Vera - 01.06.2004, Side 7

Vera - 01.06.2004, Side 7
sé að tala við mig," segir Sverrir og hlær. En hvað ætli sé skemmtilegast við að taka fæðingarorlof? „Það er svo margt. Skemmtilegast er sennilega að sjá hvað við náum vel saman og að fylgjast með honum þroskast. Hann er kannski í basli með einhvern hlut og svo sér maður hann tveimur dögum síðar gera það eins og ekkert sé. Það er mjög gaman. Það er líka gaman að vera bara í fríi og geta verið með barninu sínu. Maður á líka að leyfa sér að njóta orlofsins, fara saman niður í bæ og taka hann með ef maður þarf að skreppa út í búð, það er ekkert mál. Mér finnst þetta Ijúft, kannski líka vegna þess að veðr- ið hefur verið svo gott að þetta er hálfpartinn eins og að vera í sumarfríi. Það sem er erfiðast er að stundum einangrast maður dálítið. Maður kúp- lar sig út úr ýmsu og ég ákvað að gera það, láta þetta ganga fyrir. En fólk verður auðvitað að passa sig á að ein- angrast ekki og ég er byrjaður að fara meira út núna." Myndirðu kannski mæla með því að foreldrarnir væru hvort um sig heima hálfan daginn í fæðingarorlofi frekar en að skiptast á að vera allan daginn heima? „Upphaflega ætluðum við að gera það en það passaði svo illa við vinnu ÉG HELD AÐ KONAN HAFI VERIÐ STRESSAÐRI EN ÉG. HÚN HAFÐI DÁLITLAR ÁHYGGJUR AF ÞVÍ HVORT ÉG GÆTI HÖNDLAÐ AÐ VERA MEÐ HANN LENGI EINAN. MÉR HEFUR ALDREI FUNDIST ÞETTA NEITT VANDAMÁL konunnar minnar. Hún var búin að vera með Mána frá fæðingu og henni fannst óþægilegt að fara mjög fljótt að vinna, þannig að hún tók fyrst rúmlega átta mánuði áður en ég fór að vera einn með hann. En ég held að það hefði verið mjög þægilegt að vera heima hálfan daginn og vinna hálfan daginn." Það var fátt sem kom Sverri á óvart þegar hann byrjaði að vera einn heima með Mána. „Þetta var mjög svipað og ég átti von á. Ég held að konan hafi verið stressaðri en ég. Hún hafði dálitlar á- hyggjur af því hvort ég gæti höndlað vera / 3. tbi. / 2004 / 7

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.