Vera - 01.06.2004, Síða 37
/ BÆKUR
Hinn sanni íslendingur
»Nýlega varði Sigríður Matthíasdóttir doktorsritgerð sína
í sagnfræði við Háskóla íslands. Ritgerðin, sem gefin hefur
verið út á bók, kallast Hinn sanni íslendingur og fjallar um
kvenréttindi, kvennaskóla, kjörgengi og andlega heilsu
kvenna frá 1900-1930.
*
Það þarf ekki að taka það fram að hinn borgaralegi karl-
maður er sá sem valdið hefur í þjóðlífi þessa tíma en þeir
urðu tákngervingar nútíma og framfara meðan konur
urðu einskonar lifandi tengiliðir við fortíðina og þjóðlegar
hefðir, sem birtist m.a. í því að þær skyldu nota þjóðbún-
inga, sjá til þess að fólksflóttanum á mölina linnti, endur-
reisa forna frægð sveitanna ásamt því að ala nógu mörg
börn til að viðhalda kynstofninum - og tala við þau kjarn-
yrta íslensku. Þessu áttu konur að einbeita sér að, en ekki
pólitík eða umræðu um stöðu sína í þjóðfélaginu.
Hugmyndir voru uppi um að hússtjórn og matreiðsla
yrði þegnskyldumál fyrir konur en ekki einhvers konar val-
kostur sem ungum stúlkum væri boðið upp á í bland við
aðrar menntunarleiðir.
Viðhorf þjóðernislegrar húsmæðrastefnu blómstruðu
og breiddust út í þjóðfélagslegri orðræðu. Á sama tíma
nutu tilraunir kvenna til að marka sér stöðu sem pólitískir
einstaklingar sífellt minni vinsælda. Konur lentu því í mik-
illi togreitu um hvert stefna skyldi, rétt eins og samfélagið
allt. En þeirra val stóð milli húsmæðraskóla eða mennta-
skóla, kvennapólitíkur eða kvenfélaga sem sinntu líknar-
og góðgerðamálum. Sigríður rekur hvernig umræðan og
átökin leiddu til þess að allur botn datt úr réttindabaráttu
kvenna og hennar varð ekki aftur vart fyrr en á sjöunda
áratugnum.
Hér er um tímamótaverk að ræða, læsilegt og skemmti-
legt og ekki skemmir fyrir að Sigríði tekst listilega að leiða
fram atburðarás og persónur sem ýmist hljóta að vekja að-
dáun eða aðhlátur lesenda.
Stofnaðir 1939
PRÓFANÁM - FRÍSTUNDANÁM
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA - STARFSNÁM
Félagsliðanám - Sjúkraliðanám
öldungadeild á grunn - og framhaldsskólastigi.
Fjölbreytt tungumálanám.
Handverk-Hönnun-Myndlist.
Námsaðstoð fyrir skólafólk. Sérkennsla í lestri og skrift.
Fjarnám. a) í íslensku f. útlendinga
b) í prófadeildum
Upplýsingar í síma 551 2992.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Mjódd
Netfang: nfr@namsflokkar.is
Heimasíða: http://www.namsflokkar.is
SVO LENGI LÆRIR SEM LIFIR
vera / 3. tbl. / 2004 / 37