Vera - 01.02.2004, Qupperneq 45

Vera - 01.02.2004, Qupperneq 45
börnunum það," segir Sigríður. Hún bendir á að auglýsing- ar hafi áhrif á börn og að kannski gleymi hugmyndasmiðir auglýsinga því á stundum. „Markaðurinn tekur ekki börn með í reikninginn heldur miðar allt við fullorðna einstak- linga og peningahyggju. Mér sýnist sem uppeldisleg gildi séu oft látin lönd og leið þegar t.d. auglýsingar eru hann- aðar þó auðvitað sé það ekki algilt. Það eru þó ekki aðeins auglýsingarnar sem skipta máli heldur líka til að mynda fréttaflutningur. Það er ekki sama hvernig þetta er gert." Öll samfélagsumræða af hinu góða Sigríður segir þá kennara sem hún hefur starfað með sífellt vera að glíma við að kenna gagnrýna hugsun. „Þegar þau eru svona ung birtist það kannski helst í leiðbeiningum um hvernig þau geta verið gagnrýnin á sjálf sig og sam- skipti sín við aðra og umhverfi sitt. Það er þó auðvitað undir hverjum og einum kennara komið hvernig kennslan fer fram og hversu markviss hún er. Ég tel þó að það sé ríkt í kennurum að kenna þetta, jafnvel þó námsefni sé ekki alltaf til staðar." Hvað varðar fræðslu um femínisma og jafnréttismál segir Sigríður ekkert sérstakt námsefni til fyrir svo unga nemendur. Umræðan er þá einkum í tengslum við t.d. sögukennslu þar sem þau læra meðal annars um réttinda- leysi kvenna á árum áður. „Þau hafa ríka réttlætiskennd og finnst auðvitað fráleitt að fólk skuli ekki hafa haft sama rétt. Þau eru enn það ung að þau upplifa yfirleitt ekki sjálf kynjamisrétti og hafa ekki rekið sig á neitt slíkt. Undan- tekningin á því eru þó framangreindar auglýsingar sem þau upplifðu á einhvern hátt sem árás gegn sakleysi sínu HVERNIG VILJUM VIÐ HAFA NÆSTU KYNSLÓÐ? ALGERLEGA ÓMEÐVITAÐA UM ALLT EÐA VILJUM VIÐ ALA UPP GAGNRÝN- IÐ FÓLK SEM ER TILBÚIÐ TIL AÐ TAKA ÞÁTT í LÝÐRÆÐINU? en ekki endilega stelpum. Öll samfélagsumræða með börnum er auðvitað mjög af hinu góða og skilar vonandi sínu til þeirra, þannig að þegar þau verða eldri eru þau betur í stakk búin að rökræða slíka hluti." Hvernig viljum við hafa næstu kynslóð? Sigrfður segir þjóðfélagið verða að halda vöku sinni og huga að því hvað það er sem við viljum börnunum. „Hvernig viljum við hafa næstu kynslóð? Algerlega ómeð- vitaða um allt eða viljum við ala upp gagnrýnið fólk sem er tilbúið til að taka þátt í lýðræðinu? Við þurfum að huga að börnum þessa lands og átta okkur á því að við berum öll ábyrgð á að framfylgja ákveðnum stöðlum sem samræm- ast réttlætiskennd okkar og dómgreind, ekki bara foreldr- ar og kennarar heldur þjóðfélagið allt." X FLÓAMANNA _________) vera / 1. tbl. / 2004 / 45

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.