Vera - 01.06.2004, Side 8

Vera - 01.06.2004, Side 8
/ SKYNDIMYND flestum tilfellum er þetta gaman og maður hefur bara gott af þessu, ekki sfður karlar en konur." Er eitthvað sem þú vilt ráðleggja fólki, kannski sérstaklega karlmönn- um sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessum efnum? „Bara að láta vaða í þetta óhikað. Ef maður hefur aldrei skipt á ungabarni eða komið nálægt börnum yfirhöfuð þá er þetta auðvit- að dálítið mál. En þetta er þess virði þó þetta herði aðeins að manni fjár- hagslega til að byrja með, maður vinnur þá bara út úr því. Mér finnst að fólk eigi bara að láta slag standa og hafa ekki áhyggjur. Þetta er kannski spurning um þekkingarleysi og for- dóma, að körlum lítist kannski ekki nógu vel á að ganga í verk sem þeir þekkja illa. En ef þú veist hvernig þú ÞETTA ER EINS OG MEO MARGT ANNAÐ, ÞAÐ ER EKKERT MÁL AÐ GERA VIÐ BÍL EF ÞÚ VEIST HVERNIG Á AÐ FARA AÐ. ÞÚ AFLAR ÞÉR BARA UPPLÝSINGA OG ÞAÐ ER NÚ ÞANNIG AÐ EF ÞÚ ERT MEÐ BARN ÞÁ ERU ALLIR TILBÚNIR AÐ LEIÐBEINA ÞÉR að vera með hann lengi einan. Mér hefur aldrei fundist þetta neitt vandamál. Mér finnst þetta þrælfínt. Við vöknum yfirleitt klukkan sjö á morgnana þegar hún gefur honum brjóst og svo tek ég við og skipti á honum. Þetta er auðvitað ekki bara skemmtiferð, þetta er líka vinna. Það sama á við um heimilisstörfin, fólk í kringum mig bjóst kannski við að allt yrði í rúst þegar ég tæki við, það var meira um að aðrir hefðu áhyggjur en ég sjálfur. Að sjá um barn og heimili er í rauninni bara eins og hvert annað verk. Ef maður hefur metnað í það og leggur sig fram þá gengur það yfir- leitt vel." Karlmenn hafa gott af að vera einir heima Þar sem Sverrir er einn heima með Mána og Rósa er útivinnandi þá sér hann eðlilega um heimilisstörfin, nema þvottinn sem hann segir Rósu aðallega sjá um. Að hans áliti er þetta eitthvað sem karlar ættu að prófa þó þeir séu kannski sumir smeykir við það. „Ég held að karlarnir hafi rosa- lega gott af þessu, að taka fæðingar- orlof. Ég hugsa að það sé algengt að karlar mikli hlutina fyrir sér þegar kemur að heimilisverkum. Ef þeir þurfa að gera eitthvað verk sem þeir eru ekki vanir að gera og er jafnvel leiðinlegt, þá finnst þeim það kannski stórmál. En þegar þeir fara svo að gera hlutina þá er þetta ekkert mál. Auðvitað eru til karlar sem finna sig ekki með börnunum og ég hef heyrt slíkar sögur. Svo kemur fyrir að maður verður pirraður þegar maður vaknar eldsnemma á morgnana og það fyrsta sem mætir manni er kúkabl- eyja. Það er bara eðlilegt en í lang- átt að gera hlutina þá er þetta ekkert mál. Þetta er eins og með margt ann- að, það er ekkert mál að gera við bfl ef þú veist hvernig á að fara að. Þú aflar þér bara upplýsinga og það er nú þannig að ef þú ert með barn þá eru allir tilbúnir að leiðbeina þér. Ef þú ert viljugur að taka á móti upplýsingum þá er þetta ekkert mál. Þetta gerir mann líka öruggari með börnin. Það kemur að því hjá öllum feðrum að þeir verða að vera einir með börnin sfn, þess vegna er þetta nokkuð sem nauðsynlegt er að kunna. Það er auð- vitað hræðilegt ef mönnum Kður illa

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.