúgun kvenna og hvernig má berjast
gegn henni. Á námskeiðinu er hin feminiska guðfræðiumræða notuð til að varpa Ijósi á hinar
kvenlegu dyggðir og hvaða þýðingu þær hafa fyrir konur í okkar þjóðfélagi.
Kennari: dr. Sófve/g Anna Bóasdóttir guðfrœóingur
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar
Upplýsingar á skrifstofu Leikmannaskólans
Biskupsstofu, Laugavegi 31,
150 Reykjavik
Heimasíða:
http://www.kirkjan.is/leikmannaskoli/
Simi: 535 1500
Bréfsími: 511 1501
Netfang: frd@biskup.is
Siðferðileg álitamái samtímans
Visindi efla alla dáð eða hvað? Stórstigum framförum i vísindum fylgja oft áleitnar spurningar.
þessari námskeiðaröð verður tekið á nokkrum þeim siðferðilegu álitamálum sem mæta okkur í
samtimanum.
Kennari: dr. Sólveig Anna Bóasdóttir guðfræðingur.
Trúarstef i kvikmyndum
Rannsóknir á trúarstefjum i kvikmyndum hafa aukist verulega á síðustu árum. Á námskeiðinu
verður þessi nýja fræðigrein kynnt og helstu trúarstef í kvikmyndum tekin fyrir.
Kennarar: dr. Arnfríður Guðmundsdóttir lektor, Bjarni Randver Sigurvinsson guðfrœðingur,
dr. Gunnlaugur A. Jónsson prófessor og Porkell Ágúst Óttarsson BA í guðfrœði.
Hjónin í Saurbæ
Á síðustu áratugum hefur hugmyndin um mótandi áhrif Guðríðar Simonardóttur '
á skáldskap eiginmanns hennar, séra Hallgrims Péturssonar, átt vaxandi fylgi að fag'na
námskeiðinu verður saga beggja skoðuð og kannað með hvaða hætti áhrif Guðriðar ki
birtast i skáldskap Hallgrims.
Umsjón: Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Helgistaðir og helgifarir (pílagrimsgöngur)
í kristni og ýmsum öðrum trúarbrögðum hafa helgir staðir skipað veigamikinn sess í huga fólks.
Þangað er m.a. farið í pílagrímsferðir eða til að leita andlegrar styrktar og uppbyggingar. Hluti
námskeiðsins er gönguferð (pilagrímsganga)
Umsjón: dr. Hjalti Hugason prófessor og Ragnheiður Sverrisdóttir djákni.