Vera - 01.02.2004, Blaðsíða 43
stúlkna
RAUÐUR ÞRÁÐUR í GEGNUM BÓKINA ER GAGNRÝNI Á HIÐ ÓMEÐVITAÐA VIÐHORF
SAMFÉLAGSINS TIL DRENGJA OG STÚLKNA SEM KYNVERA. ÞAR ER LITIÐ Á KYNHVÖT
STRÁKA SEM SJÁLFSAGÐAN OG EÐLILEGAN ÞÁTT í ÞROSKA ÞEIRRA MEÐAN STÚLKUR
FÁ ÞAU SKILABOÐ AÐ KYNHVÖT ÞEIRRA SÉ ÓÆSKILEG OG EIGI EKKI RÉTT Á SÉR
unglinga og gagnrýna þau. Þær báru virðingu fyrir sjálf-
um sér, vissu hvað þær vildu og létu ekki undan þrýstingi.
i Gegn þeirri hættu að fá á sig slæmt orð fóru margar þá leið
að stunda ekki kynlíf nema þær treystu og þekktu félaga
sinn vel.
Að fullnægja öðrum fremur en sjálfum sér
Það sem flest allar stúlkurnar áttu sameiginlegt var að lítið
var rætt um kynferðismál innan fjölskyldunnar og mæður
þeirra brydduðu ekki upp á þessu umræðuefni, líkt og þær
væru ómeðvitaðar um kynferðishugsanir dætra sinna.
Einnig má sjá að stúlkurnar létu samfélagsleg gildi hafa
áhrif á sig, í misjöfnum mæli þó. Þessi áhrif voru oft það
mikil að þær hugsuðu mun meira um að fullnægja öðrum
en sjálfum sér og hunsuðu þannig algerlega eigin langan-
ir og þrár. Hjá einhverjum gekk það svo langt að þær
höfðu samfarir án þess að vilja það og vissu varla hvort
þeim hefði verið nauðgað. Margar þeirra höfðu heldur
ekki áttað sig á hversu fáránlegt það væri að gera sér upp
fullnægingu aðeins til að þóknast öðrum. Höfundi finnst
slæmt hvernig það eru alltaf stelpurnar sem þurfa að segja
nei og bera þannig ábyrgðina, á meðan strákunum er eðli-
legt að spýtast áfram á hormónunum einum án þess að
hugsa frekar út i afleiðingar.
^ Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í Ijós að talsverður
munur var á viðhorfum stúlknanna eftir búsetu. ( borgar-
kjarnanum bjuggu aðallega hörundsdökkar lágstéttar-
stúlkur sem áttu erfiðara með að ræða kynferðismál sín og
voru hræddar við margskonar afleiðingar kynlífshegðun-
ar, svo sem alnæmi, þungun og að fá á sig slæmt orðspor.
Stúlkurnar úr úthverfunum, langflestar hvítar millistéttar-
stúlkur, voru hins vegar mun opnari og töldu sig eiga rétt
á kynferðistengdum löngunum.
I
Nauðsynlegtað tala um málin
I lok bókarinnar kemur höfundur fram með sínar skoðanir
á því hvernig æskilegast sé að breyta því ástandi sem ung-
lingsstúlkur búi við í sambandi við kynferðisímynd. í við-
tölunum fannst stúlkunum gott að fá tækifæri til að ræða
þessi mál og margar voru mjög opinskáar varðandi
reynslu sína og viðhorf. Tolman telur mikilvægt að spurn-
ingum þeirra sé svarað og þær fái að tala um eigin langan-
ir og þrár svo þær séu ekki einangraðar í leit sinni að kyn-
ferðislegu sjálfi. Að mati höfundar er það siðferðileg
skylda móður eða annars fullorðins einstaklings að hefja
þessa umræðu. Það er ekki nóg að vekja mæður til um-
hugsunar heldur er brýn þörf á heildstæðri vitundarvakn-
ingu þar sem þetta vandamál er inngrafið í stofnanir sam-
félagsins. Tolman segir einnig mikilvægt að skoða stöðu
drengja í þessu sambandi og heyra raddir þeirra um hvað
þeim finnist um hið almenna viðhorf að þeir láti stjórnast
af hvötum sínum í stað vitsmuna og skynsemi.
Hér er um að ræða þarft málefni sem lítið sem ekkert
hefur verið rannsakað fyrr en nú og því teljum við bókina
gott tilefni til að hefja nauðsynlega umræðu. Hún er vel
skrifuð, tiltölulega auðlesin og lítið er dregið undan ásamt
því að talað er um viðkvæm málefni á opinskáan hátt.
Okkur fannst merkilegt hvað flestar stúlkurnar voru hrein-
skilnar og ófeimnar við að tala um sín kynferðismál. At-
hyglisvert er að sjá þann mun á viðhorfum sem kom fram
eftir búsetu og má velta fyrir sér hvers konar mun megi
finna í okkar þjóðfélagi sem verður sífellt fjölmenningar-
legra.
Athygli vakti áhersla höfundar á að mæður og konur
ættu að hefja umræðu við ungar stúlkur um kynferðismál.
Mörgum finnst þetta eflaust gamaldags en ástæða höf-
undar fyrir þessu er sú sameiginlega reynsla sem konur og
stúlkur hafa í leit sinni að sjálfum sér sem kynverum.
Efni bókarinnar er engum óviðkomandi og hægt er að
mæla með henni fyrir alla sem málið varðar, fræðimenn
jafnt sem uppeldisaðila. Við mælum sérstaklega með síð-
asta kafla bókarinnar þar sem gefnar eru tillögur að úrbót-
um og imprað á nokkrum mikilvægum aðalatriðum.
Einnig er mjög skemmtilegt að lesa frásagnir stúlknanna
sem eru víða um bókina og gefa skýra mynd af viðhorfum
þeirra.
Fróðlegt væri að sjá samskonar rannsókn um unglings-
pilta til að fá fram þeirra sjónarhorn og hvort þessi hefð-
bundnu gildi séu þeim í hag.
Dilemmas of Desire - Teenage Girls Tatk about Sexuality
er innihaldsrík og áhugaverð bók um þarft málefni og er
mikilvægt innlegg til að hefja virka umræðu um kynferðis-
leg málefni unglingsstúlkna á (slandi. ( stað þess að sýna
konur sem söluvöru kemur hér uppbyggileg og opinská
umfjöllun um stúlkursem kynverur, íjákvæðri merkingu. X
vera / 1. tbl./2004 / 43