Vera - 01.02.2004, Qupperneq 41
/ BÆKUR
Femínismi i kjölfar Píkutorfunnar
Nýlega kom út norræna greinasafnið
Femkamp - bang um nordisk fem-
inism, útgefandi er sænska forlagið
Bang. í tilefni af útgáfunni verða
haldnar ráðstenfur um femínisma í
höfuðborgum Norðurlandanna og
verður ráðstefnan í Reykjavík í Nor-
ræna húsinu 8. mars, kl. 19.30.
í bókinni er landslag femínismans
á Norðurlöndum skoðað, einkum
með tilliti til þeirrar vakningar sem
varð í kjölfar útkomu Píkutorfunnar
sem segja má að hafi markað upphaf-
ið að þriðju bylgju femínismans.
Greinarhöfundar spyrja ýmissa
spurninga: Af hverju notar mjólkur-
samsalan Arla Foods naktar konur í
auglýsingum sínum á danska mark-
aðnum? Af hverju liðu tíu ár áður en
finnskir stjórnmálamenn tóku á sívax-
andi vanda vegna mansals og vænd-
is? Af hverju eru fegurðarsamkeppnir
mikilvægar fyrir íslendinga? Af hverju
var verkfalli fagfélags fólks sem vinn-
ur á vegum sveitarfélaga (meirihluti
félagsmanna eru lágt launaðar kon-
ur) mætt með slíkri þögn í Svíþjóð?
Og hvernig stendur á því að konur í
hinu ríka landi Noregi fá lægri laun en
konur á hinum Norðurlöndunum?
Bókin er seld í helstu bókabúðum.
Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konum
Nýlega gaf Skálholtsútgáfan út ritið
Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn kon-
um. Ritið er afrakstur af samstarfi
kirkna sem eiga aðild að Lútherska
heimssambandinu og er skrifað af
hópi fólks sem var fengið til að grand-
skoða afleiðingar ofbeldis og skipu-
leggja aðgerðir til að draga úr ofbeldi
gegn konum. t ritinu eru tillögur að
því hvernig konur, karlar og trúfélög
gætu unnið saman til að sigrast á
þeirri synd sem ofbeldi gegn konum
er. Það er hugsað sem umræðugrund-
völlur fyrir einstaklinga og söfnuði og
er framlag Alkirkjuráðsins til Áratugs
kirkjunnar gegn ofbeldi, 2001-2010,
og áratugs Sameinuðu þjóðanna til
friðar og gegn ofbeldi í garð barna.
Starfshópur á vegum Þjóðkirkj-
unnar sem vinnur gegn ofbeldi sá um
að þýða og staðfæra ritið á íslensku
og er þess vænst að ritið verði tekið til
umræðu í söfnuðum kirkjunnar. Ritið
fæst í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31 og
hjá söfnuðunum út um allt land.
Yfir 100 lífræn næringarefni
13 Vítamín ■ 16 Steinefni ■ 18 Aminósýrur ■ Snefilefni ■ Prótíni
Clorophyll súrefnisgjafi ■ Ríkt af Járni ■ GLA fitusýrum • Beta-carotene
• Lofttæmdar umbúðir til að
næringarefnin varðveitist betur.
• Engin málamiðlun í gæðum eða vinnslu.
• Vottað 100% lífrænt. Alþjóða gæðastaðall
IS09001. IS014001.
Leiðandi í gæðum í 20 ár
vegna yfirburða næringargildis
Serfræðingar i Lifrænni Næringu
Greinilegur munur eftir
nokkra daga inntöku.
Meiri orka, þrek
og vellíðan.
Gott fyrir þá sem eru í
námi og undir álagi.
.—
m
Fæst í apótekum.
Umboð: Celsus, s. 551 5995
vera/ l.tbl./2004/41