Vera - 01.02.2004, Blaðsíða 56
I
Jafnréttisstofa
A DOFINNI HJA
JAFNRÉTTISSTOFU
Þingsályktun um áætlun
í jafnréttismálum
í 9. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla
segir eftirfarandi: „Félagsmálaráðherra leggur fyrir Alþingi,
eigi síðar en ári eftir alþingiskosningar, tillögur til þings-
ályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára í
senn að fengnum tillögum einstakra ráðuneyta og Jafn-
réttisstofu. í áætluninni skulu koma fram sundurliðuð
framkvæmdaáform og áætlaðar fjárveitingar til einstakra
verkefna sem tengjast jafnrétttismálum. Áætlunina skal
endurskoða á fjögurra ára fresti."
Eitt af meginverkefnum Jafnréttisstofu undanfarið hef-
urveriðað vinna við gerð þessarar áætlunar í náinni sam-
vinnu við jafnréttisfulltrúa ráðuneytanna. Silja B. Ómars-
dóttir var ráðin sem verkefnisstjóri tímaþundið til að leiða
þessa vinnu hjá Jafnréttisstofu. Stefnt er að því að sú fram-
kvæmdaáætlun sem verið er að vinna við um þessar
mundir verði með öðru sniði en fyrri áætlanir, að hún verði
markvissari og með færri verkefnum sem fyrirsjáanlegt er
að verði mögulegt að hefja framkvæmd á og Ijúka á kjör-
tímabilinu. Leiðarljós framkvæmdaáætlunarinnar er að
kynja- og jafnréttissjónarmið verði fléttuð inn í alla stefnu-
mótun og aðgerðir á vegum ríkisins (Gender Mainstream-
ing).
í þessu samhengi er mikilvægt að undirstrika að sam-
þætting kynja- og jafnréttissjónarmiða er ekki markmið í
sjálfu sér heldur aðferð, eða öllu heldur verkfæri til að nota
til þess að ná fram jafnrétti kynjanna og tryggja að unnið
verði að því að ná þessu markmiði á markvissan og skipu-
lagðan hátt. Grundvöllur aðferðarinnar er að í stað þess að
nálgast kynjajafnrétti sem sértækt verkefni sem miði að
því að bæta stöðu kvenna eða karla sérstaklega, þá eru
þau skilgreind sem málefni samfélagsins í heild.
Þingsályktunin mun verð lögð fram á Alþingi nú á vor-
þinginu 2004.
Árni Magnússon ráðherra
jafnréttismála ásamt Sigurjóni
Erni Þórssyni aðstoðarmanni
ráðherra og Sigurði Egilssyni
bílstjóra í heimsókn
á Jafnréttisstofu
í janúar síðastliðnum.
Formennskuár íslands
í Norrænu ráðherranefndinni
Eins og kunnugt er fer (sland með formennsku í Norrænu
ráðherranefndinni árið 2004 og mun þar með leiða nor-
rænt samstarf á árinu. Þessi formennska er undir yfirskrift-
inni AuðlindirNorðurlanda, sem hefur reyndar mjög breiða
skírskotun. Þar er einkum átt við samfélagsgerð Norður-
landanna, félagslegar aðstæður, menningararfinn og nátt-
úruaðlindir. Á vettvangi jafnréttismála verður ýmislegt á
döfinni sérstaklega vegna formennskuársins. Island ætlar
á árinu að leggja áherslu á aðgerðir til að minnka hinn kyn-
bundna launamun, sem er í samræmi við áætlun ráðherra-
nefndarinnar um jafnrétti kynjanna. Samkvæmt könnun
sem Jafnréttisráð og Nefnd um efnahagsleg völd kvenna
lét framkvæma árið 2002 um launamun kvenna og karla
og náði yfir allan íslenska vinnumarkaðinn, nema ríkið og
Reykjavíkurborg, þá eru konur með 72% af launum karla.
íslendingar stefna að því að gera á formennskuárinu
samanburðarkönnun á reynslu foreldra á Norðurlöndun-
um af fæðingarorlofi og einnig að skoða þær hindranir
sem geta verið í veginum fyrir því að foreldrar nýti sér
þann rétt. Eftir að sjálfstæður réttur feðra til töku fæðing-
arorlofs var tryggður með lögum hér á landi árið 2000 er
hægt að tala um byltingu hvað varðar þátt karla í umönn-
un ungra barna. Samkvæmt nýrri viðhorfskönnun Gallup
nýtur þetta nýja fyrirkomulag mikils stuðnings almenn-
ings á íslandi.
Jafnréttisstofa mun standa fyrir málþingum og verða
þátttakandi sem samstarfsaðili í viðburðum sem tengjast
formennskuárinu. Þeir eru nánar auglýstir hér í blaðinu.
56 / 1. tbl. / 2004 / vera