Vera - 01.02.2004, Blaðsíða 44
rætt við Sigríði Schram kennara í Laugarnesskóla
Kennslustund
í lýðræði
» Krakkarnir í 5. bekk í Laugarnesskóla vöktu athygli á
dögunum þegar þau sendu aðstandendum auglýsingar
nokkurrar bréf þar sem kom fram að þeim þótti auglýs-
ingin ósmekkleg. Sigríður Schram er umsjónarkennari
bekkjarins. Vera tók hana tali og kannaði hvað bjó að
baki hugmyndinni.
*
„Hugmyndin kviknaði þegar ég var með krökkunum í
heimilisfræði þar sem við vorum að ræða um neyslufræði.
I tengslum við það námsefni fjölluðum við um lífstíl, venj-
ur, verð og þess háttar en einnig um auglýsingar og áhrif
þeirra á okkur. Við veltum upp spurningum um merkja-
vöru og af hverju eitt merki er talið betra en annað og þátt
auglýsinga í að skapa vöru ákveðinn sess í hugum neyt-
enda." Sigríður segir krakkana hafa verið sammála um að
auglýsingar hefðu áhrif á þau og langanir þeirra og í kjöl-
farið hafi þau farið að ræða „Draumsauglýsinguna"
svokölluðu þar sem söngvarinn Jónsi keyrir um meðal
nakinna kvenna í eyðimörk. „Hugmyndin kom því í raun
frá börnunum sjálfum. Þetta er líflegur og skemmtilegur
bekkur sem liggur ekki á skoðunum sínum og mörg þeirra
höfðu veitt þessari auglýsingu athygli," segir Sigríður.
Kynferðislegar tilvísanir óþægilegar
„Við ræddum um auglýsinguna og þá kom í Ijós að þeim
blöskraði hún og þau voru hneyksluð. Það fór fyrir brjóstið
á þeim að þurfa að horfa á berar konur þegar verið var að
auglýsa súkkulaði." Stúlkur eru í talsverðum meirihluta í
TENGINGUNA VIÐ KYNLÍF EÐA ERÓTÍK FANNST ÞEIM
ÓÞÆGILEGT AÐ ÞURFA AÐ HORFA Á OG ÞÁ EKKI AÐEINS í
ÞESSARI AUGLÝSINGU HELDUR EINNIG FLEIRUM SEM ÞAU
TILTÓKU. ÞAU ERU BÚIN AÐ FÁ SIG FULLSÖDD AF ÞESS-
UM FULLORÐINSHEIMI SEM DYNUR YFIR ÞAU
bekknum en Sigríður segir strákana líka hafa verið á þess-
ari skoðun og umræðurnar því alls ekki einskorðast við
stelpurnar. „Það var í raun tvennt sem stóð uppúr hjá
þeim. Annars vegar tengingin við kynlíf eða erótík sem
þeim fannst óþægilegt að þurfa að horfa á og þá ekki að-
eins í þessari auglýsingu heldur einnig fleirum sem þau til-
tóku. Þau eru búin að fá sig fullsödd af þessum fullorðins-
heimi sem dynur yfir þau. Hins vegar voru það skilaboðin
sem þeim fannst þessi vinsæli söngvari vera að gefa krökk-
um; að það sé eðlilegt að láta sig dreyma um berar konur
og það voru þau ekki sátt við. Við fjölluðum í framhaldinu
um þær leiðir sem við höfum í lýðræðisþjóðfélagi til að
koma skoðunum okkar á framfæri og niðurstaðan varð sú
að þau fengu það heimaverkefni að skrifa bréf til aðstand-
enda auglýsingarinnar." Sigríður vann svo bréf uppúr
skrifum barnanna sem þau samþykktu lýðræðislega og
skrifuðu undir.
Uppeldisleg gildi látin lönd og leið
Bréfið var sent til Freyju, Jónsa og auglýsingastofunnar
sem sá um gerð auglýsingarinnar en engin svör bárust fyrr
en málið komst í fjölmiðla sem ýttu á eftir viðbrögðum.
„Viðbrögðin voru þó ekki mikil og einhverjir töldu þetta
vera mótmæli mín en ekki barnanna og að þau væru of
ung til að hafa slíkar skoðanir. Krakkarnir fengu því í raun
lítil svör við athugasemdum sínum og enginn hafði séð
ástæðu til að svara okkur fyrr en fjölmiðlarnir gengu í mál-
ið. Þetta var auðvitað liður í því að kenna börnum hvernig
lýðræðisþjóðfélag virkar og þvi hefur verið fleygt að þess-
ir aðilar hafi í raun brugðist þeirri skyldu sinni að sýna
44 / 1. tbl. / 2004 / vera