Vera - 01.06.2004, Qupperneq 33
Elín Ebba er þekkt íyrir að nota
húmor og hlátur í starfi sínu, bæði
inni á geðdeild og líka í fyrirlestr-
um. Hún hamrar mjög á mikilvægi
húmorsins og segist stundum nota
svokallaða „hlátursbylgju” ef hún
tali yfir stórum sal. Þá lætur hún
fólk byrja að hlæja á einurn stað og
hláturinn svo breiðast út.
„Ég vil kenna fólki að það þarf
ekkert endilega að hlæja að ein-
hverju sérstöku,” segir Ebba. „Ef
þindin hreyfist gerir það sama gagn
fyrir líkamann. Að hlæja gefur
sömu vellíðan og að stunda líkams-
rækt eða fara í jóga, nema hægt er
að ná sama árangri á miklu styttri
tíma með því að hlæja hressilega.
Við þurfum öll á því að halda. Ég
stakk einhvern tíma upp á því við
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra að ríkið fjárfesti í hlátursbúll-
um og færi í samkeppni við bjór-
búllurnar. Það myndi skila sér
margfalt heilsufarslega. Þá gæti fólk
komið eftir vinnu, horft á fyndnar
myndir, sagt brandara og hlegið
innilega í lok dagsins. Vinnustaðir
gaetu líka tekið þetta upp. í iðju-
þjálfuninni létum við fólk hlæja inn
á segulbandsspólu og söfnuðum
saman alls kyns hlátri. Ef við vorum
leið settum við spóluna af stað og
það var eins og við manninn mælt,
við fórum öll að hlæja vegna þess að
hláturinn var svo smitandi. Þá
spunnust umræður um eitthvað
fyndið og okkur leið öllum miklu
betur.”
Geðræktarkassinn er líka kom-
inn úr hugmyndasmiðju Elínar
Ebbu í Geðræktinni. Hún hefur
hvatt alla til að eiga kassa með hlut-
um sem vekja upp góðar minningar
og vellíðan. Þar gæti t.d. verið víd-
eóspóla, músík, gömui ástarbréf,
símanúmer hjá fólki sem hefur góð
áhrif á mann, fyndin kort o.s.frv.
Hvaðeina sem gleður. „Við getum
alveg sett okkur í þær stellingar að
brosa, alveg eins og við getum talað
okkur niður á við,” segir Ebba.
„Geðræktarkassinn þjónar sama
hlutverki og sjúkrakassi gerir fyrir
minni háttar slys. Hann er geð-
sjúkrakassi fyrir lítil áföll. Okkur
dettur ekki í hug að hafa sár
óhreinsuð og við eigum líka að
hreinsa leiðinlegar hugsanir strax,
ekki láta þær hlaðast upp. En auð-
í GEÐRÆKTINNI ER SJÁLFSTRAUSTIÐ ÞAÐ MIKILVÆGASTA AF ÖLLU. ÞEGAR FÓLK
LENDIR í ÁFÖLLUM EÐA SLYSUM HRYNUR LÍF ÞESS OG ÞAÐ MISSIR ALLA
STJÓRN. MEÐFERÐIN GENGUR ÚT Á AÐ FÓLK NÁI AFTUR TÖKUM Á LÍFI SÍNU
- OG ÞÁ ÞARF AÐ BYGGJA Á ÞVÍ SJÁLFSTRAUSTI SEM ER TIL STAÐAR
vitað förum við á slysavarðstofuna
við stórslys og það sama gildir um
alvarleg veikindi sem maður nær
engum tökum á.”
Útlitsdýrkunin
kæfir sköpunarkraftinn
„Við getum gert svo margt sjálf og
við getum kennt börnunum okkar
svo margt. Ég er innilega sammála
honum Stefáni Karli þegar hann
segir að í einelti sé fólk alvarlega
skaðað, vegna þess að þar er verið
að ráðast á sjálfsmynd þess. Þegar
ráðist er á sjálfsmynd fólks myndast
ósýnileg sár og mest af okkar van-
líðan hefur með sjálfsmyndina að
gera.
Þegar ég var fengin til að halda
erindi við útskrift sonar míns, þá
talaði ég um mikilvægi sjálfstrausts-
ins. I geðræktinni er sjálfstraustið
það mikilvægasta af öllu. Þegar fólk
lendir í áföllum eða slysum hrynur
líf þess og það missir alla stjórn.
Meðferðin gengur út á að fólk nái
aftur tökum á lífi sínu - og þá þarf
að byggja á því sjálfstrausti sem er
til staðar. Frá því að börnin okkar
fæðast erum við að móta sjálfstraust
þeirra og okkar eigin sjálfstraust
hefur áhrif á hvernig til tekst. Slæm
sjálfsmynd smitar út frá sér. Svo
skiptir líka miklu máli að þau velji
það sem þau eru klár í og fái að
rækta það. En það er ekki nóg að
vera klár í einhverju ef maður hefur
ekki umhverfi sem hvetur. Vel-
gengni snýst um sambland af hæfi-
leikum og hvernig hæfileikarnir fá
að njóta sín í samskiptum við aðra.
Það er ekki tilviljun að þegar reynt
er að selja okkur vörur er stílað inn
á það að við séum ekki alveg nógu
góð. „Ef þú notar þetta eða þetta, þá
verðurðu í lagi...” Margar auglýsing-
ar gera ráð fyrir því að fólki líði ekki
nógu vel og reyna að telja því trú
um að það geti keypt sér vellíðan.”
Við ræðum um staðalímyndir í
auglýsingum. Um strákana sem eru
kúl og töff, taka sjensa og þeysa um
á snjóbrettum og stelpurnar sem
eru sætar og sexí. Elín Ebba segist
sannfærð um að útlitsdýrkunin
haldi niðri sköpunarkrafti kvenna.
„Konur eru gerðar svo uppteknar af
því sem í raun eru algerir smámunir. 4
vera / 3. tbl. / 2004 / 33