Vera - 01.02.2004, Page 10
/ SKYNDIMYND
7’3‘i \ y)W.
í' io 'í ‘ X' f.'X ' t
Þrjar
»Þrjár Maríur nefnist leikrit sem nú er sýnt á Litla sviði Borgarleikhúss-
ins í samstarfi Strengjaleikhússins og Leikfélags Reykjavíkur. Verkið er
einleikur um leikkonuna Maju sem er að æfa hlutverk Maríu Stúart í sam-
nefndu leikriti eftir Schiller og búa sig undir að leika Maríu Callas í kvik-
mynd. Sjálf var hún skírð María eftir Maríu Magdalenu. Um leið og við
skyggnumst með augum Maju inn í heim þessara þriggja María verðum
við vitni að sálarstríði hennar sjálfrar og djúpum tiivistarvanda. Maja á
von á barni með giftum manni en kona mannsins er alvarlega veik og
hefur Maja því ekki sagt honum fá ástandi sínu.
Með eina hlutverkið í leiknum fer Kristjana Skúladóttir en
hún útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla (slands árið
2001 og hefur síðan leikið m.a. í Rómeó og Júlíu hjá Vestur-
Iporti og með Dansleikhúsi með ekka í Borgarleikhúsinu.
iMessíana Tómasdóttir, eigandi Strengjaleikhússins, fékk
Sigurbjörgu Þrastardóttur til að skrifa leikrit um þetta efni
en þetta er fyrsta leikverk hennar í fullri lengd. Hún réð líka
j til sín leikstjórann Catrionu Macphie en þær Messíana hafa
|áður starfað saman. Catriona er kennari og leikstjóri við
leiklistardeild Ohio Northern háskólans í Bandaríkjunum,
I auk þess að veita listamiðstöð háskólans forstöðu. Hún hef-
ur m.a. leikstýrt mörgum sýningum um konur.
Sjálf sér Messíana um hönnun leikmyndar og búninga
en mikil áhersla er lögð á sjónræna þáttinn í sýningunni og
leikmynd og búningar unnin í Ijósnæm efni. Kjartan Ólafs-1
son semur tónlist og um lýsingu sér David Walters.
í verkinu er vitnað í leikverk Schillers um Maríu Stúart og I
Ijóð hennar, einnig er vitnað í Maríuguðspjallið, sem er hluti
Gnostísku guðspjallanna, og söng Maríu Callas, en tónverkl
Kjartans er m.a. byggt á upptökum af söng hennar og úr I
þeim unninn hluti af sjálfstæðu tónverki. Markmið sýning-1
arinnar er að sýna tengsl þriggja merkra kvenna úr mann-
kynssögunni við hver aðra og við nútímann og fjalla um I
hinar eilífu tilvistarspurningar kvenna allra tíma. K
10/ 1. tbl. /2004/vera