Vera - 01.02.2004, Qupperneq 51

Vera - 01.02.2004, Qupperneq 51
Forréttindi karlmanna »Peggy Mdntosh prófessor í Wellesley háskólanum í Bandaríkj- unum heldur því fram að hvítt fólk í Bandaríkjunm líti á rasisma sem eitthvað sem er gert í illu, ekki sem eitthvað ósýnilegt kerfi sem styrki yfirráð hvítra. Til að útskýra þetta kerfi skrifaði Mdn- tosh lista yfir ósýnileg forréttindi sem hvítir njóta. Listinn yfir forréttindi karla er í anda lista Mcintosh og er tekinn saman af Barry Deutsch og er birtur hér með hans leyfi. Hann er einnig með mjög pólitíska og femíníska bloggsíðu sem kallast Alas, a blog. [ http://amptoons.com/blog/ ] 01. ef ég sæki um sama starf og kona er líklegra að ég fái starfið 02. mér hefur ekki verið innrætt að forðast að ganga einn úti í myrkri 03. ég var líklega hvattur til að vera ákveðnari en systur mínar 04. kjörnir fulltrúar mínir á þingi og í sveitarstjórnum eru yfirieitt kynbræður mínir 05. ef ég veld óhappi í umferðinni eða mér gengur illa að leggja í stæði er það ekki álitið vera lýsandi dæmi um ökuhæfni allra af mínu kyni 06. það er mjög líklegt að ég fái hærri laun en maki minn, sé það kona 07. kynbræður mínir eru daglega á forsíðum blaðanna 08. í fjölmiðlum er frekar talað við kynbræður mína í fréttum og frétta- skýringaþáttum, alveg sama hvert umræðuefnið er 09. ef ég eignast ekki börn er karlmennska mín ekki dregin í efa 10. ef ég eignast börn en sinni þeim lítið eða ekkert er það ekki álitið ónáttúrulegt 11. ef ég sinni börnunum rnmurn er mér hrósað í hástert, jafnvel þótt ég geri það bara í meðallagi vel 12. þó ég noti aldrei getnaðarvarnir er ég ekki ásakaður um léttúð og að nota fóstureyðingar sem getnaðarvörn - sama hversu margar ég á að baki 13. ég er ekki álitinn bjóða hættunni heim ef ég fer fullur upp í bíl eða í partýmeð ókunnugu fólki 14. líkurnar á því að mér verði einhverntíma nauðgað eru mjög litlar 15. það er ekki ætlast til þess af mér að ég sé undir kjörþyngd alla ævi 16. verði annað okkar að vera heima með börnunum finnst okkur báðum og öllum sem við þekkjum líklega eðlilegra að það sé hún sem hætti að vinna 17. ef ég er ófríður hefur það líklega ekki afgerandi áhrif á líf mitt 18. þegar ég var í skóla fékk ég líklega meiri athygli kennaranna heldur en stelpurnar 19. ef ég er vonlaus í fjármálum verður kynferði mínu ekki kennt um 20. ef ég steypi fyrirtæki á hausinn verður það ekki tekið sem dæmi um það að enginn af mínu kyni ætti að stunda atvinnurekstur 21. fjöldi rekkjunauta minna hefur líklega ekki áhrif á hvernig fólk talar um mig eða kemurfram við mig 22. ég er ekki álitinn óþolandi fyrir það eitt að vera ákveðinn eða hávær 23. ef ég er geðstirður eða geri vitleysur er ég ekki spurður hvort ég sé á túr 24. hæfni mín til að taka ákvarðanir er ekki dregin I efa út frá hormóna- starfsemi minni 25. flestöll trúarbrögð ganga út frá því að guð sé af mínu kyni og að hitt kyniðsémér óæðra 26. ef ég er í gagnkynhneigðri sambúð er ólíklegt að ég verði barinn heima hjá mér 27. fjölmiðlar leggja sig fram um að höfða til mín kynferðislega 28. ég hef val um fatnað sem er ekki gildishlaðinn; fötin mín senda engin sérstök skilaboðtil umheimsins 29. það er ekki ætlast til þess af mér að ég eyði stórum hluta tekna minna íaðhalda mértil 20. yfirleitt er miðað við mitt kyn í skrifuðum texta - „hann" 21. starfsheiti miða við mig og kynbræður mína - „ráðherra" 22. það er ólíklegt að ég verði fyrir kynferðislegu áreiti í vinnunni 23. ef ég vinn sama verk og kona finnst fólki ég standa mig betur 24. ég hef þau forréttindi að vera ómeðvitaður um forréttindi mín Þýðing: Bára Magnúsdóttir Styrkir til atvinnumála kvenna Vinnumálastofnun/félagsmálaráðuneyti hefur á þessu ári heimild til að úthluta í styrki 20 milljónum króna til atvinnumála kvenna. Tilgangur styrkveitinga: * Vinnumarkaðsaðgerðir til að draga úr atvinnuleysi meðal kvenna * Viðhalda byggð um landið * Auvelda aðgang kvenna að fjármagni * Auka fjölbreytni í atvinnulífi Hluta fjárins veröur varið í verkefni á svæðum þar sem atvinnulíf er einhæft og hlutfall atvinnuleysis hátt. Ekki verða gerðar eins strangar kröfur um arðsemi þeirra verkefna en engu að síður miðað við að styrkurinn sé ekki félagslegt úrræði heldur um raunverulega atvinnusköpun að ræða. Allt að 15- 20 bestu verkefnin eru valin úr eftir ákveðnum forsendum og þeim veittur hærri styrkur. Við mat á verkefnum er lögð áhersla á atvinnusköpun. Allar konur hvaðanæva af lanöinu geta sétt um styrk. Veittir eru stofnstyrkir og þrúunarstyrkir. Stofnstyrkir eru styrkir til véla og tækjakaupa. Þróunarstyrkir eru hönnun, þróun og markaðssetning. Að öðru jöfnu nemur framlag af hálfu ríkisins ekki meir en 50% af styrkhæfum kostnaði. Lögð er áhersla á nýsköpun og hún skilgreind út frá samkeppnisforsendum. Ekki eru veittir styrkir til verkefna þar sem styrkveiting gæti skekkt samkeppnisstöðu gagnvart aðila í hliðstæðum atvinnurekstri. Eingöngu eru styrkir veittir til verkefna í eigu kvenna eða kvennahópa. Eingöngu verður tekið við umsóknum á rafrænu formi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni, www.vinnumalastofnun.is Umsóknir Umsúknum skal skilað á rafrænu formi á þar til gerðum eyðublöum sem finna má á heimasíðu Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is Upplýsingar veitir Margrét Kr. Gunnarsdúttir, Vinnumálastofnun s - 515 4800. /Eskilegt er að umsóknir séu unnar í samráði við atvinnu- og iðnrágjafa á landsbyggðinni eða aðra fagaðila. Impra nýsköpunarmistöð á Iðntæknistofnun veitir handleiðslu og upplýsingar um stofnun og rekstur fyrirtækja og upplýsingar um gerð viðskiptaáætlana. Umsóknarfrestur til 12. mars 2004. Öllum umsóknum verður svarað skriflega. INNUMÁLA STOFNUN vera / 1. tbl. / 2004 / 51

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.