Vera - 01.02.2004, Page 12

Vera - 01.02.2004, Page 12
/ VIÐTAL Sárt að þurfa að fórna svona miklu rætt við Valgerði H. Bjarnadóttur fyrrverandi framkvæmdastýru Jafnréttisstofu ) » Nýlega féll dómur í Hæstarétti þar sem Leikfélag Akureyrar var sýknað af þeirri ákæru að hafa brotið jafnréttislög með ráðningu leikhússtjóra árið 2002. Leikfélagið réð Þorstein Bachmann til starfsins en þá ráðningu kærði annar umsækjandi, Hrafnhild- ur Hafberg, til kærunefndar jafnréttismála og fékk þann úrskurð að ráðningin væri brot á jafnréttislögum. Héraðsdómur Norðurlands staðfesti þann úrskurð en nú hefur Hæsti- réttur sem sé hnekkt þeim dómi. Valgerður H. Bjarnadóttir var framkvæmdastýra Jafnréttis- stofu þegar þetta mál kom upp og jafnframt formaður Leikfélags Akureyrar. Hún gegndi áfram starfi sínu á Jafn- réttisstofu eftir að kærunefndin birti sitt álit, en eftir að héraðsdómur hafði úrskurðað á sama veg síðsumars ákvað hún að láta af starfi sínu í samráði við nýráðinn fé- lagsmálaráðherra, Árna Magnússon. VERU lék forvitni á að heyra sjónarmið Valgerðar, nú þegar Hæstiréttur hefur fellt dóm sinn og ástæðan fyrir starfslokum hennar þar með úr sögunni. Hvernig finnst þér að fá þennan dóm núna þegar þú hefur í raun fórnað starfi þínu á Jafnréttisstofu? Þessi niðurstaða Hæstaréttar er vissulega ánægjuleg. Það er þungu fargi af mér létt því ég var alltaf svo viss um að við hefðum ekki brotið jafnréttislög í þessu máli. Það er gott að fá það staðfest. Á hinn bóginn er það sárt að hafa þurft að fórna svona miklu að ósekju, og ekki bara starfinu á Jafnréttisstofu, þetta mál hefur haft áhrif mun víðar. Það hefur gert mér og samstarfsfólki mínu erfitt fyrir á Jafnrétt- isstofu, hjá Leikfélaginu og í bæjarmálapólitíkinni á Akur- eyri. Og það hefur svo áhrif á daglega líðan. Að lokum ferðu að efast um dómgreind þína í flestu þegar þér er sagt að þú hafir brugðist í því sem þú kannt best og er þér hugsjón. Auðvitað velti ég því fyrir mér hvort ég hafi gert rétt í að hlýða svona Ijúflega þegar farið var fram á að ég viki úr starfi, en á þeim tímapunkti hafði ég ekki staðfestu til að standa með sjálfri mér lengur. Nú hvatti fyrrverandi jafnéttisráðherra, Páll Péturs- son, þig til að starfa áfram þrátt fyrir niðurstöðu kæru- nefndar. Hvaða breyting varð á afstöðu ráðherra þeg- ar nýr maður tók við því starfi? Það varð einfaldlega grundvallarbreyting með nýjum ráðherra. Páll Pétursson valdi og skipaði mig í starf fram- kvæmdastýru, svo eflaust hefur hann talið sig standa mér nær en sá ráðherra sem tók við. Páll gerði sér held ég líka grein fyrir því að jafnréttislögin eru vandmeðfarin, hafði sjálfur lent í því að kærunefnd taldi hann hafa brotið þau. ÉG ER EKKI í RÉTTUM FLOKKI FYRIR ÞESSA RÍKISSTJÓRN OG VAR EKKI VINSÆL MEÐAL ALLRA RÁÐHERRA. KANNSKI VAR ÞETTA BARA KJÖRIÐ TÆKIFÆRI TIL A0 LOSNA VIÐ ÓHLÝÐNA OG ÓÞÆGILEGA KONU... SEM KANN EKKI AÐ ÞEGJA Við vorum ekki alltaf sammála, og ég var kannski ekki jafn hlýðin og ég átti að vera samkvæmt skipunarbréfinu. í því stendur nefnilega að ég eigi að sýna ráðherra hlýðni. Ég gerði grín að því á sínum tíma, og ég held að Páll hafi húmor fyrir slíku. Árni var á þessum tíma nýtekinn við embætti og hefur eflaust þótt mikilvægt að vera dálítið töff og afgerandi. Þegar héraðsdómurinn lá fyrir 14. júlí, hafði ég sam- band við ráðuneytið samdægurs en ráðherra var í fríi. Hann mætti til vinnu viku síðar og boðaði mig til fundar þann dag. Þá viku sem ég beið eftir að fá að ræða við hann n '.ti ég til að skoða málið frá öllum hliðum, leita ráðgjafar þeirra sem ég treysti best og ekki síst ræða við mitt sam- starfsfólk. Þau voru einróma á þeirri skoðun að það væri i verra fyrir stofuna að ég hætti en að halda áfram og vinna okkur í gegnum þetta. Auk þess álitu flest þau sem ég ræddi við að Hæstiréttur hlyti að snúa niðurstöðunni. Ég fór svo suður 21. júlí með bréf þar sem ég fór yfir málið frá mínum sjónarhóli og lýsti þeim vilja mínum að starfa áfram, en var jafnframt tilbúin að víkja ef ég ætti ekki traust ráðherra. Ráðherra las reyndar ekki bréfið og án nokkurra málalenginga lagði hann til að við semdum um starfslok og að ég hætti samstundis. Ég sagði honum að án hans trausts væri erfitt fyrir mig að sinna þessu starfi. Ég hafði í bréfinu lagt til að við tækjum okkur tíma til að hugsa málið en hann taldi ekki þörf á því og ég tók í sjálfu sér undir það eftir að hafa heyrt hversu afdráttarlaus hann var. Ég hafði verið svo græn að halda að fundurinn yrði til að fara yfir stöðu mála, að ráðherra vildi heyra hvernig ég liti á málið og við ræddum svo ýmsa möguleika í framhaldi af því. En svo varekki. Eftirá hef ég spurt mig hvernig á því standi. Icelandair málið hafði verið ofarlega á baugi þarna á undan og á ýmsum efri stöðum þótti mönnum ég hafa sagt of mikið. Ég er ekki í réttum flokki fyrir þessa ríkis- stjórn og var ekki vinsæl meðal allra ráðherra. Kannski var ^ þetta bara kjörið tækifæri til að losna við óhlýðna og óþægilega konu... sem kann ekki að þegja. Ég veit ekki.... Hann hefur eflaust trúað því að þetta væri Jafnréttisstofu fyrir bestu. Hvernig finnst þér að geta ekki lengur tekið þátt í því uppbyggingarstarfi sem þú tókst að þér þegar ákveðið var að færa aðalstöðvar jafnréttismála til Ak- ureyrar og stofna þar Jafnréttisstofu?

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.