Vera - 01.02.2004, Síða 52
Martha Árnadóttir
/ ALÞINGISVAKTIN
Hvað hafast þær að
nýju konurnar
á Alþingi?
»Þrjár nýjar konur tóku sæti á Alþingi eftir kosningarnar í fyrravor. Þær
eru Anna Kristín Gunnarsdóttir fyrir Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi,
Katrín Júlíusdóttir fyrir Samfylkinguna i Suðvesturkjördæmi og Dagný Jóns-
dóttir fyrir Framsóknarflokkinn í Norðausturkjördæmi. Alþingisvaktin fór á
stúfana og leitaði frétta af þeim stöllum. Hvað hafa þær haft fram að færa
á Alþingi? Hafa þær lagt fram einhverjar fyrirspurnir? Já, það kom á daginn
að samtals hafa þær lagt fram nítján fyrirspurnir; Anna Kristín sex, Dagný
eina og Katrín tólf.
Fyrirspurnir í þinginu eru mikilvægt tæki þingmanna til að
leita upplýsinga hjá framkvæmdavaldinu. Fyrirspurnir
endurspegla vel hugðarefni þingmannsins sem leggur
þær fram. Með þetta í huga flettum við þingskjölum og
kíktum á fyrirspurnir þeirra Önnu Kristínar, Dagnýjar og
Katrínar.
Byrjum á Önnu Kristínu.
Fyrsta fyrirspurn hennar var til landbúnaðarráðherra um
útflutning á lambakjöti. Fyrir þau sem ekki vita þá líta fyrir-
spurnir þingmanna til ráðherra svona út:
Til landbúnaðarráðherra um útflutning lambakjöts.
Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.
1. Flve miklu fé hefur verið varið úr ríkissjóði til markaðs-
setningar á íslensku lambakjöti sl. fimm ár, sundurliðað
eftir innflutningslöndum, og hvernig hefur því fé verið
ráðstafað?
2. Flvernig hefur verðþróun á íslensku lambakjöti erlendis
verið sl. fimm ár, sundurliðað eftir innflutningslöndum?
3. Flvert hefur skilaverð til bænda fyrir íslenskt lambakjöt
verið á erlendum mörkuðum sl. fimm ár, sundurliðað eftir
innflutningslöndum?
Skriflegt svar óskast.
Eins og sjá má er orðalagið afar formlegt og tiltekið í smá-
atriðum hvað þingmaðurinn vill fá að vita.
En það var fleira sem Anna Kristín vildi fá að vita.
• Til landbúnaðarráðherra. Eitt og annað um sauðfjár
búskap, heimaslátrun og framleiðslu sauðfjárafurða.
• Til landbúnaðarráðherra. Flvenær er von á fjármagni
til reiðhallarinnar á Blönduósi?
• Til heilbrigðisráðherra. Um úrlausn málefna heilabil
aðra og aðstandenda þeirra.
• Til forsætisráðherra. Flvert er hlutfall matvæla í fram
færslukostnaði heimilanna?
• Til félagsmálaráðherra. Málefni Greiningarstöðvar
ríkisins og staða biðlista eftir þjónustu stöðvarinnar.
Þetta var það sem Katrín vildi vita:
• Til menntamálaráðherra. Fyrirætlanir um fjárveiting
artil sjálfstæðra rannsókna við Tækniháskólann.
• Til viðskiptaráðherra. Flver er vaxtastefna banka og
sparisjóða í málefnum einstaklinga annars vegar og
fyrirtækja hins vegar og hver er munurinn þar á?
• Til menntamálaráðherra. Um vinnureglur við úthlut-
un fjármagns til rannsókna í háskólum með tilliti til
heildarstefnumörkunar og jafnræðis.
52 / 1. tbl. / 2004 / vera